Fréttamál

wintris

Fréttir

Heimdallur lýsir yfir van­trausti á Sigmund Davíð

Heimdallur, félag ungra sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, hefur lýst yfir van­trausti á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra vegna þeirra upp­lýs­inga sem hafa komið fram um eign­ar­hald hans á félagi í skatta­skjóli á Bresku Jóm­frú­areyjum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá þeim. Þar segir að for­sæt­is­ráð­herra hafi haldið upp­lýs­ing­unum leyndum og sagt ósatt um þær. „Alvar­leiki máls­ins er slíkur að honum er ekki...
Fréttir

Bjarni: „Þessi staða er mjög þung fyrir rík­is­stjórn­ina“

„Ég ætla ekki að draga fjöður yfir að þessi staða er mjög þung fyrir rík­is­stjórn­ina,“ segir Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra við mbl.is um stöðu rík­is­stjórn­ar­innar. Hann vill ekki tjá sig um það hvort hann telji að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sé hæfur til að sitja áfram í stól for­sæt­is­ráð­herra. „Ég mun ekki tjá mig um stöðu rík­is­stjórn­ar­inn­ar eða ein­staka ráð­herra á...
Fréttir

For­set­inn flýtir heim­för - fjár­mála­ráð­herra seinkar

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, ætlar að flýta heim­för sinni til Íslands í ljósi umfjöll­unar heims­pressunnar um Panama­skjölin. Hann er staddur erlendis í einka­er­indum en er vænt­an­legur til lands­ins snemma í fyrra­málið. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá for­seta­emb­ætt­inu liggur ekki ljóst fyrir hvert fram­haldið verður, hvort Ólafur muni funda með rík­is­stjórn­inni eða ávarpa þjóð­ina. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur hins vegar seinkað heim­för...
Fréttir

Sig­mundur Davíð ætlar ekki að segja af sér

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir tíð­indi gær­dags­ins ekki vera ný og málin öll hafa verið til umræðu und­an­farna daga. Hann ætlar ekki að segja af sér. Hann verði dæmdur í kosn­ingum af verkum sínum. Sig­mundur biðst afsök­unar á frammi­stöð­unni í sjón­varps­við­tal­inu við sænska rík­is­sjón­varpið. „Ég stóð mig ömur­lega í sjón­varps­við­tali sem var sýnt í þessum þætti. Enda kom ég algjör­lega...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Ótrú­legur óheið­ar­leiki

Í þriðja sinn á sjö og hálfu ári er Ísland fyrsta frétt í heims­press­unni. Fyrst var það alls­herj­ar­banka­hrun. Síðan var það gosið í Eyja­fjalla­jökli sem lam­aði flug­sam­göngur í Evrópu. Og nú eru það fréttir af aflands­fé­laga­eign Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Í flestum stærstu fjöl­miðlum heims er verið að greina frá, eða sýna mynd­bönd af, því þegar for­sæt­is­ráð­herra Íslands lýgur um...
Fréttir

92 pró­sent þeirra sem horfðu á sjón­varp sáu Kast­ljós­þátt­inn

Samkvæmt bráða­birgða­tölum frá Gallup var með­al­á­horf á Kast­ljós­þátt gær­dags­ins 49 pró­sent og upp­safnað áhorf á þátt­inn var 58 pró­sent. Þá var þátt­ur­inn með 92 pró­sent hlut­deild á meðal þeirra sem voru að horfa á sjón­varp á meðan að hann stóð yfir. Inni í þessum tölum eru ekki upp­lýs­ingar um þá sem horfðu á Kast­ljós­þátt­inn á net­inu. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra...
Fréttir

Bjarni missti af flugi og mætir ekki á þingið

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra mætir ekki á þing­fund í dag eins og til stóð. Ástæðan er sú að hann missti af flugi í Banda­ríkj­unum, sem orsak­að­ist vegna seink­unar á inn­an­lands­flugi hans, sam­kvæmt aðstoð­ar­manni Bjarna í sam­tali við mbl.is. Til stóð að bæði Bjarni og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra áttu að vera til svara í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum í dag. Bjarni er vænt­an­legur...
Fréttir

Segir Sigmund afhjúpaðan sem lodd­ara og væni­sjúkan lygara

Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, seg­ist vona að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sjái sóma sinn í því að segja af sér áður en að þing­fundur hefst í dag. Það sé gríð­ar­leg ólga í sam­fé­lag­inu eftir að for­sæt­is­ráð­herra hafi verið „afhjúp­aður í Kast­ljósi í gær sem lodd­ari og lyg­ari með væn­is­sýki á háu stigi.“ Sig­mundur Davíð var aðal­um­fjöll­un­ar­efni sér­staks Kast­ljós­þáttar um aflands­fé­laga­eign...
Fréttir

Jóhanna: For­sæt­is­ráð­herra skuldar þjóð­inni að fara frá strax

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son verði strax að segja af sér og rík­is­stjórnin öll verði að fara frá. Þetta segir hún á Facebook-síðu sinni. „Það er ekki bara trú­verð­ug­leiki þjóð­ar­innar gagn­vart alþjóða­sam­fé­lag­inu sem er í húfi - heldur mun þjóðin aldrei líða það sem ráða­menn hafa orðið upp­vísir að. Það hefur mynd­ast algjör trún­að­ar­brestur milli rík­is­stjórn­ar­innar...

Mest lesið undanfarið ár