Fjórðungur íslenskra karla á þrítugsaldri ekki flognir úr hreiðrinu

Ungir íslenskir karlar búa lengur í for­eldra­húsum en ungar íslenskar konur. Á árunum 2014 til 2016 bjuggu 26,8 pró­sent karla á aldr­inum 25 til 29 ára í for­eldra­húsum en aðeins 14,3 pró­sent kvenna.

Fjórð­ungur karla, 24,8 pró­sent, á aldr­inum 25 til 29 ára, bjuggu ennþá í for­eldra­húsum árið 2016. Það er tæp­lega 10 pró­sent hærra hlut­fall en hlut­fall kvenna, 15,6 pró­sent, á sama aldri. Alls búa í heild­ina fimmt­ungur Íslend­inga á þessum aldri ennþá í for­eldra­húsum.

Á milli ára má sjá svip­aðar tölur en á árunum 2014 til 2016 bjuggu 26,8 pró­sent karla í for­eldra­húsum en aðeins 14,3 pró­sent kvenna á sama ald­urs­tíma­bili. Frá þessu er greint í nýbirtum nið­ur­stöðum lífs­kjara­rann­sóknar Hagstofu Íslands.

Evrópskar konur flytja fyrr út en karlar

Hlutfall fólks á aldr­inum 25 til 29 ára sem býr í for­eldra­húsum er breyti­legt eftir Evr­ópu­löndum en með­al­talið innan Evr­ópu­sam­bands­ins var 39,6 pró­sent árið 2016. En sam­kvæmt heim­ildum Hag­stof­unnar flytja konur fyrr út en karlar í allri Evrópu. Árið 2016 reynd­ist hlut­fallið hæst í Króatíu 74,5 pró­sent en lægst í Danmörku en þar búa aðeins 5 pró­sent ungs fólks, 25 til 29 ára, heima hjá for­eldrum sínum.

Á Íslandi bjuggu 20,3 pró­sent ungs fólks ennþá heima hjá for­eldrum sínum árið 2016 en það er átt­unda lægsta hlut­fallið af lönd­unum í lífs­kjara­rann­sókn­inni. Hlut­fallið á Íslandi er meira en tvö­falt hærra en á hinum Norð­ur­lönd­unum sem röð­uðu sér í fjögur lægstu sætin. Í Finn­landi búa aðeins 6 pró­sent ungs fólks í for­eldra­húsum og 9 pró­sent í Svíþjóð og Noregi.

Karlar í hærra hlutfalli

Þegar litið er á ald­urs­hóp­inn 20-29 ára reynd­ust 34,4 pró­sent íslenskra kvenna en 44,1 pró­sent karla búa í for­eldra­húsum árið 2016. Þegar þró­unin er skoðuð frá upp­hafi lífs­kjara­rann­sókn­ar­innar, árið 2004, sést að hlut­fall ungra kvenna í for­eldra­húsum hefur auk­ist síðan það var lægst árið 2005 en þá var það 23 pró­sent. Hlutfall ungra karla í for­eldra­húsum hefur nokkurn veg­inn staðið í stað á sama tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íbúðahúsnæði

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár