Flokkur

Stjórnsýsla

Fréttir

Skipa­smíða­stöðin sem smíðar nýjan Herjólf notar vinnu­þræla

Íslensk stjórn­völd hafa samið við pólsku skipa­smíða­stöð­ina Crist S.A. um smíði á nýrri Vest­manna­eyja­ferju en skipa­smíða­stöðin hefur notað vinnu­þræla frá Norður-Kóreu. Halldór Ó. Sig­urðs­son, for­stjóri Rík­is­kaupa, segir Rík­is­kaup og Vega­gerð­ina ekki hafa hald­bærar heim­ildir um að Crist hafi orðið upp­víst að brotum sem geta fallið undir skil­grein­ingu á man­sali. Sigurður Áss Grét­ars­son, fram­kvæmda­stjóri sigl­inga­sviðs Vega­gerð­ar­innar, ætlar að krefj­ast skýr­inga af pólska fyr­ir­tæk­inu.
Fréttir

Ætlar að opna bók­hald rík­is­ins upp á gátt

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að unnið sé að því innan ráðu­neytis hans að opna bók­hald rík­is­ins upp á gátt. Þegar það hefur verið gert verður hægt að fletta upp ein­stökum kostn­að­ar­reikn­ingum ráðu­neyta. Benedikt nefnir sem dæmi að ef keyptur er þjón­usta leigu­bíls eða ný ljós­rit­un­ar­vél þá sé hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um hvað hafi verið nákvæm­lega verið keypt,...
Fréttir

Umboðs­maður Alþingis skoðar upp­lýs­inga­gjöf úr stjórn­sýsl­unni

Umboðs­maður Alþingis telur ekki til­efni til að taka til athug­unar hvort Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafi brotið gegn siða­reglum ráð­herra með því að birta ekki skýrslu um eignir Íslend­inga í aflands­fé­lögum fyrr en raun bar vitni. Ástæðan er fyrst og fremst að Bjarni hefur við­ur­kennt að það hafi verið mis­tök af hans hálfu að birta ekki skýrsl­una...
Fréttir

Siða­reglur ráð­herra gilda áfram fyrir nýja rík­is­stjórn

Ný rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar fékk kynn­ingu á siða­reglum ráð­herra á sínum fyrsta fundi í morgun. Siða­regl­urnar voru einnig ræddar af ráð­herrum á rík­is­stjórn­ar­fund­inum, en þær gilda áfram fyrir nýja rík­is­stjórn nema hún taki ákvörðun um að breyta þeim. Siða­regl­urnar sem nú eru í gildi voru settar af Sigurði Inga Jóhanns­syni, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, skömmu eftir að hann tók við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Þær...
Fréttir

Mál á hendur Öldu Hrönn fellt niður

Settur hér­aðs­sak­sókn­ari hefur fellt niður mál á hendur Öldu Hrönn Jóhanns­dóttur, aðal­lög­fræð­ingi lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inum og tveimur öðrum aðilum. Alda Hrönn var sökuð um að hafa mis­beitt lög­reglu­valdi við rann­sókn á LÖKE-­mál­inu, en tveir sak­born­ingar í mál­inu kærðu hana fyrir rangar sak­ar­giftir og brot í starfi í apr­íl. Við rann­sókn LÖKE-­máls­ins var Alda Hrönn yfir­lög­fræð­ingur hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesj­u­m. Alda...
Fréttir

Fyrr­ver­andi ráð­herra var ráðin í starf sér­fræð­ings

Siv Frið­leifs­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, var ráðin í starf sér­fræð­ings á skrif­stofu félags­þjón­ustu í félags- og hús­næð­is­mála­ráðu­neyt­inu í vor. Ráðn­ingin tók gildi 1. apríl síð­ast­lið­inn og starfið var aug­lýst. Alls sóttu 36 um það. Samkvæmt svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið var það skrif­stofu­stjóri félags­þjón­ustu sem tók ákvörðun um ráðn­ing­una í sam­ráði við ráðu­neyt­is­stjóra. Siv var fengin til að...
Fréttir

Ísland fer í mál vegna Iceland-keðj­unnar

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur ákveðið að grípa til laga­legra aðgerða gegn bresku versl­un­ar­keðj­unni Iceland Foods. Ráðu­neytið segir að breska keðjan hafi um ára­bil beitt sér gegn því að íslensk fyr­ir­tæki geti auð­kennt sig með upp­runa­land­inu við mark­aðs­setn­ingu í Evrópu á vörum sínum og þjón­ustu. Breska keðjan hefur einka­rétt á ICELAND í öllum ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins, sam­kvæmt ákvörðun þeirrar stofn­unar innan ESB sem ann­ast...
Fréttir

Rík­is­end­ur­skoð­andi ann­ast ekki eft­ir­lit með bróður sínum

Sveinn Arason rík­is­end­ur­skoð­andi ann­ast ekki eft­ir­lit með Lind­ar­hvoli ehf., eign­ar­halds­fé­lagi í eigu rík­is­ins sem fer með stöð­ug­leika­eignir þess. Ástæðan er sú að Þór­hallur Arason, bróðir Sveins, er stjórn­ar­for­maður Lind­ar­hvols. Þór­hallur er skrif­stofu­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og situr fyrir hönd þess í stjórn félags­ins. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu á heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar. Sala á eignum Lind­ar­hvols­hefur verið mikið í...

Mest lesið undanfarið ár