Menntun verði metin til fjár

Í minn­is­blaði sem for­ysta BHM sendi til Bjarna Bene­dikts­sonar, for­sæt­is­ráð­herra, er fjallað um launa­þróun hjá félögum BHM. Kjara­við­ræður eru framundan.

Grund­vall­ar­krafa BHM og aðild­ar­fé­laga er sú að menntun verði metin til fjár, í kom­andi kjara­við­ræðum. Þetta er meðal þess sem kemur minn­is­blaði BHM sem sent var til Bjarna Bene­dikts­sonar, for­sæt­is­ráð­herra, 22. júní síð­ast­lið­inn, en það er birt hér með frétt­inni.

Í minn­is­blað­inu er rakin staðan sem nú blasir við í kjara­málum. Í kjöl­far setn­ingar laga nr. 31/2015 um kjara­mál til­tek­inna stétt­ar­fé­laga innan BHM var sér­stökum gerð­ar­dómi falið að ákvarða um kaup og kjör félags­manna um leið og bund­inn var endi á verk­falls­að­gerðir átján aðild­ar­fé­laga BHM.

Ákvarð­anir gerð­ar­dóms eru bind­andi sem kjara­samn­ingur á milli þess­ara félaga og rík­is­ins þann tíma sem gerð­ar­dóm­ur­inn kvað á um en hann gildir til 31. ágúst næst­kom­andi. Þá verða lausir kjara­samn­ingar 17 aðild­ar­fé­laga BHM við ríkið, að því er segir í minn­is­blað­inu.

Í minn­is­blað­inu er fjallað um kom­andi kjara­við­ræður, og helstu áherslu­mál BHM í við­ræð­unum.

Innan BHM und­ir­búa aðild­ar­fé­lögin 17 kom­andi kjara­samn­inga­við­ræður nú af kappi. Kröfu­gerð liggur ekki fyrir, en í minn­is­blað­inu eru samt rakin lág­marks­mark­mið sem þurfi að tryggja til að ná ásætt­an­legri nið­ur­stöðu.

Fyrir utan kjara­samn­ings­bundnar hækk­anir blasir við að í við­ræð­unum þarf að tryggja að lág­marki eft­ir­far­andi:

  • Að allir félags­menn BHM-17 sem rétt eiga á launa­hækkun sam­kvæmt mennt­un­ar­á­kvæði gerð­ar­dóms­fái hana. 
  • Að sér­kröfur aðild­ar­fé­lag­anna kom­ist á dag­skrá. 
  • Að launa­setn­ing félags­manna aðild­ar­fé­laga BHM hjá fjöl­mörgum rík­is­stofn­unum, ekki síst í heil­brigðis- og mennt­un­ar­geir­anum, verði end­ur­skoðuð. Sér­stak­lega þarf að huga að launa­setn­ingu félags­manna aðild­ar­fé­laga BHM á Land­spít­al­anum. 
  • Eftirmál sam­komu­lags um jöfnun líf­eyr­is­rétt­inda á milli mark­aða eru mörg og mik­il­væg. Staða nýrra opin­berra starfs­manna í nýju líf­eyr­is­kerfi er þar for­gangs­mál. 
  • Sam­komu­laga Banda­lags háskóla­manna, BSRB og Kenn­ara­sam­bands Íslands, ann­ars vegar, og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, f.h. rík­is­sjóðs, og Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, hins vegar, um breyt­ingar á skipan líf­eyr­is­mála opin­berra starfs­manna, frá 19. sept­em­ber, þarf að virða. 

„Starf nefndar um launa­jöfnun á milli mark­aða, sbr. 7. gr. sam­komu­lags­ins, þarf að vera í sam­ræmi við texta grein­ar­innar en þar segir: Sam­ráðs­hóp­ur­inn skal setja fram til­lögur að áætlun um hvernig mark­miðum um jöfnun launa skuli náð með útfærslu í kjara­samn­ingum á 6-10 árum. Hópurinn skal einnig fylgja eftir fram­kvæmd­inni. Innan sam­ráðs­hóps­ins eru aðilar ekki á einu máli um hvert hlut­verk hans sé og það þarf að skýra,“ segir í minn­is­blað­inu.

Þá segir í minn­is­blað­inu, að tæpum tveimur árum eftir úrskurð gerð­ar­dóms og rúmu einu ári eftir að mennt­un­ar­á­kvæði hans tók gildi sé staða aðild­ar­fé­lag­anna 17 innan BHM sú, að þorri félags­manna þeirra hafi enn ekki fengið launa­hækkun byggða á mennt­un­ar­á­kvæð­inu en stéttir utan BHM og þær sem kjara­ráð úrskurðar um hafa allar notið þess án til­lits til mennt­unar.

Minn­is­blaðið er hér með­fylgj­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár