647. spurningaþraut: + & x & ÷ & =

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir torgið á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað heitir hinn umdeildi for­seti Brasilíu?

2.  Sigrún Helga­dóttir fékk á dög­unum íslensku bók­mennta­verð­launin í flokki fræði­rita fyrir ævi­sögu sem hún skrif­aði um ... hvern?

3.  Hvaða ríki hefur lengstu strand­lengju í heimi?

4.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Manila?

5.  Ascot heitir smá­bær á Englandi, ekki all­fjarri London. Bærinn er frægastur fyrir hvað?

6.  Hversu margir ráð­herrar sitja nú í rík­is­stjórn Íslands?

7.  Hversu margar millj­óna­borgir eru í Kína? Hér má muna tíu til eða frá.

8.  Frænkur tvær eru nefndar stór­kjafta og þykkvalúra. Hverjar eru þær?

9.  Hvaða atburður skyggði á aðra sem gerð­ust í ver­öld­inni 6. júní 1944?

10.  Einn allra vin­sæl­asti tón­list­ar­maður heims­ins hefur und­an­far­inn ára­tug gefið út nokkrar plötur sem bera nafn hans og svo táknin + (plús), x (marg­földun), ÷ (deil­ing) og í fyrra = (sama­sem). Hvað heitir þessi geð­þekki og stærð­fræði­lega þenkj­andi söngv­ari?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá aug­lýs­ingaplakat fyrir bíó­mynd­ina ...

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Bol­son­aro.

2.  Sigurð Þór­ar­ins­son.

3.  Kanada.

4.  Fil­ipps­eyjar.

5.  Kapp­reiðar.

6.  Tólf.

7.  Samkvæmt Wikipedia eru þær 105, svo rétt er allt frá 95 til 115.

8.  Fisk­teg­undir.

9.  Innrásin í Normandy.

10.  Ed Sheerean.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Torgið er Pét­urs­torgið í Vatík­an­inu.

Bíó­myndin er Orr­ustu­skipið (eða Beiti­skipið) Potemkin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár