Ekkert landsvæði í eigu íslenska ríkisins er friðlýst sem víðerni. Ekki ein þjóðlenda.
Í nafni líffræðilegs fjölbreytileika hafa mörg ríki nú tekið til við að setja sér stefnu um verndun víðerna. Þéttbýla iðnaðarríkið Þýskaland hefur sett markið á 2%. Í landbúnaðarlandinu Frakklandi eru þrjú ár síðan Macron forseti setti það metnaðarfulla markmið að 10% landsins verði vernduð sem víðerni.
[adspot]
Á Íslandi hefur 0,1% lands verið friðlýst sem víðerni. Engin stefna er um friðlýsingu víðerna á Íslandi. Eina friðlýsta víðernið er land í eigu einkaaðila: Drangar á Ströndum, 105 km2.

Víðerni á hálendi Íslands eru að stórum hluta þjóðlendur og með þær fer forsætisráðherra. Undanfarin misseri hefur ráðafólki orðið tíðrætt um hvað Ísland geymir stóran hluta af óspilltustu víðernum Evrópu, heil 43%, og hve mikilvægt sé að standa vörð um þau.[links]
Nýleg víðernakortlagning almannasamtaka sýnir að vinna mætti að friðlýsingu allt að helmings miðhálendisins sem víðerna, væri til þess vilji. Friðlýsingarflokkar náttúruverndarlaga eru nokkrir og byggja á alþjóðlegum viðmiðum. Víðerni eiga sér þar sérstakan friðlýsingarflokk og er verndun þeirra sérstakt markmið með lögunum.
Er Íslendingum, með öll sín víðerni, alls ekki í gefið að vernda þau sömu víðerni?
Höfundur er lögmaður.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir