Vonar að nýr samningur við Norðurál muni skila umtalsvert hærri tekjum

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Birgir Þór

Lands­virkjun bindur miklar vonir við að nýr samn­ingur fyr­ir­tæk­is­ins um orku­sölu til álvers Norð­ur­áls á Grund­ar­tanga muni skila sér í „umtals­verðri hækkun“ á tekjum. Þetta segir Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Tilkynnt var um það í dag að samn­ingur hafi náðst um að fram­lengja samn­ing um sölu á 161 megawöttum af orku til Norð­ur­áls, sem renna átti út í lok októ­ber 2019, til loka árs 2023. End­ur­nýj­aður samn­ingur er tengdur við mark­aðs­verð raf­orku á Nord Pool raf­orku­mark­aðnum og kemur í stað álverðsteng­ingar í gild­andi samn­ingum.

Samn­ingur Norð­ur­áls við Lands­virkjun um orku­kaup er upp­runa­lega frá árinu 1997 og inni­hald hans, meðal ann­ars verðið sem fyr­ir­tækið hefur greitt fyrir ork­una, hefur verið trún­að­ar­mál. Ketill Sig­ur­jóns­son, sér­fræð­ingur í orku­málum, hefur hins vegar unnið grein­ingar á raf­orku­verði til álvera á Íslandi þar sem fram kemur að Norðurál greiði lægsta raf­orku­verðið til Lands­virkj­unar. Samkvæmt grein­ingum hans hefur lágt verð til Norð­ur­áls og Fjarða­áls, sem rekur álver á Reyð­ar­firði, dregið niður með­al­verð á raf­orku til álvera hér á landi niður í rúm­lega 26 Banda­ríkja­dali á megawattstund.

Hörður segir að hann geti ekki svarað því hversu miklum við­bót­ar­tekjum nýi samn­ing­ur­inn muni skila þegar hann tekur gildi í nóv­em­ber 2019. Það ráð­ist af því hvernig orku­verð í Evrópu þró­ist og hvernig álverð þró­ist. Hörður bindur þó vonir við að hækk­unin verði umtals­verð og bendir á að með­al­verð á raf­orku á Nord Pool mark­aðnum und­an­farin tíu ár hafi verið um 50 dalir á megawattstund.

Viðræður Norð­ur­áls og Lands­virkj­unar hafa staðið yfir um nokk­urt skeið og að sögn Harðar hefðu þær ekki mátt standa mikið lengur áður en að leita hefði þurft ann­arra leiða við að koma umræddri orku í verð. „Það hefði mögu­lega verið hægt að ræða saman í nokkrar mán­uði í við­bót. Fram á mitt þetta ár. Ekki mikið lengur. En það var ein­dreg­inn vilji hjá báðum aðilum að halda sam­starf­inu áfram og því kom ekki til greina að ræða við aðra aðila á meðan að á samn­ings­við­ræð­unum stóð.“

Sagði stjórnendur Norðuráls beita öllum aðferðum

Hörður hélt blaða­manna­fund í des­em­ber síð­ast­liðnum sem var nokkuð óvenju­legur. Í raun for­dæma­laus. Í máli Harðar á þeim fundi kom meðal ann­ars fram að hann teldi Norð­ur­ál, og eig­end­ur þess, vera að beita öllum mögu­legum með­ulum til að halda verð­inu til sín sem lægstu. Í lýs­ingum sínum á þeim samn­inga­við­ræðum sem voru í gangi við Norðurál skóf hann ekk­ert undan í lýs­ingum á skoðun sinni á ástæðum.

Hörð­ur­ ­sagði að umræða um raf­orku­samn­ing Lands­virkj­unar og Rio Tin­to-Alcan, sem þá var fyr­ir­ferða­mikil, hefði ver­ið ­dregna inn í þá kjara­deilu sem þá stóð yfir innan Rio Tinto-Alcan af öðrum en deilu­að­il­u­m. Spurður um hverjir það væru sagði Hörð­ur: „Stjórn­endur Norð­ur­áls, þeir telja að þetta styðji þeirra mál­stað. Þegar þú ert að semja um tug­millj­arða hags­mun­i þá beita aðilar öllum aðferðum til þess að styrkja sinn mál­stað. Það er ekk­ert ó­eðli­legt. Hvort þeir séu að ganga lengra núna en áður verða kannski aðrir að ­meta, en ég tel þessa teng­ingu mjög óheppi­lega og mér finnst hún mjög ósann­gjörn gagn­vart Rio Tinto.“

Aðspurður um hvort þessi blaða­manna­fundur hafi breytt ein­hverju í samn­ings­við­ræðum milli Lands­virkj­unar og Norð­j­ur­áls segir Hörður að það hafi fyrst og fremst verið sú vinna sem farið hafi fram gagn­vart því að reyna að hækka raf­orku­verð sem hafi skipt máli. „Það ásamt skýrum stuðn­ingi stjórnar og stjórn­valda við stefnu fyr­ir­tæk­is­ins er lyk­ill­inn að því að Lands­virkjun nær að end­ur­semja á hag­stæð­ari kjörum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár