Pólverjar rjúfa 20 þúsund íbúa múrinn á Íslandi

Pólskum rík­is­borg­urum fjölg­aði hér á landi um 5 pró­sent á átta mán­uðum.

Flestir erlendir rík­is­borg­arar búsettir hér á landi eru frá Póllandi eða 20.146. Þetta kemur fram í nýj­ustu tölum Þjóð­skrár.

Pólskum rík­is­borg­urum hefur fjölgað um 5 pró­sent frá 1. des­em­ber síð­ast­liðnum eða um 956.

Alls voru 47.304 erlendir rík­is­borg­arar búsettir hér á landi þann 1. ágúst síð­ast­lið­inn og hefur þeim fjölgað um 3.148 frá 1. des­em­ber 2018 eða um 7,1 pró­sent. Á sama tíma fjölg­aði íslenskum rík­is­borg­urum sem eru búsettir hér á landi um 0,5 pró­sent.

Í hag­töl­unum kemur jafn­framt fram að 4.455 ein­stak­lingar séu með lit­háískt rík­is­fang og hafi þeim fjölgað um 8,8 pró­sent eða um 361 á sama tíma­bili.

Flutn­ings­jöfn­uð­ur­inn aldrei verið hærri en síð­ustu tvö ár

Árið 2018 flutt­ust 6.556 fleiri til Íslands en frá land­inu. Það eru nokkuð færri en metárið 2017 þegar aðfluttir umfram brott­flutta voru 8.240. Flutn­ings­jöfn­uður hefur aldrei verið hærri en síð­ustu tvö ár en næst þeim koma árin 2006 og 2007 þegar um 5.200 fleiri flutt­ust til lands­ins en frá því.

Í fyrra flutt­ust alls 3.897 ein­stak­lingar með pólskt rík­is­fang til lands­ins og Pól­verjar vor­u einnig ­fjöl­menn­astir þeirra erlendu rík­is­borg­ara sem fluttu frá land­inu árið 2018 eða alls 1.707 ein­stak­ling­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár