Flokkur

Stjórnsýsla

Úttekt

Glaum­gosi verður kon­ungur Taílands í skugga hneyksl­is­mála

Þaul­setn­asti þjóð­ar­leið­togi sam­tím­ans, Bhumibol Adulya­dej, kon­ungur Taílands, er lát­inn. Sonur hans og arf­taki, Maha Vajira­long­korn, á að baki þrjú mis­heppnuð hjóna­bönd, að minnsta kosti sjö börn og gerði hund­inn sinn að yfir­manni flug­hers­ins. Löggjöf sem bannar gagn­rýni á kon­ungs­fjöl­skyld­una gerir það af verkum að Taí­lend­ingar vita lítið sem ekk­ert um þennan vænt­an­lega kon­ung sinn.
Fréttir

Lilja skip­aði aðstoð­ar­mann sinn í stjórn Íslands­stofu

Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra skip­aði Hrannar Pét­urs­son, aðstoð­ar­mann sinn, í stjórn Íslands­stofu í síð­ustu viku. Hún seg­ist hafa litið þannig á málið að Hrannar væri besti mað­ur­inn sem til boða stæði í stöð­una. „Þegar ég fékk Hrannar í ráðu­neytið þá var það á fag­legum en ekki póli­tískum for­sendum. Hann er ekki flokks­bund­inn Fram­sókn­ar­maður og hefur engum skyldum að gegna gagn­vart flokknum.“...
Fréttir

Umboðs­maður segir stjórn­völd treg til að fylgja stjórn­sýslu­reglum við ráð­stöfun rík­is­eigna

Umfangs­mikil sala rík­is­eigna fer fram þessa dag­ana á vegum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Bjarni Bene­dikts­son vildi lög­festa und­an­þágu frá stjórn­sýslu­lögum við sölu stöð­ug­leika­eigna en þingið kom í veg fyrir það. Umboðs­maður bendir á það í árs­skýrslu sinni að við ráð­stöfun opin­berra eigna gæti meiri tregðu til að fylgja stjórn­sýslu­reglum en gengur og ger­ist á öðrum sviðum stjórn­sýsl­unnar.
Fréttir

Vinnur á kvöldin og um helgar sam­hliða leik­skóla­starf­inu

Sólveig Anna Jóns­dóttir, ófag­lærður leik­skóla­starfs­maður til átta ára, fær ein­ungis 240 þús­und krónur í útborguð laun. Hún vinnur í verslun á kvöldin og um helgar til að drýgja tekj­urnar. Leik­skólar borg­ar­innar standa frammi fyrir mik­illi mann­eklu og leggur Sólveig til að borg­ar­full­trúar stígi inn í fag­lega starfið sem unnið er á leik­skólum.
Fréttir

Efa­semdir um að Evr­óputil­skipun stand­ist stjórn­ar­skrána

Ákveðið hefur verið að senda þings­á­lykt­un­ar­til­lögu utan­rík­is­ráð­herra, um stað­fest­ingu EES reglna um fjár­mála­eft­ir­lit, aftur í nefnd. Þetta var gert eftir hörð mót­mæli fjölda þing­manna á þing­fundi í morgun, en greiða átti atkvæði um málið á fund­inum. Ástæða mót­mæl­anna eru ummæli Bjargar Thoraren­sen, pró­fess­ors í lög­fræði og sér­fræð­ings í stjórn­skip­un­ar­rétti, um til­lög­una. Björg sagði við Morg­un­blaðið í gær að henni þætti...
FréttirValdatafl í lögreglunni

Rann­sóknir fíkni­efna­mála í lama­sessi og mið­læga deildin sögð „gjör­sam­lega í molum“

Lítið er um frum­kvæð­is­rann­sóknir og lög­reglan ræður ekki lengur við umfangs­mikil fíkni­efna­mál. „Óstarf­hæft“ og „hand­ó­nýtt batt­erí“ eru dæmi um ein­kunnir sem lög­reglu­menn gefa vinnu­staðnum. Yfir­maður mið­lægu deild­ar­innar hættir og hverfur aftur til fyrri starfa hjá sér­sveit­inni.

21 mín. lestur

Fréttir

Ráðu­neyt­is­stjóri sak­aður um „beinar hót­anir“ gegn fleiri en einum þing­manni

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar sakar Guðmund Árnason ráðu­neyt­is­stjóra um „beinar hót­anir“ gegn þing­mönnum. Guð­mundur hringdi í einn þing­mann nefnd­ar­innar og sagð­ist íhuga að leita réttar síns vegna skýrslu Vigdísar Hauks­dóttur þar sem meðal ann­ars er gefið í skyn að hann hafi viljað „frið­þægja kröfu­hafa“ á kostnað íslenskra hags­muna.
Fréttir

Haraldur seg­ist hafa fengið grafal­var­lega hótun frá ráðu­neyt­is­stjóra

Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nefnd­ar­maður í fjár­laga­nefnd Alþingis, segir að ráðu­neyt­is­stjóri fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, Guð­mundur Árnason, hafi við­haft grafal­var­lega hótun í garð sinn og ann­arra í sím­tali þeirra á milli síð­ast­liðið föstu­dags­kvöld. Hann seg­ist hafa sent Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála­ráð­herra og yfir­manni Guð­mundar, form­legt kvört­un­ar­bréf vegna máls­ins. Fyrr í dag var greint frá því að meiri­hluti fjár­laga­nefndar bók­aði það á fundi í...

Mest lesið undanfarið ár