Aðili

Alþingi

Fréttir

Rætt um þing­lok í hádeg­inu

Þinglok og hvernig þeim verður háttað verða til umræðu á fundi þing­flokks­for­manna og fundi for­sætis­nefndar Alþingis í hádeg­inu í dag. Þetta sagði Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, á þingi í morgun. Hingað til hefur ekk­ert verið rætt við stjórn­ar­and­stöð­una um mögu­leg þing­lok eða semja um það hvaða málum verði lokið fyrir þau. End­ur­skoðuð starfs­á­ætlun þings­ins rann út í síð­ustu viku....
Fréttir

Stjórn­ar­þing­maður segir frum­varp rík­is­stjórnar bjána­skap

Frumvörp sem leggja til breyt­ingar á verð­trygg­ingu og stuðn­ing til kaupa á fyrstu íbúð hafa verið afgreidd úr efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis. Meiri­hluti nefnd­ar­innar hefur lagt til að bæði frum­vörpin taki smá­vægi­legum breyt­ingum, en Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þar með meiri­hlut­ans, skil­aði minni­hluta­á­liti í báðum málum. Það gerði Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, líka með stuðn­ingi Birgittu Jóns­dóttur, þing­manns Pírata....
Fréttir

Ráðu­neyt­is­stjóri sak­aður um „beinar hót­anir“ gegn fleiri en einum þing­manni

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar sakar Guðmund Árnason ráðu­neyt­is­stjóra um „beinar hót­anir“ gegn þing­mönnum. Guð­mundur hringdi í einn þing­mann nefnd­ar­innar og sagð­ist íhuga að leita réttar síns vegna skýrslu Vigdísar Hauks­dóttur þar sem meðal ann­ars er gefið í skyn að hann hafi viljað „frið­þægja kröfu­hafa“ á kostnað íslenskra hags­muna.
Fréttir

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar segir emb­ætt­is­mann hafa hótað æru- og eigna­missi

Þing­mönnum í meiri­hluta fjár­laga­nefndar hefur verið hótað vegna skýrslu Vigdísar Hauks­dóttur, „Einka­væð­ing bank­anna hin síð­ari“. Þetta kemur fram í bókun meiri­hluta nefnd­ar­innar sem var sam­þykkt á fundi hennar í morgun. Skýrslan er nú aðeins í nafni Vigdísar, og segir Vigdís við mbl.is að það hafi verið ákveðið vegna þess að hún hafi unnið skýrsl­una að mestu leyti ein þó fjár­laga­nefnd...
Fréttir

Vigdís gagn­rýnir Einar K. og starfs­fólk Alþingis

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, segir að skýrsla meiri­hluta nefnd­ar­innar, um einka­væð­ingu bank­anna hina síð­ari, verði að form­legri þing­skýrslu á morgun þegar hún verði tekin út úr fjár­laga­nefnd. Það sé orð­heng­ils­háttur hjá for­seta þings­ins, Einari K. Guð­finns­syni að segja skýrsl­una ekki vera skýrslu í skiln­ingi þing­skapa Alþingis. „Það er verið að hanga í ein­hverjum tækni­legum atriðum en ekki efn­is­legum,“ sagði...
FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.
FréttirBúvörusamningar

Lögðust gegn því að hægt yrði að fella niður rík­is­styrki til þeirra sem ástunda gróft og ítrekað dýra­níð

Breyt­ing­ar­til­laga um að heim­ilt yrði að fella niður stuðn­ings­greiðslur til þeirra sem brjóta „gróf­lega eða ítrekað gegn ákvæðum laga um vel­ferð dýra“ var kol­felld af þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Horfið frá áformum sem uppi voru á síð­asta kjör­tíma­bili.
Fréttir

25 þing­menn leggja til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um flug­völl­inn í Vatns­mýri

25 þing­menn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu á Alþingi um að efnt verði til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um það hvort flug­völlur og mið­stöð inn­an­lands- og sjúkra­flugs skuli áfram vera í Vatns­mýr­inni í Reykja­vík. Þing­menn­irnir koma úr Vinstri grænum, Fram­sókn­ar­flokknum, Sjálf­stæð­is­flokknum og Sam­fylk­ing­unni. Ögmundur Jónasson og Lilja Rafney Magn­ús­dóttir úr VG, Kristján Möller úr Sam­fylk­ing­unni og þau Elín Hirst, Jón Gunn­ars­son,...
Fréttir

For­sæt­is­ráð­herra segir þing­störf geta teygst fram í októ­ber

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra segir að þingið geti hugs­an­lega setið fram í októ­ber ef þurfa þykir. Þetta kom fram í ræðu hans á Alþingi í dag. Stjórn­ar­and­staðan gagn­rýndi mjög lít­inn fram­gang þing­starfa í þing­inu, sér­stak­lega í ljósi þess að sam­kvæmt end­ur­skoð­aðri starfs­á­ætlun þings­ins frá því í vor á því að ljúka eftir viku. „Það hefur komið mér aðeins á óvart...

Mest lesið undanfarið ár