Hlýrra loftslag ógnar framtíð sæskjaldbaka

Þrátt fyrir að áætlað sé að sæskjald­bökur hafi lifað í höfum jarðar í um 110 milljón ár er æxlun þeirra nokkuð við­kvæmt ferli. Hlýnandi lofts­lag hefur þegar orðið til þess að á ákveðnum svæðum heims­ins er mik­ill meiri­hluti sæskjald­baka sem klekj­ast úr eggjum kven­kyns. Haldi þró­unin áfram gæti það þýtt að í ekki svo fjar­lægri fram­tíð­inni klek­ist ein­göngu kven­dýr úr eggjum sæskjald­baka.

Æxlun sæskjald­baka er um margt ólík því sem þekk­ist hjá spen­dýrum. Þetta á sér­stak­lega við um það hvernig kyn afkvæma er ákvarðað. Í stað þess að kyn sé ákvarðað út frá kyn­litn­ingum, líkt og þekk­ist til dæmis hjá okkur mann­fólk­inu, er kynið fremur ákvarðað út frá hita­stig­inu sem umlykur eggið áður en það klekst út. Raunar er erfitt að greina hvort um karl­dýr eða kven­dýr sé að ræða fyrr en skjald­bakan nær kyn­þroska.

Þó svo að ástæð­urnar fyrir þessu séu ekki þekktar vitum við að jafn­vel smá­vægi­legar breyt­ingar á hita­stigi í umhverfi eggja sæskjald­baka geta haft afdrifa­ríkar afleið­ingar á kyná­kvörðun. Í hreiðrum þar sem hita­stigið er um 29 °C verður hlut­fall kven- og karl­dýra nokkuð jafnt. Þegar hita­stigið fer undir 27,7 °C verður útkoman sú að aðeins karl­kyns skjald­bökur klekj­ast úr eggj­unum. Þessu er öfugt farið þegar hita­stigið hækkar. Fari hita­stigið í sand­inum sem umlykur eggin yfir 31 °C …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár