Bæjarstjórinn hvetur starfsfólk leikskóla í Reykjavík til að sækja um í Kópavogi

„Í ljósi stöð­unnar í Reykja­vík hvet ég starfs­fólk á leik­skólum borg­ar­innar til að kynna sér þau störf sem eru í boði í Kópavogi,” segir Ásdís Krist­jáns­dóttir í kjöl­far frétta af því að yfir­mönnun hafi verið til staðar á leik­skólum í Reykja­vík.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi segir skort á starfsfólki á leikskólum í Kópavogi.
Ásdís Krist­jáns­dóttir bæj­ar­stjóri í Kópavogi segir skort á starfs­fólki á leik­skólum í Kópavogi. Mynd: Aðsend

Ásdís Krist­jáns­dóttir, bæj­ar­stjóri í Kópavogi, hvetur starfs­fólk á leik­skólum Reykja­vík­ur­borgar til að sækja um lausar stöður í Kópavogi í færslu sem hún birti á Facebook. Hún segir skort á starfs­fólki, fag­lærðu og ófag­lærðu, meg­in­á­stæðu þess að börn kom­ast ekki fyrr inn á leik­skóla í Kópavogi.

Tilefni færsl­unnar er meint yfir­mönnun á leik­skólum í Reykja­vík. Í frétta­til­kynn­ingu sem skóla- og frí­stunda­svið Reykja­víkur sendi frá sér á mið­viku­dag kemur fram að leik­skólar borg­ar­innar hafi verið yfir­mann­aðir vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs. Í til­kynn­ing­unni, sem send var fjöl­miðlum í gær segir: ​„Það er mat skóla- og frí­stunda­sviðs að leik­skólar Reykja­vík­ur­borgar hafi á árinu 2021 verið yfir­mann­aðir um 1 til 2 stöðu­gildi á leik­skóla en sam­tals eru borg­ar­reknir leik­skólar 68. Á þessu ári var jafn­framt yfir­mönnun vegna hólf­unar og aðgerða í leik­skólum vegna Covid í upp­hafi árs og eru vís­bend­ingar um að ennþá sé eitt­hvað um yfir­mönnun sé tekið mið af rekstrar- og mönn­un­ar­lík­ani leik­skóla.​“

Frétta­til­kynn­ingin var send í kjöl­far þess að í áætl­unum borg­ar­innar, sem kynntar voru með til­kynn­ingu til Kaup­hallar á mánu­dag, kom meðal ann­ars fram að stöðu­gildi í leik­skólum yrðu færri á næsta ári heldur en á þessu ári.

Fjölga þurfti starfsmönnum „umfram það sem hefðbundið er“

Þessi breyt­ing er útskýrð nánar í frétta­til­kynn­ingu borg­ar­innar þar sem segir að ástæða þess að gert sé ráð fyrir færri stöðu­gildum á næsta ári en þessu ári sé að „starfs­mönnum var bætt við á leik­skólum borg­ar­innar vegna sótt­varn­ar­reglna sem gerðu ráð fyrir hólfun á vinnu­stöðum. Þess vegna fjölg­aði starfs­fólki leik­skóla á árunum 2020-2022 en dregst nú lítið eitt saman milli ára.“

Enn­fremur segir að leik­skólar Reykja­víkur eins og aðrar stofn­anir hafi þurft að glíma við óvenju­legar aðstæður í starf­semi sinni síð­ustu tvö árin sökum heims­far­ald­urs. „Til að halda leik­skólum opnum og tryggja þjón­ustu við barna­fjöl­skyldur í borg­inni, var m.a. farið í hólfanir og aðrar aðgerðir sem leiddu til þess að fjölga þurfti starfs­mönnum umfram það sem hefð­bundið er í venju­legu árferði.“

Ásdís vísar í þessar fréttir af fækkun stöðu­gilda í leik­skólum í Reykja­vík í færslu sinni. „Á leik­skólum Kópavogs er skortur á starfs­fólki, fag­lærðu og ófag­lærðu, megin ástæða þess að börn kom­ast ekki fyrr inn á leik­skóla bæj­ar­ins. Nú skyndi­lega virð­ist slíkur vandi ekki vera til staðar í Reykja­vík heldur þver­öf­ugt, leik­skólar borg­ar­innar eru ofmann­aðir! Biðlist­arnir í Reykja­vík eru samt enn langir. Í ljósi stöð­unnar í Reykja­vík hvet ég starfs­fólk á leik­skólum borg­ar­innar til að kynna sér þau störf sem eru í boði í Kópavogi,“ segir í færslu bæj­ar­stjór­ans.

Í til­kynn­ing­unni frá borg­inni kemur fram að áætlun árs­ins 2023 muni taka breyt­ingum, hún byggi á fjölda barna í leik­skólum borg­ar­innar í byrjun sept­em­ber 2022. Verði breyt­ingar á barna­fjölda eða nýr leik­skóli opni, þá verði þá bæt­ist við grunn­á­ætl­un­ina sem birt var í vik­unni. Verið sé að yfir­fara mönnun allra stofn­ana í sam­an­burði við mönn­un­ar­líkön og fjár­heim­ildir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leikskólar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár