Risavaxnar fjárfestingar Apple í Danmörku og Írlandi

Hug­bún­aðar- og fjar­skipt­ar­is­inn Apple hyggst reisa gagna­ver við bæinn Viborg á Jótlandi í Danmörku fyrir rúm­lega 130 millj­arða króna, en frá þessi greindi Apple í frétta­til­kynn­ingu til Kaup­hallar í nótt. Dönsk yfir­völd hafa fagnað ákvörð­un­inni sér­stak­lega, en þetta er stærsta erlenda fjár­fest­ingin í Danmörku það sem af er árinu. Apple til­kynnti á sama tíma um fram­kvæmdir við gagna­ver skammt frá bænum Athenry í Írlandi, en þær nema um 125 millj­örðum króna. Í heild er fjár­fest­ing Apple í þessum tveimur gagna­verum um 1,7 millj­arða evra, af því er segir í frétta­til­kynn­ingu Apple.

Tim Cook, for­stjóri Apple, segir í frétta­til­kynn­ingu að for­svars­menn Apple séu stoltir af fjár­fest­ingum í Evrópu og að orkan sem muni knýja gagna­verin áfram sé 100 pró­sent vist­væn, komi frá end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum. Í til­kynn­ingu Apple kemur enn fremur fram að 530 þús­und störf í Evrópu megi rekja beint til fram­leiðslu á Öpp-um sem aðgengi­leg eru í App Store, smá­forrita­vef­verslun Apple. Hjá Apple starfa 18.300 starfs­menn í nítján Evr­ópu­löndum, þar af hafa tvö þús­und starfs­menn verið ráðnir á und­an­förnum tólf mán­uðum, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu frá Apple.

Áætlað er að gagna­verin tvö verði til­búin árið 2017 og verði 166 þús­und fer­metrar að stærð. Gagna­verin verða notuð til þess að hýsa gagna­geymslur og síma­mið­stöðvar. Gert er ráð fyrir að upp­bygg­ing gagna­vera verði mikil og hröð næstu miss­eri, ekki síst vegna mik­ils vaxtar sam­fé­lags­miðla sem fólk notar til þess að deila upp­lýs­ingum, meðal ann­ars myndum og mynd­böndum, og til þess að þetta sé hægt þarf hýs­ingin að vera áreið­an­leg.

Apple hefur átt ótrú­legu gengi að fagna á und­an­förnum miss­erum og er með fulla vasa fjár til fjár­fest­inga. Laust fé í sjóðum fyr­ir­tæk­is­ins nemur 178 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur meira en 23 þús­und millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár