Pressa í hádeginu: „Aldrei nokkurn tíma séð svona hrikalegar aðstæður“

Morten Rostrup, norskur læknir sem starfað hefur á flestum átaka­svæðum í heim­inum á vegum Lækna án landamæra síð­ustu tæpu þrjá­tíu ár, seg­ist aldrei hafa séð annan eins hryll­ing og á Gaza. „Þessu verður að ljúka. Núna,“ segir Morten um loft­árásir Ísra­els­hers.

Við getum ekki horft upp á þetta lengur
Við getum ekki horft upp á þetta lengur Morten Rostrup hefur starfað sem læknir á flestum átaka­svæðum í heim­inum frá því árið 1996 en segir að hvergi hafi ástandið verið jafn skelfi­legt og á Gaza síð­ustu vikur. Tvær millj­ónir séu fastar á átaka­svæði undir stöð­ugum árásum og geta ekki flúið ,,Við getum ekki horft uppá þetta lengur. Þetta er hræði­legt. Þessu verður að ljúka. Núna." Mynd: úr einkasafni

Morten Rostrup var staddur í Osló þegar Pressa náði tali af honum en hann hefur verið í reglu­legum sam­skiptum við sam­starfs­fólk sitt sem starfar á Gaza síð­ustu tvo mán­uði.

Morten segir að á mið­viku­dag hafi hann fengið upp­lýs­ingar um að öllum vegum sem liggja að Al-Aqsa sjúkra­hús­inu, sem er á miðri Gazaströndinni, hafi verið lokað. Því hafi ekki verið hægt að koma þangað lyfjum, vatni, mat eða elds­neyti sem knýr raf­magnið þar. „Við erum í hættu á að klára elds­neytið alger­lega. Fólk í önd­un­ar­vélum mun deyja,“ segir Morten Rostrup.

Særð palest­ínsk börn bíða eftir lækn­is­að­stoðMyndin var tekin 5. des­em­ber á Nasser spít­al­anum í Khan Yunis á Gaza.

Hætta á útbreiðslu sjúkdóma

Hann segir að um helm­ingur sjúk­linga, sem koma á heilsu­gæslu­stöðvar þar sem starfs­fólk Lækna án landamæra starfar, séu börn yngri en fimm ára, „Við erum með marga sjúk­linga á barns­aldri með bruna­sár, alvar­leg bruna­sár.“

Þá séu sjúk­dómar þegar farnir að breið­ast út enda séu þrengslin yfir­gengi­leg, fólk geti ekk­ert flúið, sé inni­lokað. „Það er mikil hætta á útbreiðslu sjúk­dóma því að smit dreifast hratt,“ segir Morten og bætir við að ónæm­is­kerfi fólks á svæð­inu sé afar veik­burða „sem er afleið­ing þessa grimma hern­aðar í tvo mán­uði“.

Morten seg­ist hafa unnið á flestum stríðs­svæðum í heim­inum síðan árið 1996.

„Ég hef unnið í Írak, ég hef unnið í Sýrlandi, ég hef unnið í Afganistan, ég hef unnið í Líbíu.“ Aldrei hafi hann þó séð jafn­skelfi­legt ástand og ríki á Gaza. „Ég hef aldrei séð svona ástand þar sem tvær millj­ónir manna eru inni­lokuð á stríðs­svæði þar sem eru lát­lausar sprengju­árásir.“

„Hvar er þrýst­ing­ur­inn á Ísrael að stöðva þessar ómann­úð­legu sprengju­árásir á sak­lausa borg­ara?“

Á flestum átaka­svæðum, segir Morten, hafi fólk að minnsta kosti þann mögu­leika að flýja. „Þannig að ég verð að segja að á mínum 27 ára ferli, starf­andi á stríðs­svæðum, hef ég aldrei séð svona hrika­legar aðstæður. Og þetta er í gangi dag eftir dag og heim­ur­inn fylgist með. Horfir á sjón­varpið og sér þetta, og hvar er þrýst­ing­ur­inn á Ísrael að stöðva þessar ómann­úð­legu sprengju­árásir á sak­lausa borg­ara?“

Á dagskrá Pressu

Viðtalið við Morten Rostrup verður sýnt í heild sinni í dag, föstu­dag, í þætt­inum Pressu, sem er á dag­skrá í hádeg­inu alla föstu­daga. Í kjöl­far þess verða Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­kona Pírata, í pall­borðsum­ræðu í beinni útsend­ingu til að ræða mál­efni Palest­ínu.

Í síð­ari hluta Pressu verður svo við­tal við Guðlaug Þór Þórð­ars­son umhverf­is­ráð­herra, sem talar frá Sam­ein­uðu arab­ísuku fursta­dæm­unum, þar sem lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna stendur nú yfir, og Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur, segir frá hver raun­veru­leg þróun hlýn­andi veð­ur­fars hefur verið. 

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ingar sem kom af lofts­lags­ráð­stefn­unni í nótt, Bjarni Jónsson, þing­maður Vinstri grænna og for­maður umhverf­is­nefndar Alþingis, og Þor­gerður María Þor­bjarn­ar­dóttir, for­maður Land­verndar, ræða svo lofts­lags­málin í beinni útsend­ingu.

Útsend­ingu Pressu seinkar í dag til 13.00 vegna tækni­legra ástæðna.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár