Vildi Apple koma hingað? Landsvirkjun tjáir sig ekki um það

Ákvörðun Apple um að fjár­festa fyrir 1,7 millj­arða evra, um 255 millj­arða króna, í gagna­verum í Danmörku og Írlandi, hefur vakið athygli í dag, en Apple til­kynnti um gagna­vers­upp­bygg­ingu með til­kynn­ingu til kaup­hallar í nótt. Ein ástæðan fyrir því að Apple byggir upp á þessum stöðum er sú að gagna­verin verða knúin áfram með vist­vænni orku, það er orku sem unnin er úr end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Apple. Búist er við því að gagna­verin verði til­búin til notk­unar árið 2017 og muni veita um 300 starfs­mönnum vinnu til fram­tíðar, á hvorum stað.

Lands­virkjun hefur á und­an­förnum árum sinnt mark­aðs­starfi sem miðar að því að fá gagna­ver hingað til lands. Að sögn Magnúsar Þórs Gylfa­sonar, yfir­manns sam­skipta­sviðs Lands­virkj­unar, hefur eft­ir­spurn vegna orku­kaupa fyrir gagna­ver auk­ist að und­an­förnu. Hann var ekki til­bú­inn að tjá sig um hvort Apple hefði sýnt því áhuga að koma hingað til lands. „Vegna þess hve eft­ir­spurn gagna­ver­anna er mikil, og sam­keppni þeirra á milli hörð, er Lands­virkjun að jafn­aði ekki heim­ilt að upp­lýsa við hvaða aðila fyr­ir­tækið á í við­ræðum við hverju sinni,“ sagði Magnús Þór í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Hann segir enn­fremur að það sjá­ist á ákvörðun Apple, að fyr­ir­tæki horfi til þess að nýta umhverf­is­væna end­ur­nýj­an­lega orku, þar sem við­skipta­vin­irnir séu farnir að gera kröfu um slíkt í meira mæli en áður. „Það sést af ákvörðun Apple að fyr­ir­tækið leggur mikla áherslu á að gagna­ver þess séu knúin end­ur­nýj­an­legri orku. Þetta er í takt við stefnu vax­andi fjölda erlendra stór­fyr­ir­tækja sem þjón­usta kröfu­harða við­skipta­vini með sterka umhverf­is­vit­und. Hér á Íslandi finnum við fyrir vax­andi áhuga slíkra aðila. Sá áhugi styrkir trú okkar um að sú end­ur­nýj­an­lega orka sem við getum boðið við­skipta­vinum okkar auki sam­keppn­is­hæfni fyr­ir­tæk­is­ins og muni skila okkur auknum fjölda tæki­færa í fram­tíð­inni,“ segir í svari Magnúsar Þórs.

[caption id="attachment_19973" align="alignnone" width="689"] Apple er verð­mætasta fyr­ir­tæki heims, og hefur átt mik­illi vel­gengni að fagna und­an­farin ár.[/caption]

Apple hefur að und­an­förnu verið að horfa til auk­inna fjár­fest­inga enda er þetta verð­mætasta fyr­ir­tæki heims með fulla vasa fjár eftir ótrú­lega vel­gengni und­an­farna mán­uði. Félagið skil­aði hagn­aði upp á 18 millj­arða Banda­ríkja­dala á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins í fyrra, eða um 2.300 millj­arða króna, og mun­aði þar ekki síst um gríð­ar­lega mikla sölu á iPhone 6 sím­anum. Hann seld­ist í tæp­lega 80 millj­ónum ein­taka á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins í fyrra, eða sem nemur um 860 þús­und ein­tökum á degi hverjum að með­al­tali á tíma­bil­inu.

Þá átti fyr­ir­tækið 178 millj­arða Banda­ríkjdala í lausu fé, í lok síð­asta árs, eða sem nemur 23 þús­und millj­örðum króna. Þetta fé er fyr­ir­tækið nú að nota til fjár­fest­inga, en spurst hefur út að und­an­förnu að fyr­ir­tækið hygg­ist koma nýjum raf­magns­bíl í sölu árið 2020 og þannig koma sér fyrir á bíla­mark­aði. Þetta hefur þó ekki enn verið stað­fest með til­kynn­ingu til kaup­hallar en búist er við tíð­indum af þessum áformum áður en langt um líður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár