Flokkur

Nýsköpun

Myndband

Mikilvægt að fólki líði vel í sínu vinnu­umhverfi

Nýsköpunar­fyrirtækið MURE VR þróar nú vinnu­umhverfi í sýndar­veruleika. Kjarninn ræddi við Diðrik Steinsson, verkefna­stjóra og einn stofnanda fyrir­tækisins. Hann fullyrðir að rann­sóknir sýni fram á aukin afköst starfs­fólks, líði því vel í vinnu­umhverfi sínu. Hann er sann­færður um að sýndar­veruleiki verði næsta bólan í tölvu­geiranum og horfir bjartsýnum augum fram á veginn.
Myndband

Börnin leiki sér meira úti

Nýsköpunar­fyrirtækið EcoMals þróar nú sögu­persónur og ævintýri handa ungum börnum fyrir spjald­tölvur, í tengslum við Startup Reykjavík við- skipta­hraðalinn. Markmið EcoMals er að auka umhverfis­vitund barna og hafa góð áhrif á hegðun þeirra, til að mynda með því að fá þau til að leika sér meira utandyra og eyða minni tíma í spjald­tölvunni. Kjarninn ræddi við Kristinn Jón Ólafsson framkvæmda­stjóra...
Myndband

Framleiða prótein­stykki úr skordýrum

BSF Production er eitt þeirra fyrir­tækja sem nú þróar viðskipta­hugmynd sína áfram í tengslum við Startup Reykjavík viðskipta­hraðalinn. Fyrir­tækið hyggur á innflutning á svokölluðu skordýra­hveiti sem það ætlar að nota til að framleiða prótein­stykki. BSF Production ætlar sem sagt að hefja fram­leiðslu á matvælum á Íslandi úr skordýrum. Kjarninn ræddi við Stefán Atla Thoroddsen, sem er einn stofnenda BSF Production,...
Myndband

Mátunar­klefi á netinu fyrir fatakaup

Fyrir­tækið SuitMe er eitt þeirra tíu verkefna sem nú þróa viðskipta­hugmyndir sínar í tengslum við Startup Reykjavík. SuitMe vinnur að nýstárlegri hugmynd sem er til þess fallin að tengja betur saman verslanir og viðskipta­vini og einfalda fatakaup á netinu, og fyrir­tækið hefur í hyggju að hleypa af stokkunum mátunar­klefa sem viðskipta­vinir geta notað í tölvunni sinni. Kjarninn ræðir við Emil...
Myndband

Góður staður fyrir konur

Sigríður Dögg Auðuns­dóttir, ritstjóri Frétta­tímans, tekur nú þátt í Startup Reykjavík viðskipta­hrað­alnum ásamt samstarfs­konum sínum, Dögg Ármanns­dóttur og Lyubu Kharitonovu, með verkefni sem heitir Inspiral.ly. Sigríður Dögg segir aðstand­endur verk­efnisins hugsa stórt, stefnan sé sett á uppsetningu vefs sem nái til kvenna um allan heim og veiti þeim jákvæðan innblástur og góð heilnæm skilaboð um staðalí­myndir. Kjarninn, í samstarfi við...
Myndband

Þolinmæði er dygð hjá frumkvöðlum

Guðjón Már Guðjónsson, framkvæmda­stjóri og stofnandi Oz, segir mikinn kraft einkenna íslenskt frumkvöðla­umhverfi um þessar mundir. Eftir hrunið sé meiri virðing borin fyrir nýsköpun og frumkvöðlum en áður. Fjár­festar þurfi að muna það að þolinmæði er dygð þegar komi að frumkvöðlum og nýsköpun. Spennandi tímar eru framundan hjá Oz sem vinnur nú að frekari land­vinningum, meðal annars í Suður-Ameríku og...
Myndband

Ekki alltaf skemmtilegt

Þrír lyfja­fræðingar stofnuðu nýsköpunar­fyrirtækið Herberia í júní á síðasta ári, þannig að það fagnar eins árs afmæli sínu um þessar mundir. Nú hyllir undir að fram­leiðsla og markaðs­setning á vörum fyrirtæksins hefjist að fullu, en Herberia fram­leiðir vottuð lyf sem unnin eru úr náttúru­legum efnum. Kjarninn spjallaði við Kolbrúnu Hrafnkels­dóttur, framkvæmda­stjóra Herberia, um sögu og væntingar fyrir­tækisins.
Myndband

Gott að hlusta á magann

Mentor er spennandi sprota­fyrirtæki, sem stofnað var upp úr loka­verkefni þriggja tölvunar­fræði­nema árið 1990. Fyrir­tækið býr í dag að yfir tuttugu ára reynslu af rekstri og þróun upplýsinga­kerfa, er með starfsemi í fimm löndum og yfir sextíu starfs­menn. Ægir Þór Eysteinsson blaða­maður Kjarnans leitaði í reynslu­banka Vilborgar Einars­dóttur framkvæmda­stjóra Mentors, eftir heilræðum fyrir frumkvöðla fram­tíðarinnar. Kjarninn, Keldan og Arion banki...

Mest lesið undanfarið ár