DV sýknað: „Ólga vegna ástkonu“ fær að standa

Útgáfu­fé­lagið DV og Reynir Trausta­son sýknuð af stefnu Söru Lindar Guð­bergs­dóttur. Var sögð ást­kona Stefáns Einars Stef­áns­sonar fyrr­ver­andi for­manns VR.

Útgáfu­fé­lag DV og Reynir Trausta­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri blaðs­ins, voru í dag sýknuð í Hæsta­rétti af stefnu Söru Lindar Guð­bergs­dóttur vegna umfjöll­unar um hana í des­em­ber 2012. Hæsti­réttur snéri þannig við ákvörðun Hér­aðs­dóms Reykja­víkur en á síð­asta ári var félagið og rit­stjór­inn dæmd til að greiða Söru Lind 300 þús­und krónur í miska­bætur og 621 þús­und króna máls­kostnað. 

Ekki opinber persóna

Stefán Einar Stef­áns­son, fyrr­ver­andi for­maður VR, og unnusta hans, Sara Lind Guð­bergs­dóttir, höfð­uðu meið­yrða­mál gegn blað­inu vegna umfjöll­unar um ráðn­ingu Söru Lindar til VR á þeim tíma sem Stefán Einar gegndi for­mennsku hjá VR. Sara Lind hafði verið ráðin í yfir­manns­stöðu hjá VR þótt hún hafi ekki verið metin hæfust. Í umfjöll­un­inni segir meðal ann­ars að innan VR hafi sú saga gengið að áður en ráðn­ing­ar­ferlið fór af stað væri búið að ákveða að Sara Lind fengi starfið. Stefán Einar skrif­aði langa grein í Morg­un­blaðið á sínum tíma þar sem hann krafð­ist þess að blaðið biðj­ist afsök­unar á umfjöll­un­inni. Stefán Einar starfar nú sem blaða­maður hjá Morg­un­blað­inu. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár