Hæstiréttur staðfestir úrskurð Landsréttar – Vilhjálmur þarf ekki að víkja sæti

Hæsti­réttur hefur stað­fest úrskurð Lands­réttar þar sem kröfu Ólafs Ólafs­sonar var hafnað um að lands­rétt­ar­dóm­ar­inn Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son viki sæti í máli hans.

Hæsti­réttur stað­festi í gær úrskurð Lands­réttar þar sem kröfu Ólafs Ólafs­sonar var hafnað um að lands­rétt­ar­dóm­ar­inn Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son viki sæti í máli hans.

[links]Vil­hjálmur og með­dóm­arar hans í Lands­rétti höfn­uðu því með úrskurði sínum þann 4. októ­ber síð­ast­lið­inn að Vil­hjálmur væri van­hæfur til að dæma í áfrýj­uðu máli um end­ur­upp­töku Ólafs Ólafs­son­ar.

Vil­hjálmur er dóm­­ari í máli sem áfrýjað var til Lands­réttar þar sem tek­ist er á um kröfu Ólafs um end­­ur­­upp­­­töku á þætti hans í Al Than­i-­­mál­in­u. Ólafur Ólafs­­son krafð­ist þess að Vil­hjálmur viki sæti.

Í dómi Hæsta­réttar kemur fram að það eitt valdi ekki van­hæfi dóm­ara til með­ferðar einka­máls þótt hann hafi áður dæmt um annað sak­ar­efni í máli, sem aðili fyrr­nefnda máls­ins hefur átt aðild að.

„Því síður leiðir það eitt og sér til van­hæfis dóm­ara til með­ferðar máls þótt ein­hver honum nákom­inn hafi áður komið að rann­sókn eða úrlausn ann­ars sak­ar­efnis sem tengst hefur aðila að mál­inu. Að þessu virtu verður stað­fest sú nið­ur­staða hins kærða úrskurðar að vinna Finns Vil­hjálms­sonar við rann­sókn á vegum rann­sókn­ar­nefndar Alþingis, sem fjall­aði um þátt­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser Pri­vat­banki­ers KGaA í einka­væð­ingu Bún­að­ar­banka Íslands hf., og skýrslu nefnd­ar­innar um rann­sókn­ina leiði ekki til þess að Vilhjámi H. Vil­hjálms­syni beri að víkja sæti sem dóm­ari í máli því sem til úrlausnar er fyrir Lands­rétti,“ segir í dómnum.

Krafa Ólafs var byggð á ákvæði í lögum um með­­­ferð einka­­mála sem kveður á um að dóm­­ari sé van­hæfur til að fara með mál ef fyrir hendi eru „önnur atvik eða aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlut­­drægni hans með réttu í efa.“

Í því sam­hengi var vísað til þrenns. Í fyrsta lagi myndi Vil­hjálmur vera náinn vinur Mark­úsar Sig­­ur­­björns­­son, sem var einn dóm­enda í Al Thani mál­inu og sat í for­­sæti í dóm­in­­um.

Í öðru lagi hefði sonur Vil­hjálms, Ingi Freyr Vil­hjálms­­son blaða­­mað­­ur, ritað tugi blaða­­greina um Ólaf þar sem jafnan væri fjallað um hann á afar nei­­kvæðan hátt.

Í þriðja lagi hefði annar sonur Vil­hjálms, Finnur Vil­hjálms­­son, verið sak­­sókn­­ari hjá emb­ætti sér­­staks sak­­sókn­­ara en síðar ráð­inn starfs­­maður rann­­sókn­­ar­­nefndar Alþingis sem rann­sak­aði sölu á eign­­ar­hlut rík­­is­ins í Bún­­að­­ar­­banka Íslands hf. Finnur var annar höf­undar skýrslu sem nefndin sendi frá sér þar sem kom­ist var að þeirri nið­­ur­­stöðu að Ólafur hefði beitt stjórn­­völd blekk­ing­­um. Erindi frá Ólafi vegna þeirrar máls­­með­­­ferðar allrar er nú til með­­­ferðar hjá Mann­rétt­inda­­dóm­stól Evr­­ópu.

Í til­kynn­ingu frá Ólafi sem hann sendi frá sér í dag segir hann að honum finnst það afar óheppi­legt að nú eigi að fara að dæma í máli hans, máli sem hefur teng­ingu við hrunið, og að dóm­ar­inn sé faðir blaða­manns­ins sem hafi haft það sem við­fangs­efni um langt ára­bil að skrifa nei­kvæðar greinar um hann.

„Þá er mér fyr­ir­munað að skilja, í ljósi þess­arar aðstöðu, hvers vegna Vil­hjálmur kaus ekki strax að hafa ekki afskipti af mál­inu. Það eru jú fimmtán skip­aðir dóm­arar við Lands­rétt og jafnan þrír sem dæma í hverju máli. Það hefði verið ein­fald­asti hlutur í heimi að úthluta mál­inu til ann­ars dóm­ara í stað­inn, án þess að í því fælist nokkur áfell­is­dómur. Þessi vinnu­brögð eru ekki til þess fallin að auka traust mitt á dóm­ur­unum í máli mínu eða íslensku dóms­kerfi yfir­leitt,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár