Miðflokkurinn með 16,8 prósent – Sjálfstæðisflokkur með 18,1 prósent

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missir þrjú pró­sentu­stig af fylgi milli kann­ana og hefur aldrei mælst lægra. Mið­flokk­ur­inn tekur það fylgis­tap til sín.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur aldrei mælst með lægra fylgi en mælist með í nýj­ustu könnun MMR, eða 18,1 pró­sent. Hann tapar þremur pró­sentu­stigum milli kann­ana.

Mið­flokk­ur­inn mælist næst stærsti flokkur lands­ins og hefur aldrei haft meira fylgi, eða 16,8 pró­sent. Hann bætir við sig 3,3 pró­sentu­stigum milli kann­ana MMR.

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mæld­ist nú 13,2 pró­sent og lækk­aði um 2,1 pró­sentu­stig frá síð­ustu mæl­ingu MMR. Píratar bæta við sig fylgi og eru nú með 10,8 pró­sent sem er aðeins meira en Vinstri græn sem mæl­ast með 10,6 pró­sent stuðn­ing. Viðreisn kemur þar á eftir með 9,7 pró­sent og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn nýtur stuðn­ings 9,4 pró­sent lands­manna.

Fylgi Flokks fólks­ins mælist nú 6,3 pró­sent og fylgi Sós­í­alista­flokks Íslands mælist nú 3,0 pró­sent. Fylgi ann­arra flokka mæld­ist 2,2 pró­sent sam­an­lagt.

Könnunin var fram­kvæmd 15-22 nóv­em­ber og var heild­ar­fjöldi svar­enda 1.061 ein­stak­lingur, 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár