Flokkur

Nýsköpun

Myndband

Kjarninn fylgir Startup Reykjavík viðskipta­hraðlinum eftir

Kjarninn mun fylgja eftir Startup Reykjavík viðskipta­hraðlinum í sumar, með mynd­böndum, þar sem einblínt er á verkefnin sem unnið er að og ýmis önnur atriði sem tengjast frumkvöðla­vinnunni sem hraðallinn tekur til. Tíu teymi hafa verið val­in til þátt­töku en alls bár­ust um 150 um­sókn­ir. Hraðall­inn var ný­verið val­inn besti viðskipta­hraðall Norður­land­anna á Nordic Startup Awards í Finnlandi og fer...
Fréttir

Tengja norrænt hugvit við bandaríska peninga

Alþjóðleg ráðstefna um leikja­iðnað og sýndar­veruleika á að leiða saman norræn sprota­fyrirtæki á sviði tölvu­leikja og sýndar­veruleika og fjárfesta frá Banda­ríkjunum og Evrópu. Fjár­festar fá tækifæri til að bóka einka­fundi með sprota­fyrir­tækjunum fyrir viðburðinn og átta fyrirtæki fá tækifæri til að kynna starfsemi sína í svokallaðri Pitch-keppni. Meðal gesta verða áhrifa­miklir fjár­festar, frumkvöðlar og útgefendur á borð við David Gardner...
Fréttir

Ætla að fjölda­framleiða íslenskt skordýra­stykki

Íslenska nýsköpunar­fyrirtækið Crowbar Protein hyggist hefja fram­leiðslu á skor­dýraprótein­stykki sínu Jungle Bar og hafa til þess opnað fyrir hópfjár­mögnun á Kickstarter. Þetta er fyrsta evrópska orku­stykkið sem framleitt verður úr skordýra­hráefni. Þeir Búi Bjarmar Aðal­steinsson, vöru­hönnuður, og Stefán Atli Thoroddsen, viðskipta­fræðingur, hafa undan­farið ár gert tilraunir og þróað vöruna með sérfræðingum, meðal annars með þátttöku í StartUp Reykjavík og Gullegginu....
Fréttir

Sprotar úr Startup Reykjavík hafa sótt 650 milljónir króna

Sprota­fyrirtæki sem farið hafa í gegnum Startup Reykjavík viðskipta­hraðalinn, sem Arion banki og Klak Innovit standa að, hafa sótt sér 650 milljónir króna frá því að hann hófst árið 2012. Megnið af fénu hefur komið í gegnum framlög úr styrktar- og rannsóknar­sjóðum, en einnig frá nýjum hluthöfum og fjár­festum. Samtals eru sprota­fyrirtækin 37 sem hafa náð sér í þetta fjármagn....
Myndband

Nýsköpunar­hádegi: Stefnum að betri árangri

Nýsköpunar­hádegi í Innovation House á Seltjarn­ar­nesi hefst klukkan 12:00 og verður í beinni útsendingu hér í Kjarnanum. Jói Sigurðsson, stofnandi CrankWheel, mun kynna markmiða­setningu og eftir­fylgni markmiða hjá nýsköpunar­fyrirtækjum. Með með því að tengja markmið og niður­stöður má betur fylgjast með því hversu vel gengur að mæta mark­miðunum sem sett hafa verið. Aðferðin var upphaf­lega hönnuð fyrir stærri fyrirtæki en...
Myndband

Nýsköpunar­hádegi: Vöruþróun í nýsköpun

Nýsköpunar­hádegi í Innovation House á Seltjarn­ar­nesi hefst klukkan 12:00 og verður í beinni útsendingu hér í Kjarnanum. Ingimar Guðjón Bjarnason, framkvæmda­stjóri Applicon, mun opna hádegið og segja frá vöruþróun innan fyrir­tækisins. Einnig tala Jón Grétar Guðjónsson, ráðgjafi hjá Coremotif, Eyrún Eggerts­dóttir, framkvæmda­stjóri og stofnandi Róró, og Egill Egilsson, yfir­hönnuður í þróunar­deild Össurar og stjórnar­formaður Hönnunar­miðstöðvar Íslands.Bein útsending frá Innovation House...
Myndband

Vill hrista upp í undirfata­markaðnum

Viðskipta­hugmynd nýsköpunar­fyrir­tækisins Mulier er í senn einföld og snjöll, en fyrir­tækið hefur hannað nýja nærfata­línu fyrir konur sem væntan­leg er á markað næsta sumar. Markmið fyrir­tækisins er að hrista upp í undirfata­markaðnum, sem Jónína de la Rosa, stofnandi Mulier, segir að hafi lengi verið heldur staðnaður og leiðinlegur. Kjarninn hitti Jónínu að máli og forvitnaðist um hina nýju byltingar­kenndu nærfata­línu.
Myndband

Alvöru peningar fyrir sýndarfé

Kauphöll fyrir sýndar­gjaldmiðla úr tölvu­leikjum er í burðar­liðnum, en fyrir­tækið Viral Trade þróar nú viðskipta­hugmynd sína i tengslum við Startup Reykjavík viðskipta­hraðalinn. Með tilkomu kaup­hallarinnar munu tölvuleikja­spilarar geta selt gervi­peninga og önnur verðmæti úr tölvu­leikjum, svo sem vopn og tæki, á opnu markaðs­torgi fyrir alvöru peninga. Kjarninn ræddi við Guðlaug Lárus Finnbogason, stofnanda Viral Trade, um hina væntanlegu kauphöll. Horfðu...
Myndband

Heims­yfirráð eða dauði

Fyrir­tækið BoonMusic þróar nú nýjan samfélags­miðil á netinu, í tengslum við Startup Reykjavík viðskipta­hraðalinn, gagngert fyrir tónlistar­áhugafólk. Markmið samfélags­miðilsins er að gefa tónlistar­fólki tækifæri til að vinna í sameiningu að list­sköpun sinni óháð stað­setningu. Kjarninn ræddi viðskipta­hugmyndina við Karl Bragason, einn stofnanda BoonMusic, en hann segir fyrir­tækið stefna hátt svo ekki verði fastar að orði kveðið.

Mest lesið undanfarið ár