Vilja grafa dýpra inn í Ingólfsfjall

Að mati Fossvéla hafa mestu áhrif efn­is­töku úr Ing­ólfs­fjalli þegar komið fram og íbúar og veg­far­endur muni ekki verða varir við að raskað svæði stækki, „það ein­fald­lega fær­ist lengra inn í fjallið,“ segir í nýrri frum­mats­skýrslu.

Þórustaðanáma í Ingólfsfjalli hefur verið starfrækt frá því á sjötta áratug síðustu aldar.
Þóru­staða­náma í Ing­ólfs­fjalli hefur verið starf­rækt frá því á sjötta ára­tug síð­ustu aldar. Mynd: Úr frummatsskýrslu

Foss­vélar hyggj­ast vinna allt að 27,5 millj­ónir rúmmetra af efni til við­bótar úr Ing­ólfs­fjalli í Ölfusi. Þóru­staða­náma hefur verið starf­rækt frá árinu 1957. Fyr­ir­hugað efn­is­töku­svæði er í sunn­an­verðu fjall­inu og er um að ræða áfram­hald­andi efn­is­töku innan þess svæðis sem nýtt hefur verið. Svæðinu hefur því þegar verið raskað að frá­töldu fyr­ir­hug­uðu efn­is­töku­svæði efst á fjall­inu. Heild­ar­stærð efn­is­töku­svæð­is­ins að vinnslu lok­inni yrði að mati Fossvéla 42,5 hekt­arar.

Ing­ólfs­fjall er hlíða­bratt móbergs­fjall með hraun­lögum inn á milli, einkum að neðan og í kolli. Hraun­lögin efst í koll­inum mynda bergstál eða hamra á þrjá vegu. Fjallið varð til um miðja ísöld og var sjáv­ar­höfði í lok ísaldar þegar sjáv­ar­staða var sem hæst.

[adspot]

Í nýfram­lagðri frum­mats­skýrslu um umhverf­is­á­hrif áfram­hald­andi efn­is­töku kemur fram að svæðið er hvorki frið­lýst né á nátt­úru­minja­skrá. Jafn­framt er ekki um að ræða jarð­mynd­anir sem njóta sér­stakrar verndar sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum. Sú jarð­myndun sem mest gildi hefur er grár mjög sér­stakur kletta­múli, Silf­ur­berg, sem skagar suður úr vest­ur­horni fjalls­ins. Jarð­mynd­unin er úr móbergi með ljósum holu­fyll­ingum sem aðal­lega eru geisla­steina­út­fell­ingar. Silf­ur­berg er utan áhrifa­svæðis fram­kvæmd­ar­innar.

Vinnsla efnis úr Þóru­staða­námu hefur staðið yfir ára­tugum saman og mikið efni hefur því verið tekið þaðan. Í frum­mats­skýrsl­unni segir að reynslan hafi sýnt að stað­setn­ing námunnar sé mjög hentug með til­liti til nálægðar við byggð­ar­lög í örum vexti og í nálægð við Suð­ur­lands­veg. „Mik­il­vægt er að fá efni sem ekki þarf að flytja langar vega­lengdir, fá efni sem unnið er úr námu með til­skilin leyfi og að haga efn­is­tök­unni á þann hátt að sem minnst áhrif verði á umhverfið.“

Í skýrsl­unni er bent á að stór­fram­kvæmdir séu fyr­ir­hug­aðar í nágrenni námunnar á næst­unni, m.a. tvö­földun Suð­ur­lands­vegar og ný brú yfir Ölfusá.

Efn­istaka, líkt og orðið gefur til kynna, felur í sér að jarð­efni eru tekin og flutt annað. Þau jarð­efni sem eru innan efn­is­töku­svæð­is­ins munu því hverfa að hluta og eftir verður geil í suð­ur­hlíð Ing­ólfs­fjalls. Á þetta við bæði um móbergið, sem er uppi­staðan í fjall­inu, sem og grá­grýtið á toppi fjalls­ins. Jarðefni verða flutt á brott og eru beinu áhrifin því var­an­leg og óaft­ur­kræf.

Ing­ólfs­fjall er áber­andi fjall sem gnæfir yfir flat­lend­inu og sker sig frá fjall­lend­inu í Grafn­ingi í norðri og vestri þar sem það skagar lengra til suð­urs út á flat­lendið. Brattar hlíðar fjalls­ins til suð­urs, vest­urs og aust­urs skapar skörp skil á milli fjall­lend­is­ins og lág­lend­is­ins sem umlykur það. Þóru­staða­náma er sýni­leg víða að frá svæðum sunnan við hana. Áhrif á lands­lag gætir nú þegar, þar sem efn­istaka hefur verið á svæð­inu síð­ustu ára­tugi. Einnig hafa verið gerðar slóðir og vegir um svæðið og háspennu­lína liggur fram hjá námunni, segir í frum­mats­skýrsl­unni.

Áforma efnistöku úr fjallstoppi

Að mati Fossvéla hafa mestu áhrif efn­is­tök­unnar þegar komið fram og munu íbúar og veg­far­endur ekki verða varir við að rask­svæði námunnar stækki, „það ein­fald­lega fær­ist lengra inn í fjallið,“ segir í skýrsl­unni. „Óraskað svæði á toppi fjalls­ins sem raskast verður fyrir nei­kvæðum sjón­rænum áhrifum en mjög fáir eru á ferli þar uppi og eru sjón­ræn áhrif þess rasks því tak­mörkuð.“

Þá segir að fyrst um sinn eftir að efn­is­töku lýkur verði áferð efn­is­töku­svæð­is­ins frá­brugðin öðrum hlutum fjalls­hlíð­ar­innar, „en með tíð og tíma munu vatn, vindar og jarð­skjálftar veðra og móta hlíð­ina og gefa henni nátt­úru­lega áferð og yfir­bragð. Það er þó langur tími þar til að efn­is­töku verður lokið og þangað til verða aug­ljós ummerki af efn­is­töku í Þóru­staða­námu eins og verið hefur. Þegar horft er til þess­ara atriða eru áhrif áfram­hald­andi efn­is­töku í Þóru­staða­námu á lands­lag og ásýnd metin tals­vert nei­kvæð“.

[adspot]

Ferða­menn og veg­far­endur á svæð­inu sem helst verða fyrir áhrifum frá Þóru­staða­námu er göngu­fólk sem gengur upp á Ing­ólfs­fjall um Djúpadal, skammt austan Þóru­staða­námu, og svo veg­far­endur sem stoppa á áning­ar­stað Vega­gerð­ar­innar við Kög­un­ar­hól.

Göngu­leið upp á Ing­ólfs­fjall er um Djúpadal, rétt austan við Þóru­staða­námu. Á göngu­leiða­korti Ferða­fé­lags Árnes­inga, þar sem merktar eru átta mis­mun­andi göngu­leiðir upp á fjallið, er göngu­leið um Djúpadal þar á meðal. Göngu­leiðin er sögð um 1,1 km upp á fjalls­brún og er flokkuð sem erfið göngu­leið. „Efn­istaka í Þóru­staða­námu hefur ekki hamlað upp­göngu um Djúpadal hingað til og að mati fram­kvæmda­að­ila hefur umferð göngu­fólks og starf­semi Fossvéla á svæð­inu farið saman án þess að hafa áhrif hvor á aðra. Engin stækkun er fyr­ir­huguð á athafna­svæði námunnar í átt að Djúpadal. Núver­andi göngu­leið upp Ing­ólfs­fjall um Djúpadal verður því áfram opin og öllum aðgengi­leg,“ segir í frum­mats­skýrsl­unni.

Nið­ur­staða mats­ins er að heild­ar­á­hrif fram­kvæmd­ar­innar verði óveru­leg. Í því felst að áhrif fram­kvæmd­ar­innar eru minni­háttar frá því sem nú er, með til­liti til umfangs svæð­is­ins og við­kvæmni þess fyrir breyt­ingum, ásamt þeim litla fjölda fólks sem verður fyrir beinum áhrifum. Náman er sýni­leg frá stóru svæði en umfang þeirra áhrifa munu aukast óveru­lega við áfram­hald­andi nýt­ingu, að mati fram­kvæmda­að­ila. Bein áhrif eru metin stað­bundin en sjón­ræn áhrif ná til mun stærra svæðis.

Allir geta kynnt sér frum­mats­skýrsl­una og lagt fram athuga­semdir. Athuga­semdir skulu vera skrif­legar og ber­ast eigi síðar en 4. júní 2020 til Skipu­lags­stofn­unar eða með tölvu­pósti á skipulag@skipulag.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vegagerð

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár