Mynd: Bára Huld Beck

Hvernig ætla þingflokkarnir að bregðast við metoo-byltingunni?

Í kjöl­far þús­unda und­ir­skrifta kvenna – þar sem kyn­bundnu ofbeldi og áreitni var mót­mælt – og hund­raða frá­sagna sem fylgdu, hafa spurn­ingar vaknað hvernig verk­ferlum sé háttað eftir metoo-bylt­ing­una hjá fyr­ir­tækjum og stofn­unum.

Konur úr öllum heims­hornum hafa greint frá og lýst reynslu sinni af kyn­bundnu ofbeldi, áreitni og mis­munun sem á sér stað. Íslenskar konur hafa gert slíkt hið sama en konur í stjórn­málum riðu á vaðið og mót­mæltu þess­ari menn­ingu þann 24. nóv­em­ber á síð­asta ári.

Síðan þá hefur fjöldi starfs­stétta og sam­fé­lags­hópa gefið út yfir­lýs­ingar þar sem kyn­ferð­is­legu áreiti, ofbeldi og mis­munun er mót­mælt. Krafan er skýr: Konur vilja breyt­ingar, að sam­fé­lagið við­ur­kenni vand­ann og hafna núver­andi ástandi. Þær krefj­ast þess að sam­verka­menn þeirra taki ábyrgð á gjörðum sínum og að verk­ferlar og við­bragðs­á­ætl­anir verði gang­settar.

En hvernig hafa þing­flokkar á Alþingi brugð­ist við þessum umræðum? Er allt við það sama eða hafa verk­ferlar og við­bragðs­á­ætl­anir verið settar í gagnið? Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á alla flokk­ana og kom í ljós að mis­jafn­lega mikil vinna hafði verið lögð í breyt­ingar eftir metoo-umræðu síð­ustu miss­era.

Bættar siðareglur á Alþingi

Samþykkt var þings­á­lykt­un­ar­til­laga í byrjun júní þar sem tvær breyt­ingar voru gerðar á siða­reglum alþing­is­manna og má draga þá ályktun að áhrif metoo-umræðna hafi átt þar stóran þátt. Þverpóli­tísk sátt var um málið þar sem flutn­ings­menn voru úr öllum flokkum.

Í fyrsta lagi var lögð fram breyt­ing­ar­til­laga sem kveður á um að alþing­is­menn verði að leggja sig fram um að skapa í störfum sínum heil­brigt starfs­um­hverfi innan þings sem utan og hvar­vetna þar sem þeir sinna störfum sínum þar sem hafnað er hvers konar kyn­ferð­is­legri eða kyn­bund­inni áreitni, ein­elti eða annarri van­virð­andi fram­komu.

Í öðru lagi var lagt til að á eftir sjö­undu grein siða­regln­anna kæmi ný grein sem hljóðar svo: „Þingmenn skulu ekki sýna öðrum þing­mönnum, starfs­mönnum þings­ins eða gestum kyn­ferð­is­lega eða kyn­bundna áreitni, leggja þá í ein­elti eða koma fram við þá á annan van­virð­andi hátt.“

Þing­flokkur Vinstri grænna seg­ist í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að sjálf­sögðu fylgja almennum siða­reglum þing­manna og svo sé stjórn VG að vinna að verk­lags­reglum sem full­trúi þing­flokks tekur þátt í.

Nýjar verklagsreglur

Samkvæmt svari Pírata við fyr­ir­spurn Kjarnans hefur gras­rót flokks­ins ásamt ábyrgð­ar­að­ilum hans unnið að verk­lags­reglum um bann við áreitni frá því í jan­úar, þar á meðal kyn­ferð­is­legu og kyn­bundnu áreitni og ofbeldi. Þær skil­greina brot­lega hegðun, leiðir til að til­kynna um hana, rétt­láta máls­með­ferð fyrir bæði þolendur og meinta ger­endur, og við­ur­lög við brotum.

Sú vinna er langt komin, segir í svar­inu, og er öllum boðið að taka þátt í þeirri vinnu. Þing­flokkur Pírata muni falla undir þær reglur. Í til­lög­unum sem í vinnslu eru segir meðal ann­ars: „Ein­stak­lingar sem telja sig þolendur ólögmæts fram­ferðis eru hvattir til að bregð­ast við eins fljótt og auðið er. Þolandi getur valið óform­legt eða form­legt ferli … Allar til­kynn­ingar og ásak­anir um ólögmætt fram­ferði skulu meðhöndl­aðar með var­færni til að vernda frið­helgi við­kom­andi ein­stak­linga og tryggja trúnað eins og auðið verður.“

Einnig kemur fram að bregð­ast skuli taf­ar­laust og röggsam­lega við til­kynn­ingum og ásökunum um ólögmætt fram­ferði.

Misjafnlega mikil vinna hefur verið lögð í vinnureglur hjá þingflokkunum eftir metoo-umræður síðustu missera.
Mis­jafn­lega mikil vinna hefur verið lögð í vinnu­reglur hjá þing­flokk­unum eftir metoo-umræður síð­ustu miss­era.

Sérstök trúnaðarnefnd sett á fót

Samkvæmt þing­flokks­for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar fer flokk­ur­inn eftir stefnu og verk­lags­reglum sem unnar hafa verið innan flokks­ins.

„Í kjöl­far metoo-bylt­ing­ar­innar setti fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar á fót nefnd sem falið var að fara yfir verk­lag flokks­ins þegar upp koma áreitnis-, ofbeldis- eða ein­elt­is­mál. Reyndar hafði sú vinna farið af stað árið 2016 en þá var leitað til sér­fræð­inga um mál­efnið. Afrakst­ur­inn af vinnu nefnd­ar­innar var upp­færðar siða­reglur flokks­ins, stefna gegn ein­elti og áreitni og verk­lags­reglur um með­ferð mála. Þessi skjöl voru sam­þykkt ein­róma á lands­fundi flokks­ins í mars,“ segir í svari þing­flokks­ins. Með sam­þykkt lands­fundar og inn­leið­ing­ar­vinnu fram­kvæmda­stjórnar séu þessi þrjú skjöl nú í fullu gildi.

Meðal þess sem inn­leið­ing þessa nýja verk­lags felur í sér er að til starfa tekur trún­að­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar. Trún­að­ar­nefnd­inni ber skylda til að taka til umfjöll­unar öll áreitis-, ofbeldis- eða ein­elt­is­mál sem inn á borð hennar koma, óháð umfangi eða aldri erind­is­ins. Nefndin fjallar um erindi á trún­að­ar­fundum sínum, og grípur til við­eig­andi ráð­staf­ana í sam­ræmi við verk­lagið og lög og reglur flokks­ins. Jafn­framt kemur fram að tölvu­póstur sem sendur er á net­fangið trunadur@samfylking.is muni sjálf­virkt ber­ast öllum þremur nefnd­ar­mönnum, sem taki erindið í kjöl­farið til umfjöll­unar.

Enn fremur segir í svari Sam­fylk­ing­ar­innar að til starfa taki tveir trún­að­ar­menn Sam­fylk­ing­ar­innar. Hægt sé að hafa sam­band við trún­að­ar­menn vilji fólk ekki senda erindi sitt beint til trún­að­ar­nefnd­ar­innar eða vilji ráð­færa sig við ein­hvern í trún­aði um næstu skref.

Trúnaðarráð tekur við málum

Í svari frá Viðreisn segir að flokk­ur­inn standi heils­hugar að baki þeim konum sem rofið hafa þögn­ina um kyn­ferð­is­legt áreiti, ofbeldi og vald­beit­ingu.

„Í tengslum við metoo-umræð­una var ákveðið á Lands­þingi Við­reisnar í mars sl. að setja á lagg­irnar sér­stakt trún­að­ar­ráð innan flokks­ins. Mark­miðið er að tryggja að komi sú staða upp að félags­fólk Við­reisnar verði fyrir beinni eða óbeinni mis­munun, kyn­bund­inni áreitni, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bundnu ofbeldi eða ein­elti í tengslum við störf sín í flokknum verði tekið á því af festu af óháðum og til þess bærum aðilum,“ segir í svar­inu.

Trún­að­ar­ráð taki þannig við málum, meti, komi í við­eig­andi far­veg og fylgi eftir til­kynn­ingum sem ráð­inu ber­ast og tryggi að þær fái við­eig­andi með­ferð sam­kvæmt verk­lags­reglum ráðs­ins. Þeir ein­stak­lingar sem sitja í trún­að­ar­ráð­inu eru – ásamt fram­kvæmda­stjóra Við­reisnar – full­trúar í sam­starfs­hópi allra stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á Alþingi, þar sem stefnt er að því að vinna sam­eig­in­lega að hand­bók og vinnu­lagi um mál sem geta fallið undir slík ráð. Þá er hóp­ur­inn að vinna að siða­reglum fyrir flokk­ana.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tekur þátt í starfi stjórn­mála­flokk­anna og er með full­trúa í vinnu sem fer fram á þeim vett­vangi, segir í svari þing­flokks­ins. Auk þess hafi fram­kvæmda­stjórn og þing­flokkur fundað um þessi mál og umræða um þessi mál farið fram á Flokks­þingi.

