1.250 heimili sem borguðu auðlegðarskatt fengu 1,5 milljarða úr leiðréttingunni

1.250 heim­ili á Íslandi, sem borg­uðu auð­legð­ar­skatt árið 2013, fengu lækkun á höf­uð­stól hús­næð­is­skulda sinna í aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar. Fjár­hæðin sem þessi heim­ili fengu í leið­rétt­ing­unni svoköll­uðu nam 1,5 millj­örðum króna og náði til fjórð­ungs allra þeirra heim­ila sem greiddu auð­legð­ar­skatt.

Þetta kemur fram í skýrslu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um lækkun höf­uð­stóls verð­tryggðra hús­næð­is­lána, sem lögð var fram á Alþingi í dag. Þessi 1.250 heim­ili eru lið­lega tvö pró­sent allra þeirra sem fengu lækkun á höf­uð­stól. Með­al­lækk­unin sem þessi hópur fékk nam 1,2 millj­ónum króna.

Þeir sem þurftu að borga auð­legð­ar­skatt árið 2013 þurftu að eiga yfir 75 millj­ónir króna í hreina eign ef þeir voru ein­stak­lingar og hjón þurftu að eiga yfir 100 millj­ónir króna.

Með­al­lækkun á hóf­uð­stól verð­tryggðra hús­næð­is­skulda var mest hjá tveimur efstu tekju­tíu­undum umsækj­enda. Með­al­lækk­unin hjá tekju­tí­undum var á bil­inu 890 þús­und krónur til 1.620 þús­und krónur. Annað tekju­bilið, það er næst­lægsta tekju­tí­und þeirra sem fengu leið­rétt­ingu, fékk minnstu lækk­un­ina að með­al­tali. Frá fjórðu tekju­tí­und fer með­al­fjár­hæðin hækk­andi, mest fengu níunda og tíunda tekju­tí­undir.

Hlut­falls­lega flestir sem sóttu um lækkun voru á aldr­inu 46 til 55 ára, það eru þeir sem voru 41 til 50 ára árið 2008. Með­al­skulda­lækkun þeirra nam 1.360 þús­undum króna. Minnsta leið­rétt­ingu fengu 35 ára og yngri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár