Klippan er fyrir áskrifendur
Áskrift kostar frá 3.990 kr. á mánuði. Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn.
FréttirÁskrift
Stórbrotin drónamyndbönd sýna hvernig hraunbreiðan gleypti Grindavíkurveg og rann eftir Norðurljósavegi í átt að Bláa lóninu fyrr í dag. Reykstrókar lögðust upp frá malbikinu á meðan viðbragðsaðilar fylgdust með hrauninu vella yfir veginn.
Myndband: Heimildin / Golli
Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn inn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir. Á vettvangi fer í loftið 22. nóvember. Um leið birtist ítarleg umfjöllun í prentútgáfu Heimildarinnar.
Lesa fréttina: Tugir sjúklinga dvöldu á bráðamóttökunni lengur en í 100 klukkustundir
Sonur og viðskiptafélagi Jóns Gunnarssonar þingmanns fullyrðir í upptökum sem teknar voru af manni sem sagðist vera fjárfestir að Jón hafi samþykkt beiðni Bjarna Benediktssonar um að þiggja sæti á lista gegn því að Jón komist í aðstöðu til veita veiðileyfi til Hvals hf. Það verði arfleifð Jóns að tryggja Kristjáni Loftssyni nánum vini sínum leyfið. Það sé hins vegar eitthvað sem eigi að fara leynt.
Þáttaröðin Á vettvangi fer í loftið á Heimildinni þann 22. apríl og verða þættirnir fjórir og birtir vikulega.
Klippan er fyrir áskrifendur
Þetta var sýnishorn. Áskrift kostar frá 3.990 kr. á mánuði. Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn.
FréttirÁskrift
Verslunareigendur í Miðborginni eru að eigin sögn í heljargreipum stöðumælavarðar sem missir stjórn á skapi sínu við minnsta brot á umferðarlögum. Hann öskrar á eigendur og gesti þeirra og sýnir af sér ógnandi hegðun. Borgin staðfestir að kvartanir hafi borist vegna mannsins.
Lesa fréttina: Stöðumælavörður öskrar á fólk fyrir brot á umferðarlögum
Fréttir
Eyðileggingin er gríðarleg með ummerkjum eftir jarðýtur í kjölfar aðgerða Ísraelshers
Lesa fréttina: Ísraelsher eyðileggur grafreiti á Gasa í leit að gíslum
Myndband: AFP
Fréttir
Tómas Ellert Tómasson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Árborg, segir að Leó Árnason fjárfestir hafi lagt fram tilboð um fjárhagslegan stuðning við Miðflokkinn á fundi árið 2020. Í staðinn hafi Miðflokkurinn í Árborg átt að vinna að því að sveitarfélagið hætti við að kaupa hús Landsbankans á Selfossi. Leó segir að hann hafi oft hjálpað stjórnmálamönnum úr ýmsum flokkum en að hann hafi aldrei ætlast til þess að fá eitthvað í staðinn. Í myndbandinu má heyra upplifanir og útskýringar þeirra Tómasar og Léos á fundinum.
Fréttir
Hálfri öld eftir að tilkynnt var um bílslys í Óshlíð á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar er lögreglan loks að rannsaka hvað átti sér stað. Lík Kristins Hauks Jóhannessonar, sem lést í slysinu, var grafið upp og bein hans rannsökuð. Sonur og hálfbróðir Kristins urðu til þess yfirvöld skoða loksins, margsaga vitni og myndir af vettvangi sem urðu til þess að málið var tekið upp að nýju.
Myndband: Stundin
Fréttir
Fréttir
Andrej Kúrkov einn þekktasti rithöfundur Úkraínu biður Íslendinga að fylgjast vel með fréttum af innrás Rússa í landið og afleiðingum hennar og hafa íbúa Úkraínu í hjörtum sínum. Kúrkov flúði síðustu helgi frá Kænugarði og er nú í felum á ótilgreindum stað í vesturhluta landsins. Hann hyggst ekki flýja land.
Fréttir
Fréttir
Stundin fann allt að 1.500 tonn af íslensku plasti sem hefur legið óhreyft í um fimm ár í vöruhúsi í Svíþjóð. Allt plastið var sagt endurunnið samkvæmt tölfræði Úrvinnslusjóðs og var íslenskum endurvinnslufyrirtækjum greitt um hundrað milljónir króna fyrir að senda það í endurvinnslu. Fyrrverandi umhverfisráðherra segir Úrvinnslusjóð bera ábyrgð á að íslenskt plast sé í raun endurunnið. Plastið sligar palestínska flóttamannafjölskyldu í Svíþjóð sem greiðir nú fyrir úrvinnslu á því.
Fréttir
Hljóð · 2 mín. Opna þáttinn
Lag eftir Þorvald Gylfason Teksti eftir Hallgrím Helgason
Fréttir
Rennslið hefur ekki minnkað og hraunið heldur áfram að staflast upp í Nátthaga, en ferðamenn gengu ofan á hrauninu. Myndbandið er fengið úr vefmyndavel mbl.is.
Lesa fréttina: Ferðamenn ganga yfir rjúkandi hraunið í Nátthaga
Myndband: mbl.is
Fréttir
Davíð Þór Guðlaugsson ljósmyndari Stundarinnar tók þetta tilkomumikla drónamyndband af gígnum sem opnaðist 5. apríl síðastliðinn. Þar má sjá hversu gríðarlegir kraftar eru að verki við Fagradalsfjall.
Myndband: Davíð Þór
Fréttir
Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir gamanleikritinu Svartlyng sem speglar farsakenndu atburðarás uppreist æru-málsins sem Bergur dróst inn í fyrir ári. Handritshöfundurinn Guðmundur Brynjólfsson segir marga af fyndnustu bröndurunum koma úr bláköldum raunveruleikanum.
Fréttir
Við þekkjum öll svona fólk, sem með undraverðum hætti glæðir allar plöntur lífi og gerir nærumhverfi sitt vænt, grænt og fagurt, að því er virðist áreynslulaust. Hver er galdurinn?