Trúnaðarráðsmenn skipaðir í haust

Mið­flokk­ur­inn sam­þykkti á sínu fyrsta lands­þingi sem haldið var nú í vor að í lögum flokks­ins skyldi vera ákvæði um sam­skipti flokks­manna. Í lög­unum er fjallað meðal ann­ars um skipan trún­að­ar­ráðs­manna en það mun verða gert í haust á fyrsta fundi flokks­ráðs, sam­kvæmt svörum frá Mið­flokknum.

„Flokks­ráð Mið­flokks­ins skipar tvo trún­að­ar­menn, ekki sam­kynja, í trún­að­ar­ráð. Full­trúar í trún­að­ar­ráði geta verið úr sama kjör­dæmi en skulu ekki tengj­ast að öðru leyti. Trún­að­ar­ráð skal setja sér verk­lags­reglur og leggja fyrir stjórn flokks­ins til sam­þykktar. Verk­lags­regl­urnar skulu birtar á heima­síðu flokks­ins,“ segir í lögum Mið­flokks­ins.

Segir enn fremur að trún­að­ar­ráð taki við ábend­ingum frá félags­mönnum vegna sam­skipta­vanda innan Mið­flokks­ins, svo sem ein­elti, áreitni, ofbeldi eða mis­munun. Trún­að­ar­ráði beri að gera stjórn flokks­ins við­vart þegar ábend­ing berst frá félags­manni og taka mál við­kom­andi fyrir, leita lausna eða og koma því í réttan far­veg til úrlausnar hjá við­eig­andi sér­fróðum aðilum eftir því sem við á. Trún­að­ar­ráð, stjórn eða máls­að­ilar geti óskað eftir því að sér­fróður aðili sé kall­aður til sem odda­maður trún­að­ar­ráðs ger­ist þess þörf.

Trún­að­ar­menn skuli gæta fyllsta trún­aðar við störf sín. Þeir skuli upp­lýsa þann sem kvartað er yfir um eðli kvört­un­ar­innar og gefa við­kom­andi færi til and­mæla. Komist trún­að­ar­menn að þeirri nið­ur­stöðu að flokks­maður hafi brotið gegn reglum þessum skuli honum umsvifa­laust vikið úr flokknum.

Tóku þátt í umræðudegi

Í svari þing­flokks Flokks fólks­ins segir að þau hafi rætt málið í sínum hópi síð­asta vetur og tekið þátt í umræðum á Alþingi. Þing­flokk­ur­inn hafi jafn­framt tekið þátt í umræðu­degi sem efnt var til af þessu til­efni á Alþingi.

„Þing­flokk­ur­inn hafnar allri mis­munum og áreitni í garð ann­ars fólks og virðir rétt beggja kynja til að lifa sínu lífi án áreitis,“ segir í svar­inu en þar kemur enn fremur fram að á vett­vangi þing­flokks­ins hafi verk­lags­reglur um þetta efni ekki verið samdar.

Þing­flokkur sjálf­stæð­is­manna hefur sem slíkur ekki sett sér neinar reglur að þessu leyti en full­trúar þing­flokks­ins hafa hins vegar tekið þátt í þeirri vinnu sem fram hefur farið á vegum Alþingis á þessu sviði, bæði varð­andi breyt­ingar á siða­reglum og hvernig brugð­ist skuli við innan þings­ins þegar til­felli af þessu tagi koma upp, segir í svari Sjálf­stæð­is­flokks­ins við fyr­ir­spurn­inni.

„Þá skip­aði mið­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins nefnd fyrr á árinu til að fara yfir stöðu þess­ara mála í flokks­starf­inu og til að und­ir­búa til­lögur um verk­ferla, við­bragðs­á­ætl­anir og aðrar aðgerðir að þessu leyti innan flokks­ins. Sú vinna nær auð­vitað til þing­flokks­ins eins og ann­arra stofn­ana flokks­ins. Loks hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að sjálf­sögðu tekið þátt í sam­starfi stjórn­mála­flokk­anna á þessu sviði, sem meðal ann­ars hefur birst í funda- og ráð­stefnu­haldi um þessi mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár