Þriðjungi fleiri sótt um greiðsluaðlögun

Það sem af er ári hafa borist 258 umsóknir um greiðslu­að­lögun hjá Umboðs­manni skuld­ara. Mikil fjölgun hefur orðið í umsóknum um greiðslu­að­lögun hjá yngsta ald­urs­hópnum, 18 til 29 ára, en umsækj­endur úr þeim hópi voru 27 pró­sent allra umsækj­enda í fyrra.

Talsvert minna af umsóknum vegna fjár­hags­vanda bár­ust umboðs­manni skuld­ara frá fyrsta jan­úar til fyrsta júlí í ár sam­an­borið við sama tíma­bil síð­ustu þrjú ár. Þó bár­ust fleiri umsóknar vegna greiðslu­að­lög­unar ein­stak­linga en á sama tíma­bili síð­ustu þrjú ár eða alls 258 umsóknir það sem af er ári. Þetta kemur fram í minn­is­blaði umboðs­manns skuld­ara.

Úrræði fyrir þá sem eiga í verulegum greiðslu- og skuldavanda

Alls hafa 611 umsóknir um úrræði vegna fjár­hags­vanda borist umboðs­manni skuld­ara á árinu 2019, sem er 15 pró­sent færri umsóknir en á sama tíma­bili og í fyrra þegar umsókn­irnar voru 718 tals­ins. Þá hefur umboðs­manni borist alls 258 umsóknir um greiðslu­að­lögun það sem af er ári sem er tæp­lega þriðj­ung fleiri umsóknir en á sama tíma­bili í fyrra.

Greiðslu­að­lögun er úrræði fyrir ein­stak­linga sem eiga í veru­legum greiðslu- og skulda­vanda. Úrræðið felur í sér frjálsa samn­inga milli ein­stak­linga og kröfu­hafa með milli­göngu umboðs­manns skuld­ara. Þær skuldir sem samn­ingar um greiðslu­að­lögun ná ekki til eru skuldir vegna með­lags, skuldir vegna náms­lána og skuldir vegna sekta.

Vaxandi hópur ungs fólks hefur sitt fjárhagslega sjálfstæða líf með neysluskuldir í farteskinu

[links]Í grein­ingu umboðs­manns skuld­ara á þeim sem sækja um greiðslu­að­lögun má sjá að ákveðin kyn­slóða­skipti hefur orðið í þeim hópi. Mikil fjölgun hefur orðið í yngsta ald­urs­hópnum, 18 til 29 ára, sá ald­urs­hópur hefur farið úr því að vera 5 pró­sent umsækj­enda um fjár­hags­að­stoð hjá emb­ætt­inu árið 2012 í 27,3 pró­sent árið 2018. Umsækj­endur í ald­urs­hópnum 30 til 39 ára voru 30,1 pró­sent allra umsækj­enda og voru því fólk á aldr­inum 18 til 39 ára 57,4 pró­sent umsækj­enda.

Í yngsta ald­urs­hópnum 79 pró­sent umsækj­enda með skyndilán. Þá er ekki aðeins verið að tala um hin víð­frægu smá­lán heldur býður nú fjöldi fjár­tækni­fyr­ir­tækja og banka upp á svokölluð skyndilán. Það eru lán sem tekin eru raf­rænt og eiga það sam­eig­in­legt að ein­falt er að sækja um þau á hvaða tíma sól­ar­hrings og eru þau afgreidd afar skjótt. Kostn­aður slíkrar lán­töku getur orðið mjög hár og hefur fólk steypst í skuldir hratt með töku margra slíkra lána á stuttum tíma. Skyndilán voru 22 pró­sent af heild­ar­skuldum umsækj­anda á þessu ald­urs­bili.[adspot]

Umboðs­maður skuld­ara segir það vera veru­legt áhyggju­efni að enn skuli fjölga í hópi umsækj­enda á þessum aldri og hefur því kallað eftir aðgerðum vegna vax­andi vanda fólks vegna skyndilána hér á landi.

Starfs­hópur um end­ur­skoðun á starfs­um­hverf­i s­má­lána­fyr­ir­tækja hefur einnig skilað umhverf­is­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra til­lögumtil úrbóta. Þá er meðal ann­ars lagt til að efla fjár­mála­læsi í grunn­skólum og tak­marka mark­aðs­setn­ingu skyndilána en henni er beint í miklum mæli að yngri kyn­slóð­inni ásamt öðrum við­kvæmum hópum. Auk þess er lagt til að setja á lagg­irnar mið­lægan skulda­grunn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár