Blockchain-markaður væntanlegur á Ítalíu

Hluta­bréfa­mark­að­ur­inn í London hefur ákveðið að hrinda af stað upp­bygg­ingu Blockchain-hluta­bréfa­mark­aðar fyrir óskráð fyr­ir­tæki á Ítalíu.

Blockchain var upphaflega þróað fyrir sýndargjaldmiðilinn Bitcoin.
Blockchain var upp­haf­lega þróað fyrir sýnd­ar­gjald­mið­il­inn Bitcoin. Mynd: EPA

Hluta­bréfa­mark­að­ur­inn í London og tölvuris­inn IBM hafa ákveðið að búa til markað fyrir Blockchain-tækn­ina á Ítalíu, en mark­að­ur­inn á að sjá um útgáfu smárra og með­al­stórra hluta­bréfa ítal­skra fyr­ir­tækja. Þetta kemur fram á vef Reuters í dag.

Borsa Italiana, dótt­ur­fyr­ir­tæki hluta­bréfa­mark­að­ar­ins í London (LSEG) sér um upp­bygg­ingu og próf­anir á nýja mark­aðnum, en að sögn fyr­ir­tækj­anna myndu breyt­ing­arnar bæta úr upp­lýs­inga­flæði óskráðra fyr­ir­tækja.

Hvað er Blockchain?

Blockchain er færslu­kerfi sem upp­haf­lega var þróað í kringum raf­mynt­ina Bitcoin, en kerfið snýst um að hallda utan um dreifða færslu­skrá (distri­buted led­ger technology). Með dreifðri færslu­skrá eru allar færslur sem eiga sér stað skráðar og aðgengi­legar öllum sem tengdir eru kerf­inu. 

Blockchain er við­haldið af dreifðu neti margra tölva og krefst ekki aðkomu þriðja aðila. Færslur þurfa að vera sam­þykktar af öllum not­endum kerf­is­ins til þess að ganga í gegn, en þannig er upp­lýs­inga­flæði milli aðila tryggt.

Borsa Italiana mun not­ast við tækni­lausn­ina HyperLed­ger Fabric, sem er teg­und Blockchain-tækn­innar. Lausnin var nýlega gefin út af Hyperled­ger, félagi sem sér­hæfir sig í frjálsum hug­bún­aði, en með­limir þess eru meðal ann­ars Linux Foundation, IBM og LSEG.

[links]Löngum hefur verið mis­ræmi í upp­lýs­inga­söfnun um hlut­hafa smárra og með­al­stórra fyr­ir­tækja, en sum fyr­ir­tæki geyma slíkar upp­lýs­ingar aðeins á papp­írs­skjölum. Samkvæmt LSEG myndi Blockchain-tækni leiða til auk­ins gagn­sæis um eign­ar­hald þess­ara fyr­ir­tækja auk þess sem það myndi auð­velda sam­skipti milli fyr­ir­tækj­anna og hlut­hafa þeirra.

Framtíð greiðslumiðlunar

Margar fjár­mála­stofn­anir hafa litið hýrum augum til Blockchain-tækn­innar. Til dæm­ist minnt­ist Seðla­bank­inn á dreifða færslu­skrá sem mögu­legan grund­völl fyrir raf­væð­ingu reiðu­fjár nýjasta tölu­blaði Fjár­mála­inn­viða. Svíar hafa einnig tekið upp Blockchain-tækn­ina, en þessa stund­ina er slíkt kerfi í þróun hjá þeim til þess að skrá eign­ar­hald á jörðum.

Samkvæmt heim­ildum Reuters eru einnig leiddar líkur að því að orku­iðn­að­ur­inn muni skipta yfir í Blockchain-við­skipti innan árs. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bitcoin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár