Svæði

Kína

Greinar

Þetta er það sem Illugi talar ekki um
FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Þetta er það sem Illugi talar ekki um

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra gerir eins lítið og hann getur úr aðkomu sinni og mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins að skipu­lagn­ingu Kína­ferð­ar­innar sem Orka Energy var þátt­tak­andi í nú í mars. Af svari Illuga að dæma kom frum­kvæðið að heim­sókn­inni alfarið frá kín­verskum stjórn­völdum og utan­rík­is­ráðu­neytið sá um nán­ast alla skipu­lagn­ingu. Sann­leik­ur­inn er hins vegar ekki alveg svo ein­faldur eins og sést í gögnum og upp­lýs­ingum um heim­sókn­ina.
Ósamræmi í skýringum Illuga og í gögnum um samstarf við Orku Energy
FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Ósamræmi í skýr­ingum Illuga og í gögnum um sam­starf við Orku Energy

Illugi Gunn­ars­son svar­aði spurn­ingum um Orku Energy málið á Alþingi í gær. Gerði lítið úr aðkomu mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins að sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu sem hann und­ir­rit­aði við kín­verska ríkið þar sem Orka Energy er hluti af sam­komu­lag­inu. Mennta­mála­ráðu­neyti Illuga ákvað að vilja­yf­ir­lýs­ingin yrði gerð sem og að Orka Energy yrði fram­kvæmd­ar­að­ili rík­is­ins í sam­vinn­unni við Kína. Illugi sagði hins vegar að gerð vilja­yf­ir­lýs­ing­ar­innar hefði ekki átt sér stað innan ráðu­neytis hans.
Orka Energy komst í „stjórnskipulega stöðu“ í Kína út af ákvörðun Illuga
FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Orka Energy komst í „stjórn­skipu­lega stöðu“ í Kína út af ákvörðun Illuga

Utan­rík­is­ráðu­neytið rök­styður ákvörðun Illuga Gunn­ars­sonar um að skipa Orku Energy sem fram­kvæmd­ar­að­ila íslenska rík­is­ins í Kína. Einungis rík­is­fyr­ir­tæki með „stjórn­skipu­lega stöðu“ skipuð sem fram­kvæmd­ar­að­ilar fyrir hönd rík­is­ins en á þessu var gerð breyt­ing í til­felli Orku Energy. Ráðu­neytið getur ekki gefið eitt annað dæmi um til­felli þar sem einka­fyr­ir­tæki urðu fram­kvæmd­ar­að­ilar erlendis.
Orku Energy veitt fordæma­laus staða
FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Orku Energy veitt for­dæma­laus staða

Enn er á huldu hvernig sú ákvörðun var tekin inni í mennta­mála­ráðu­neyt­inu að einka­fyr­ir­tækið Orka Energy yrði fram­kvæmd­ar­að­ili íslenska rík­is­ins í orku­samn­ingnum við Kína. Afar sjald­gæft að einka­fyr­ir­tæki séu full­trúar rík­is­ins erlendis. Þó er ljóst að mennta­mála­ráðu­neyti Illuga Gunn­ars­sonar tók ákvörð­un­ina.
Illugi ákvað að Orka Energy yrði fulltrúi Íslands í samstarfi við Kína
FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Illugi ákvað að Orka Energy yrði full­trúi Íslands í sam­starfi við Kína

Mennta­mála­ráðu­neyti Illuga Gunn­ars­sonar afhendir gögn um Kínaferð ráð­herr­ans í mars. Kína­ferðin hefur haft miklar afleið­ingar fyrir Illuga í ljósi þátt­töku fyrr­ver­andi vinnu­veit­anda hans, Orku Energy, í ferð­inni. Gögnin sýna meðal ann­ars fram á að það var mennta­mála­ráðu­neytið sem ákvað að Orka Energy yrði full­trúi íslenskra stjórn­valda í sam­starf­inu við kín­versk yfir­völd á sviði jarð­varma.
Fékk 1,2 milljónir frá Orku Energy 2012
FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Fékk 1,2 millj­ónir frá Orku Energy 2012

OG Capital fékk greiðslu frá Orku Energy árið 2012. Illugi Gunn­ars­son hefur sagt að „megin hluti“ vinnu hans fyrir Orku Energy hafi farið fram árið 2011. Illugi hefur sagt að hann hafi ekk­ert unnið fyrir Orku Energy eftir að hann sett­ist aftur á þing í októ­ber 2011. Illugi hefur jafn­framt sagt að hann hafi ekki fengið frek­ari þókn­anir frá Orku Energy en 5,6 millj­óna launa­greiðsl­una sem verið hefur til umræðu síð­ustu daga.
Sérkennilegar tilraunir Kínverja til að miðla áróðri á íslensku
Fréttir

Sér­kenni­legar til­raunir Kínverja til að miðla áróðri á íslensku

Kínversk yfir­völd virð­ast hafa sér­stak­lega mik­inn áhuga á að auka umsvif sín hér á landi. Ein leiðin til þess er að koma á fót fjöl­miðlum á íslensku. Einn slíkur er nú þegar til stað­arm stað­settur í Finn­landi. Forseti Xinhua, rík­is­mið­ils Kínverja, fund­aði með Ólafi Ragnari Gríms­syni og stuttu síðar hóf frétta­rit­ari mið­ils­ins störf á Íslandi.

Mest lesið undanfarið ár