Flokkur

Orkumál

Fréttir

Vonar að nýr samningur við Norðurál muni skila umtals­vert hærri tekjum

Lands­virkjun bindur miklar vonir við að nýr samningur fyrir­tækisins um orkusölu til álvers Norðuráls á Grundar­tanga muni skila sér í „umtals­verðri hækkun“ á tekjum. Þetta segir Hörður Arnarson, forstjóri Lands­virkjunar. Tilkynnt var um það í dag að samningur hafi náðst um að fram­lengja samning um sölu á 161 megawöttum af orku til Norðuráls, sem renna átti út í lok október...
Fréttir

Orkuverð til álvera 34 prósent lægra hér á landi en heims­meðaltalið

Orkuverð Lands­virkjunar til álvera á síðasta ári var um 34 prósent lægra en heims­meðaltal, samkvæmt greiningu Öskju Energy, ráðgjafa­fyrirtækis Ketils Sigurjóns­sonar, en vísað er til umfjöllunar CRU Group, þegar kemur að heims­markaðnum. Verðið féll um tólf prósent á heimsvísu í fyrra, og er skýringin öðru fremur rakin til verð­lækkunar á áli, en algengt er að orku­sölu­samningar til álfyrirtækja séu tengdir,...
Fréttir

Starfs­hópur stjórn­valda mun ræða við orku­fyrirtæki um ákvörðun ESA

Starfs­hópur fjögurra ráðuneyta hefur verið skipaður til að undirbúa viðbrögð við nýlegri ákvörðun Eftirlits­stofnunar EFTA, ESA, um nýtingu náttúru­auðlinda í rafmagns­framleiðslu. ESA segir að íslensk stjórn­völd þurfi að setja lög sem krefj­ast þess að alltaf sé greitt mark­aðs­verð þegar orku­fyr­ir­tækjum eru veitt rétt­indi til að nýta nátt­úru­auð­lindir í almanna­eigu. ESA kveður einnig á um að íslensk stjórn­völd verði að end­ur­skoða...
Myndir

Vilja breyta fólkvangi í virkjana­svæði

Í Krýsuvík er mikil náttúru­fegurð sem dregur að sér fjölda fólks til útvistar og náttúru­skoðunar. Krýsuvík er innan Reykja­nesfólkvangs, sem stofnaður var formlega með frið­lýsingu árið 1974. Vinsælasti áningar­staðurinn í Krýsuvík er hvera­svæðið í Seltúni en á undan­förnum árum hefur umferð ferða­manna þangað aukist gríðar­lega. Hætt er við að svæðið missi aðdráttarafl sitt verði það virkjað eins og HS Orka hefur í hyggju.
Fréttir

Banka­stjóri sagði Norðurál ætla að „eyði­leggja" Orku­bloggara

Ketill Sigurjónsson, sérfræðingur í orkumálum sem hefur haldið úti Orku­blogginu um langt skeið, segir í nýrri færslu að banka­stjóri í íslenska banka­kerfinu hefði haft samband við sig og varað sig við því að Norðurál væri að undirbúa herferð gegn hans málflutningi. Fyrir­tækið væri að reyna að ráða almanna­tengla til verksins og banka­stjórinn bætti við: „Þeir ætla sér að eyði­leggja þig“....

Mest lesið undanfarið ár