Mikil aukning í nýjum útlánum - Spá óbreyttum stýrivöxtum

Grein­ing­ar­deild Arion banka spáir því að pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákveði að halda stýri­vöxtum, eða meg­in­vöxtum, óbreyttum næsta mið­viku­dag á vaxta­á­kvörð­un­ar­degi. Meg­in­vextir eru nú 5,5 pró­sent og hækk­uðu á síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­degi um 0,5 pró­sentu­stig.

Meg­in­á­stæðan er sú að verð­bólga er mun lægri en reiknað var með, og verð­bólga hefur auk­ist hægar en reiknað var með í ágúst­hefti Pen­inga­mála. Eins og grein var frá í morgun, þegar nýjar tölur Hagstofu Íslands voru birtar, mælist verð­bólga á árs­grund­velli nú 1,9 pró­sent, og hefur hald­ist undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði tutt­ugu mán­uði í röð.

Í grein­ingu Arion banka kemur fram að upp­lýs­ingar seðla­bank­ans sýni gríð­ar­lega skarpa og mikla aukn­ingu í útlánum á síð­sum­ar­mán­uðum, en ekki er ólík­legt að töl­urnar taki mið af verk­falli rík­is­starfs­manna, þar á meðal sér­fræð­inga hjá sýslu­manns­emb­ættum, sem gerði það að verkum að þing­lýs­ingar lágu niðri um nokk­urra mán­aða skeið.

Síð­ast­liðin ár hafa ný útlán numið um 4 til 8 millj­örðum króna á mán­uði en í júlí og ágúst virð­ist sem útlána­hrað­inn hafi hátt í þre­fald­ast en í júlí námu útlánin 15,5 millj­örðum króna og 19,2 millj­örðum króna í ágúst.

[caption id="attachment_39957" align="alignnone" width="671"] Mynd: Arion banki.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár