Á annað hundrað konur stíga fram

Félag kvenna í atvinnu­líf­inu ákvað að hvetja konur til að lýsa því yfir að þær séu reiðu­búnar að taka að sér ábyrgð­ar­störf í atvinnu­líf­inu eftir umfjöllun um stöðu kynj­anna í fjöl­miðlum.

Stjórn FKA og framkvæmdastjóri.
Stjórn FKA og fram­kvæmda­stjóri.

Vel á annað hund­rað konur hafa á und­an­förnum dögum lýst því yfir á sam­fé­lags­miðlum að í ljósi umræðu í fjöl­miðlum vilji þær taka fram að þær séu til­búnar að takast á við ábyrgð­ar­störf í íslensku atvinnu­lífi. Það hafa þær gert með myllu­merk­inu #kon­ur­stíga­fram.

Her­ferðin átti upp­tök sín hjá stjórn FKA, Félags kvenna í atvinnu­líf­inu, eftir umfjöllun

Kjarnans um stöðu kvenna

í æðstu stjórn­un­ar­stöðum í fjár­mála­geir­anum, umfjöllun um sama mál í Kast­ljósi í kjöl­farið og umfjöllun í

Mark­aðnum um stöðu kvenna

í fram­kvæmda­stjóra­stöðum stórra fyr­ir­tækja. Nið­ur­staðan í öllum umfjöll­unum var svipuð, staða kvenna í æðstu stjórn­enda­lögum fyr­ir­tækja hefur sára­lítið breyst eða batnað á und­an­förnum árum, og karlar eru í mjög miklum meiri­hluta víð­ast hvar.

Eitt stærsta verk­efni FKA á þessu ári verður að beita sér í að auka hlut kvenna í efsta lagi stjórn­enda. Þessi her­ferð eru við­brögð við umfjöllun fjöl­miðla um stöðu kvenna í atvinnu­líf­inu, segir ein stjórn­ar­kona FKA, Áshildur Braga­dótt­ur, for­stöðu­maður Höf­uð­borg­ar­stofu. „Stjórn FKA vildi hvetja konur til að vekja athygli á að þær eru reiðu­búnar til að stíga fram. Konur tóku svo mjög vel við sér, og það er frá­bært að sjá það,“ segir Áshildur við Kjarn­ann. Hún segir félagið ætla sér að vera sterkara hreyfi­afl í því að vekja athygli á hlut­deild kvenna og karla í stjórnum, efsta stjórn­enda­lagi og í fjöl­miðlum. Það vilji bæði hrósa því sem vel sé gert, og sömu­leiðis stíga fram þegar hallar á konur.

Hrafn­hildur Haf­steins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri FKA, bendir á að í félag­inu séu þús­und kven­stjórn­endur og leið­togar sem eru í stjórn­enda­stöðum og gefa kost á sér til áfram­hald­andi for­ystu. Hvatn­ingin fór þannig fram að stjórnin hvatti konur til að vekja athygli á sér með færslu á sam­fé­lags­miðlum, „og var fyrst og fremst hvatn­ing til að vekja athygli á þeim gríð­ar­lega mannauði sem býr í konum og þær eru til­búnar til að stíga fram,“ segir Hrafn­hildur.

Áshildur segir að hún hafi fylgst mjög vel með jafn­rétt­is­bar­áttu frá því að hún var ung­lingur og henni þyki hlut­irnir hafa þró­ast mjög hægt. „Ég á fjórar dætur og ég er svo­lítið óþol­in­móð og vil fara að sjá meiri breyt­ingar.“ Konur þurfi að vera óhræddar við að tjá sig og þá þurfi líka að fá karla til liðs við þær við að stíga fram með það að ástandið sé óeðli­legt. „Við erum með fleiri konur sem eru mennt­aðar, en á sama tíma þá sjáum við að konur virð­ast ekki vera valdar í jafn ríkum mæli til ábyrgð­ar­starfa. Ég vil sjá þetta ger­ast hraðar.“

Yfir 90 prósent stjórnenda fjármálakerfisins karlar

Líkt og Kjarninn greindi frá fyrr í vik­unni eru 91 pró­sent þeirra sem stýra pen­ingum á Íslandi karlar. Það eru 80 karlar, en átta konur sem eru í æðstu stjórn­enda­stöðum við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, félaga á leið á markað, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og –miðl­ana, fram­taks­sjóða, orku­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­ana, Kaup­hallar og lána­sjóða.

Þegar Kjarninn fram­kvæmdi úttekt­ina fyrst, í febr­úar 2014, voru störfin sem hún náði yfir 88 tals­ins. Þá sátu 82 karlar í þeim störfum en sex konur. Hlut­falls­lega skipt­ingin var því þannig að karlar voru 93 pró­sent stjórn­enda en konur sjö pró­sent. Árið 2015 voru störfin 87, karl­arnir 80 og kon­urnar sjö. Hlut­fallið hafði því „lag­ast“ en var samt þannig að 92 pró­sent stjórn­enda voru karlar en átta pró­sent konur. Í fyrra var hlut­fallið það sama og árið áður. 92 pró­sent þeirra sem stýrðu pen­ingum hér­lendis voru karlar. Hlut­fallið hefur því nán­ast ekk­ert breyst á síð­ustu fjórum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár