Loftgæði - áhrif á andlega heilsu og líðan

Loftgæði í heim­inum eru mjög mis­jöfn og oft höfum við á Íslandi státað af tæru lofti á sama hátt og tæru vatni. Það kemur þó fyrir að loft­gæði á þétt­býl­ustu stöðum lands­ins spillist og mæl­ingar á svifryki eða óæski­legum loft­teg­undum fari yfir við­mið­un­ar­mörk.

Á slíkum dögum er fólki sem er við­kvæmt í lungum ráð­lagt að halda sig inn­an­dyra. Börn og ung­menni eru einnig hvött til að forð­ast óþarfa úti­veru. Að lokum eru það þeir sem telja sig ekki verða fyrir neinum áhrifum af slæmum loft­gæðum en eru ekki und­an­skildir nei­kvæðum áhrifum þess  að anda þessum ögnum að sér.

Loftgæði skipta máli

Áhrif loft­meng­unar eru enn ekki að fullu skil­greind. Ástæða þess er að miklu leyti  sú að loft­mengun getur sam­an­staðið af svo ótal­mörgum efnum og ögnum að nær ómögu­legt er að greina þær allar. Eitt er þó sam­eig­in­legt með allri loft­mengun – hvernig sem hún er sam­sett – hún er ekki jákvæð.

Loft­gæðin á jörð­inni eru ekki bara mis­jöfn eftir því hvar við erum stödd, þau eru í raun líka mis­jöfn í tíma. Öll sú þróun sem farið hefur fram í að hreinsa óæski­leg efni úr lofti, breyta skipu­lagi á losun á sorpi og upp­græðsla lands hefur haft sín áhrif á þau loft­gæði sem við búum við í dag. Að sama skapi má einnig benda á að með vax­andi fólks­fjölda hefur áhrifa­völdum á loft­gæðin okkar líka auk­ist, þ.e. upp­runi loft­meng­unar eykst í sam­hengi við fjölgun fólks.

Ungmenni sérlega viðkvæm

Rannsókn sem var birt í Psychosomatic Medicine í byrjun sept­em­ber, gefur vís­bend­ingar um að loft­mengun geti ýtt undir kvíða og þung­lynd­is­ein­kenni hjá ung­mennum. Rann­sóknin var unnin við Stanford-háskóla. Í henni eru 144 ung­menni fengin sem sjálf­boða­liðar til að taka þátt í að leysa verk­efni, sam­hliða líf­eðl­is­fræði­legum mæl­ingum, sem eiga að meta and­legt ástand þátt­tak­end­anna.

Rann­sóknin byggð­ist meðal ann­ars á því að safna upp­lýs­ingum um þátt­tak­endur með spurn­inga­lista. Þar voru þátt­tak­endur beðnir um að svara spurn­inga­lista um lífs­hætti sína. Meðal ann­ars voru þau beðin um að segja hvar þau byggju og leggja mat á and­lega heilsu sína.

Þátt­tak­endur voru beðnir um að leysa þrautir á borð við að kynna sögu fyrir hópnum og leysa flókin reikn­ings­dæmi. Á meðan öllu þessu stóð voru ung­mennin tengd við ýmsa nema sem skynja hjart­slátt, svita­myndun og aðra líf­eðl­is­fræði­lega þætti sem tengj­ast kvíða.

Öll ung­mennin sýndi  streitu­merki við að leysa verk­efnin. Það var mælt með auknum hjartslætti og auk­inni svita­myndun. Mesta streitu­aukn­ingin mæld­ist þó hjá þeim ung­mennum sem bjuggu nálægt svæðum þar sem mengun er mikil.

Þótt auð­vitað sé eðli­legt að fá auk­inn hjart­slátt við álag voru við­brögð þeirra sem bjuggu nálægt mik­illi mengun mun meiri en þeirra sem það gera ekki. Þegar aðrar breytur voru skoð­aðar, svo sem heim­il­is­að­stæður, tekjur for­eldr­anna eða sam­setn­ing fjöl­skyld­unnar sást engin fylgni við aukin streitu­við­brögð.

Þessar nið­ur­stöður end­ur­spegl­uðu mat ung­menn­anna á sjálf sig. Ungmenni sem töldu sig glíma við þung­lyndi eða kvíða bjuggu yfir­leitt nálægt meiri mengun en þau sem ekki töldu sig glíma við þung­lyndi eða kvíða.

Er mengun að ýta undir streitu?

Þessi rann­sókn opnar auð­vitað á þá spurn­ingu hvort við gætum bætt lífs­gæði okkar og barn­anna okkar til muna með því að flytja á fámenn­ari stað þar sem svifryks­mæl­ingar fara sjaldnar yfir við­mið­un­ar­mörk.

Eins og staðan er núna ætti eng­inn að gera dramat­ískar breyt­ingar á sínum lífs­háttum, þrátt fyrir þessa rann­sókn. Frekari rann­sóknir gætu leitt í ljós hversu mikil áhrif er raun­veru­lega hægt að skýra með loft­mengun. Í þess­ari rann­sókn er ekki endi­lega ljóst hvort það er meng­unin sjálf sem veldur auk­inni streitu. Hér er ein­ungis sýnt fram á fylgni milli meng­unar og streitu, en ekki endi­lega orsaka­sam­hengi þar á milli.

Þrátt fyrir það eru þessar nið­ur­stöður enn einn styrkt­ar­bit­inn í rann­sóknir sem sýna hversu mikil áhrif loft­mengun getur haft á lýð­heilsu. Rann­sóknir sem þessar eru miklu frekar skila­boð til yfir­valda um að búa til kerfi sem dregur úr loft­mengun, þar sem mik­ill ósýni­legur kostn­aður getur falist í því að búa við loft­mengun og þar af leið­andi minni lífs­gæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár