Gjöf upp á 840 milljónir - Fyrsta skóflustungan tekin að húsi jáeindaskanna

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­ala, tók í dag fyrstu skóflustung­una að hús­næði sem mun hýsa nýjan jáeindaskanna. Íslensk erfða­grein­ing færði íslensku þjóð­inni skann­ann að gjöf sem og allan til­heyr­andi tækja­kost og sér­hæft hús­næði undir hann. Verðmæti gjaf­ar­innar er rúmar 840 millj­ónir króna, að því er segir í til­kynn­ingu.

Flókinn og umfangs­mik­ill bún­aður fylgir skann­anum, svo sem öreinda­hrað­all sem fram­leiðir geisla­virk efni sem leita í sjúka vefi lík­am­ans. Jáeindas­kanni er oft­ast not­aður í krabba­meins­með­ferðum en hann er einnig hægt að nýta í tauga-, hjarta- og gigt­lækn­ingum.

Húsnæðið verður byggt við Land­spít­ala á Hring­braut, aðlægt skyldri starf­semi til að ná sem mestri skil­virkni og þæg­indum fyrir sjúk­linga. Gert er ráð fyrir að hús­næðið verði til­búið í sept­em­ber en þá verður skann­anum og bún­aði komið fyrir og hann prufu­keyrður. Áætlað er að skann­inn verði kom­inn í notkun um næstu ára­mót.

Markar tímamót við greiningu sjúkdóma

Jáeindas­kanni hefur ekki verið til á Íslandi en nýr skanni mun valda bylt­ingu í grein­ingu og með­ferð sjúk­dóma, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni. „Árlega hafa um 200 sjúk­lingar farið í jáeindaskanna til Dan­merkur en áætlað er að um 2.000 manns muni fara í skann­ann hér á landi á ári hverju. Jáeindas­kanni gefur nákvæmar upp­lýs­ingar um stað­setn­ingu og dreif­ingu krabba­meina. Með slíkar upp­lýs­ingar er hægt að gera geisla­með­ferð mark­viss­ari og fækka óþarfa skurð­að­gerðum. Skanninn mun gefa betri upp­lýs­ingar um útbreiðslu sjúk­dóma hjá um þriðj­ungi sjúk­linga og mun þar af leið­andi breyta með­ferð þeirra tölu­vert. Með mark­viss­ari með­ferð minnka auka­verk­anir og bata­horfur aukast. Að auki verður hægt að greina hvernig sjúk­dómar bregð­ast við með­ferð og því hægt að grípa fyrr inn í ef gera þarf breyt­ingar á með­ferð­inni. Að lokum mun jáeindas­kann­inn nýt­ast vel við rann­sóknar- og vís­inda­starf á Íslandi en hann er í dag orð­inn sjálf­sagður hluti af rann­sókn­ar­að­ferðum við marga sjúk­dóma,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár