Íslandsvinurinn og pullurnar í Phala-Phala

Cyril Ramaphosa, for­seti Suður-Afríku, er í veru­lega slæmum málum vegna ásak­ana um að hann hafi mis­beitt valdi sínu í tengslum við inn­brot á búgarð hans. Ramaphosa, sem var kjör­ræð­is­maður Íslands til fjölda ára, varð fyrir því að reiðufé að and­virði hálfs millj­arðs króna, var stolið í inn­brot­inu. Pen­ing­arnir voru geymdir undir sófa­p­ullum.

Sófaeigandinn frá Soweto
Sófa­eig­and­inn frá Soweto Cyril Ramaphosa, er fimmti í röð for­seta Suður-Afríku. Hann tók við emb­ætt­inu þegar Jacob Zuma hrökkl­að­ist að heita má úr því árið 2018. Mynd: AFP

Kvöld eitt í byrjun febr­úar 2020 mætti þjón­ustu­stúlka á búgarð­inum Phala-Phala í nyrsta hér­aði Suður-Afríku tveimur grímu­klæddum mönnum í einu af her­bergjum íbúð­ar­húss­ins. Henni var sjá­an­lega brugðið. Ekki þó yfir því að þar væru komnir tveir inn­brots­þjófar, heldur vegna þess hvar þeir voru staddir.

Þjón­ustu­stúlkan hafði nefni­lega skipu­lagt inn­brotið og sá nú að hjálp­ar­kokkar hennar voru að athafna sig í röngu her­bergi. Hún þurfti því að leið­beina þeim rétta leið. Hvar þeir fundu sófa. Og í þessum sófa, undir sófa­p­ull­unum, fundu þeir það sem þeir leit­uðu að. 

Reiðufé í bunkum. Andvirði hálfs millj­arðs íslenskra króna, að því er hermt hefur verið.

Svona hófst atburða­rás sem hefur orðið til þess að for­seti Suður-Afríku, Cyril Ramaphosa, berst nú fyrir póli­tísku lífi sínu. For­set­inn, sem átti bæði búgarð­inn og pen­ing­ana sem stolið var þaðan, er nú grun­aður um að hafa mis­beitt valdi sínu til þess að reyna að ná höndum …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár