Útlendingastofnun kom í veg fyrir veitingu ríkisborgararéttar

Útlend­inga­stofnun braut árum saman á erlendri konu með því að stað­festa ekki að hún mætti dvelj­ast á Íslandi án sér­staks dval­ar­leyfis. Konan fékk af þeim sökum ekki rík­is­borg­ara­rétt fyrr en rúmum tveimur árum eftir að hún átti rétt þar á. Stofn­unin sótti þá fjár­hags­upp­lýs­ingar maka kon­unnar úr kerfum Rík­is­skatts­stjóra án þess að hann veitti heim­ild fyrir því eða væri upp­lýstur um það.

Réttur konunnar ekki virtur
Réttur kon­unnar ekki virtur Erlend kona fékk ekki rík­is­borg­ara­rétt fyrr en tveimur árum eftir að hún átti rétt á því vegna klúð­urs Útlend­inga­stofn­unar. Fyrir liggur að Kristín Völ­und­ar­dóttir, for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar, var upp­lýst um mál kon­unnar.

Útlend­inga­stofnun krafði konu um end­ur­nýjun dval­ar­leyfis hér á landi í fjögur ár eftir að konan hafði öðl­ast rétt til að dvelja hér á landi án dval­ar­leyfis. Það olli því að konan fékk ekki rík­is­borg­ara­rétt hér á landi fyrr en 20. ágúst síð­ast­lið­inn, þrátt fyrir að það hefði henni átt að vera heim­ilt tveimur árum fyrr. Stofn­unin fór jafn­framt langt fram úr lög­bundnum fresti sínum við að afgreiða umsókn kon­unnar um ótíma­bundið dval­ar­leyfi.

Þá sótti Útlend­inga­stofnun fjár­hags­upp­lýs­ingar eig­in­manns kon­unnar í tölvu­kerfi Rík­is­skatt­stjóra án þess að upp­lýsa hann um það. Það telur mað­ur­inn, sem sjálfur er lög­lærður, vera lög­brot og hefur kært gjörn­ing­inn til kæru­nefndar útlend­inga­mála auk fleiri atriða í með­ferð Útlend­inga­stofn­unar í máli kon­unnar. Þar hefur starfs­maður nefnd­ar­innar hins vegar neitað að taka við kærunni sökum þess að mað­ur­inn hafi ekki lögvarða hags­muni í mál­inu því hann sé Íslend­ingur. Kæran er hins vegar sett fram fyrir hönd þeirra beggja og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár