Ísland spilltasta land Norðurlandanna áttunda árið í röð

Ísland er spilltasta ríki Norð­ur­land­anna sam­kvæmt nýrri úttekt Transparency International. Ákveðið bakslag hefur átt sér stað í bar­átt­unni gegn spill­ingu hér á landi en Ísland hefur hrapað niður úr 1. sæti árið 2006 í 14. sæti árið 2018.

Ísland er enn og aftur spilltasta land Norðurlandanna samkvæmt lista Transaparency International fyrir árið 2018. Samtökin reikna út sérstaka spillingarvísitölu fyrir 180 lönd og raðar þeim á lista, spillingarvísitalan nær frá 0 upp í 100 þar sem 0 er algjör spilling en 100 engin spilling. Ísland lækkar í einkunn þriðja árið í röð og mælist nú með aðeins 76 stig af hundrað og situr í 14 sæti. Öll önnur ríki á Norðurlöndum skipa sér í sjö efstu sætin á listanum.

Bakslag í baráttunni gegn spillingu hér á landi

Danmörk er efst á listanum sem það ríki veraldar þar sem minnst spilling ríkir með 88 stig af hundrað. Fjórtán af þeim tuttugu ríkjum þar sem minnst spilling ríkir tilheyra Vestur-Evrópu en Sómalía er spilltasta ríkið á listanum með aðeins 10 stig. Í skýrslu Transperncy International segir að það gangi illa að berjast gegn spillingu í heiminum en síðan 2012 hafa aðeins 20 lönd bætt sig þegar það kemur að baráttunni gegn spillingu en alls 43 lönd staðið í stað.

Spill­ing­ar­vísi­tala Tran­spareny International er byggð á á­liti sér­fræð­inga sem og almennri skynjun á spill­ingu í opin­berum stofn­unum og ­stjórn­sýslu. Stofnunin sækir upplýingar sínar til allt að tólf mismunandi greiningarfyrirtækja og hvað Ísland varðar eru notaðar fimm gagnauppsprettur. Þau lönd sem fá hæsta ein­kunn eiga það sam­eig­in­legt að þar er ­stjórn­sýsla opin og almenn­ingur getur dregið stjórn­endur til ábyrgð­ar. Lægst­u ­ein­kunnir fá lönd þar sem mútur eru algeng­ar, refsi­leysi ríkir gagn­vart ­spill­ingu og opin­berar stofn­anir sinna ekki hlut­verki sínu í þágu borg­ar­anna.

Ákveðið bakslag hefur átt sér stað í baráttunni gegn spillingu hér landi en í ár lækkar Ísland í einkunn þriðja árið í röð. Ísland var í fyrsta sæti listans árin 2005 og 2006 en frá efnahagshruninu 2008 hefur leiðin legið niður á við. Árið 2010 var Ísland í 10. sæti en síðustu þrjú ár hefur Ísland rokkað á milli 13. og 14. sæti listans. Ísland telst enn vera það land Norðurlanda þar sem mest spilling þykir ríkja en frá árinu 2010 höfum við raðast aftast allra Norðurlandanna á listann. [adspot]

Meirihluti Íslendinga telur að margir eða nánast allir stjórnmálamenn á Íslandi séu viðriðnir spillingu

[links]Samkvæmt mælingum samtakanna Transaparency International hefur íslenskum ráðamönnum því ekki tekist að snúa viðhorfi Íslendinga við gagnvart spillingarhættum og spillingu í landinu eftir hrun. Kannanir hér á landi hafa sýnt svipaðar niðurstöður en í desember birti Félagsvísindastofnun könnun þar sem fram kom að tveir af hverjum þremur Íslendingum telja að margir eða allir íslenskir stjórnmálamenn séu spilltir.

Könnunin var framkvæmd dagana 4. til 17. desember sem þýðir að könn­unin var gerð eftir að fréttir um hið svo­kall­aða Klaust­urs­mál hófu að birt­ast. Í könnunni kom fram að fjöldi þeirra sem telja marga eða alla stjórnmálamenn á Íslandi viðriðna spillingu hefur næstum því tvöfaldast frá árinu 2016. Alls telja 65 pró­sent lands­manna að margir eða nán­ast allir stjórn­mála­menn á Íslandi séu viðriðnir spill­ingu. Að sama skapi telja ein­ungis tvö pró­sent lands­manna að nán­ast engin þing­maður sé spillt­ur, en það hlut­fall var sjö pró­sent árið 2016 . Þetta er talsverð aukning frá árinu 2016, þegar Panama­skjölin voru opin­beruð, en þá töldu 34 pró­sent lands­manna að margir eða nán­ast allir íslenskir stjórn­mála­menn væru spillt­ir.

Auk þess segjast fleiri ekki treysta Alþingi neitt í könnunni en gerðu það fyrir fimm árum síðan þegar sömu spurn­ingar voru lagðar fyrir í sam­bæri­legri könn­un. Nú segj­ast 18 pró­sent lands­manna bera alls ekk­ert traust til Alþingis en það hlut­fall var 16 pró­sent árið 2013. Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar kemur jafnframt fram að 62 pró­sent lands­manna telja að það myndi auka traust þeirra til Alþingis mikið ef meira væru um afsagnir þing­manna í kjöl­far mis­taka.

Tuttugu prósent segjast bera traust til fjármálakerfisins

Græðgi, spill­ing, hrun og okur voru orðin sem komu upp í hug­ann hjá þjóð­inni þegar fólk var spurt um fjármálakerfið hér á landi, í könnun fyrir starfshópinn sem vann að Hvítbókinni um fjármálakerfið í fyrra. Traust á fjármálakerfinu hefur þó farið hægt og bítandi upp á við, en um 20 prósent sögðust berast traust til fjármálakerfisins í sömu könnun.

Algengasta ástæðan sem fólk nefndi, þegar það var spurt út í það hvernig mætti auka traust á fjármálakerfinu, var oftast nefnt að bæta mætti kjörin og þjónustuna. Um 26,4 prósent svarenda nefndu að bæta mætti vaxtakjörin og rúmlega 20 prósent að draga þyrfti úr græðgi og spillingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

spilling

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár