Lífskjör barna versnuðu meira en lífskjör eftirlaunaþega og öryrkja í kjölfar hrunsins

Nið­ur­stöður skýrslu um lífs­kjör barna benda til þess að við­brögð stjórn­valda við krepp­unni hafi ekki náð að hlífa börnum við afleið­ingum hruns­ins sem skyldi. Börn komu verr út en almenn­ingur og börn í við­kvæmri stöðu enn verr.

Lífskjör barna versnuðu hlut­falls­lega meira en lífs­kjör eft­ir­launa­þega og öryrkja í kjöl­far hruns­ins, sam­kvæmt nýrri

rann­sókn­ar­skýrslu

um lífs­kjör barna á Íslandi frá árinu 2004 til árs­ins 2016. Jafn­framt kemur fram í skýrsl­unni að þrátt fyrir að lífs­kjör barna hafi batnað mikið eftir 2011 þá áttu börn lengra í land árið 2016 með að ná aftur lífs­kjörum árs­ins 2008 en aðrir hópar.

Nið­ur­stöður skýrsl­unnar benda enn­fremur til þess að við­brögð stjórn­valda við krepp­unni hafi ekki náð að hlífa börnum við afleið­ingum krepp­unnar sem skyldi. Árið 2016 stóð Ísland hinum Norð­ur­lönd­unum að baki hvað varðar útgjöld til barna­bóta, fæð­ingar- og for­eldra­or­lofs og til dag­gæslu. Samkvæmt skýrsl­unni er því brýn­ast að bæta lífs­kjör ein­stæðra for­eldra og barna þeirra en nærri fjögur af hverjum tíu börnum undir lág­tekju­mörkum eru börn ein­stæðra for­eldra

Brýnt að bæta lífskjör einstæðra foreldra

Rann­sókn­ar­skýrslan var unnin af Kolbeini Stef­áns­syni, félags­fræð­ing, fyrir til­stilli Vel­ferð­ar­vakt­ar­innar en í rann­sókn­inni er þróun lífs­kjara og lífs­gæða barna rakin yfir tíma­bilið 2004 til 2016. Í skýrsl­unni kemur fram að á heild­ina litið eru lífs­kjör barna á Íslandi góð í sam­an­burði við flest önnur Evr­ópu­lönd. Árið 2016 voru lífs­kjör barna mæld í jafn­gildum ráð­stöf­un­ar­tekjum þau sjö­undu bestu í Evrópu, lág­tekju­hlut­fallið það þriðja lægsta og hlut­fall barna sem bjuggu á heim­ilum í fjár­hags­þreng­ingum var það sjö­unda lægsta. Þá voru börn undir lág­tekju­mörkum á Íslandi ekki mjög langt undir mörk­unum sam­an­borið við flest önnur Evr­ópu­lönd. Í skýrsl­unni segir að það bendi til þess að vand­inn sé ekki óyf­ir­stíg­an­legur ef grípa á til aðgerða til að draga úr fátækt á meðal barna.[adspot]

Aftur á móti segir í skýrsl­unni að þó að heild­ar­myndin sé ágæt séu engu að síður óleyst vanda­mál. Samkvæmt skýrsl­unni er brýn­ast að bæta lífs­kjör ein­stæðra for­eldra og barna þeirra, en nærri fjögur af hverjum tíu börnum undir lág­tekju­mörkum eru börn ein­stæðra for­eldra. Auk þess þarf einnig að huga að börnum öryrkja. Jafn­framt sé ljóst að staðan á húsnæð­is­mark­aði hefur áhrif á lífskjör barna. Munurinn á lágtekju­hlutföllum barna fyrir og eftir húsnæð­is­kostnað er með meira móti hér í sam­an­burði við önnur Evrópulönd. Það að búa í leiguhúsnæði hér á landi felur í sér auknar líkur á því að búa við fjárhags­þreng­ingar.

Viðbrögð stjórnvalda ekki náð að hlífa börnum við afleiðingum kreppunnar

Á milli 2008 og 2016 versnuðu lífskjör barna, meira á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum, að Grikk­landi und­an­skildu, jafn­vel þó lífskjörin hafi batnað eftir 2011. Þá var Ísland á meðal þeirra þjóða þar sem tíðni fjárhags­þreng­inga á heim­ilum barna jókst hvað mest í kjölfar hruns­ins en þó einnig á meðal þeirra landa þar sem dró einna mest úr fjárhags­þreng­ingum eftir að krepp­unni lauk. Börn sem búa á heim­ilum sem eru í við­kvæmri stöðu, svo sem börn ein­stæðra for­eldra, öryrkja og atvinnu­lausra, voru mun lík­legri til að búa við fjár­hags­þreng­ingar en börn á heim­ilum sem ekk­ert ofan­greint á við um.

Versn­andi lífs­kjör barna á Íslandi í krepp­unni skýr­ast að mestu af því að atvinnu­tekjur heim­ila þeirra lækk­uðu. Nið­ur­stöður skýrsl­unnar sýna að félags­legar greiðslur á borð við barna­bætur, fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslur og húsa­leigu­bætur gerðu lítið til þess að draga úr áfall­inu og raunar jók þróun barna­bóta á vand­ann, ef eitt­hvað er. Það er vegna þess að dregið var umtals­vert úr útgjöldum í til­færslur til fjöl­skyldu­mála og dregið var veru­lega úr stuðn­ingi við barna­fjöl­skyldur með breyt­ingum á upp­hæðum fæð­ing­ar­or­lofs­ins og auk­inni lág­tekju­miðun og minna örlæti barna­bóta. Batnandi lífs­kjör barna eftir að krepp­unni lauk er því ekki vegna barna­bóta­kerfs­ins, enda hefur það ætíð verið frekar lág­tekju­miðað jafn­vel fyrir hrun, heldur skýr­ast þau mun frekar að stærstu leyti af vax­andi atvinnu­tekjum heim­ila þeirra eftir að upp­sveiflan hófst á ný.

Nið­ur­stöður skýrsl­unnar benda því til þess að ekki hafi verið lögð sér­stök áhersla á að vernda börn á Íslandi fyrir áhrifum krepp­unnar né heldur að það hafi verið reynt að bæta lífs­kjör barna í gegnum tæki fjöl­skyldu­stefn­unnar þegar hagur þjóð­ar­bús­ins fór að vænkast. En árið 2016 stóð Ísland hinum Norð­ur­lönd­unum að baki hvað varðar útgjöld til barna­bóta, fæð­ingar- og for­eldra­or­lofs og til dag­gæslu og raunar var Ísland ekki í fremstu röð hvað varðar útgjöld til barna­bóta og fæð­ingar- og for­eldra­or­lofs í víð­ara sam­hengi Evr­ópu­landa og rétt­indi til fæð­ingar- og for­eldra­or­lofs all­nokkuð frá því sem best ger­ist.

Leggur til að fjórar tillögur

Í lok skýrsl­unnar setur höf­undur fram fjórar til­lögur til draga úr barna­fá­tækt. Fyrsta til­lagan snýr að því að brúa ummön­unn­ar­tíma­bilið með því að lengja fæð­ing­ar­or­lofið eða auka fram­boð af dag­heim­ila­plássum svo hægt sé að lækka inn­töku­ald­ur­inn. Í öðru lagi auka til­færslur til ein­stæðra for­eldra en sam­kvæmt skýrslu­höf­undi er skil­virkasta og hag­kvæmn­asta leiðin til að draga úr barna­fá­tækt að beina auknum stuðn­ingi að ein­stæðum for­eldrum og börnum þeirra. Það megi til dæmis gera með því að end­ur­skoða tekju­teng­ingu barna­bóta ein­stæðra for­elda.

Í þriðja lagi að bjóða upp ókeypis skóla­mál­tíðir fyrir börn sem búa við fjár­hags­þreng­ingar en ófull­nægj­andi nær­ing er ein af megin orsökum margra lang­tíma­fleið­inga barna­fá­tæktar. Í fjóðra lagi leggur höf­undur til auk­innar nið­ur­greiðsla tóm­stunda­starfs barna sem búa við fjár­hags­þreng­inga en rann­sóknir hafa sýnt fram á að íþrótta- og tóm­stunda­starfi sé mik­il­vægur félags­legur vett­vangur fyrir börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár