Gildi: Vegna tengsla þarf ákvörðunin að vera hafin yfir vafa

Gildi líf­eyr­is­sjóður er meðal stærstu eig­enda HB Granda.

Gildi líf­eyr­is­sjóður segir að til­laga sjóðs­ins, um að fá óháðan aðila til að fara yfir ýmis álita­mál er varð­aði fyr­ir­huguð kaup HB Granda á Ögurvík, hafi verið hugsuð til að gaum­gæfa álita­málin, enda þurfi slík við­skipti að vera hafin yfir vafa.

„Í til­lögu Gildis-líf­eyr­is­sjóðs felst ekki afstaða til umræddra við­skipta. Vegna tengsla milli aðila er hins vegar mik­il­vægt að ákvörð­un­ar­takan sé hafin yfir allan vafa. Í til­lög­unni felst að frek­ari upp­lýs­ingar þurfi að liggja fyrir áður en ákvörðun er tekin um við­skiptin, m.a. varð­andi mat á því hversu vel rekstur Ögur­víkur ehf. fellur að rekstri HB Granda hf., eins og nánar kemur fram í til­lögu sjóðs­ins. Hlut­hafa­fundi hefur verið fært end­an­legt ákvörð­un­ar­vald og telur Gildi í ljósi umfangs við­skipta og tengsla milli aðila að vanda þurfi alla máls­með­ferð,“ segir í til­kynn­ingu frá Gildi. 

Eins og greint var frá í dag, þá hefur Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hf., áður Brim, sent bréf til HB Granda þess efnis að best sé að falla frá við­skiptum með Ögurvík. Áður hafði stjórn HB Granda sam­þykkt að kaupa félagið af ÚR á 12,3 millj­arða króna, en hlut­hafa­fundur hafði verið boð­aður 16. októ­ber til að sam­þykkja kaupin og fjalla um þau.

Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri HB Granda, er jafn­framt stærsti eig­andi ÚR, sem á félagið Ögurvík. Þá er ÚR stærsti eig­andi HB Granda með rúm­lega þriðj­ungs­hlut í félag­inu. Gildi á 8,62 pró­sent hlut í félag­inu, og er þriðji stærsti eig­andi félags­ins. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna er næst stærsti eig­and­inn með 13,66 pró­sent hlut.

„Í til­lögu Gildis-líf­eyr­is­sjóðs felst ekki afstaða til umræddra við­skipta,“ segir í til­kynn­ingu frá sjóðnum. Þá segir enn fremur að hlut­hafa­fundur muni taka umrædd við­skipt til umfjöll­unar á hlut­hafa­fund­inum sem framundan er. „Fyrir hlut­höfum liggur nú að taka efn­is­lega afstöðu til máls­ins á hlut­hafa­fundi HB Granda hf. þann 16. októ­ber næst­kom­andi, þar á meðal til til­lögu Gildis um að lagt verði nán­ara mat á hvort við­skiptin séu hag­felld fyrir félagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár