Hrunkynslóðin: Pönkið lifir í listinni

Ein lista­konan rekur gall­erí í kjall­ar­anum hjá ömmu sinni. Önnur kemur frá Ísafirði og gerði allt vit­laust nýlega með meintri klám­sýn­ingu sem hún stýrði í Ráðhúsi Reykja­víkur. Sú þriðja semur tón­list og gjörn­inga undir nafn­inu Byssukisi. Strák­ur­inn í hópnum er á leið til Siglu­fjarðar til að taka þátt í mynd­list­ar­sýn­ingu „úr öðrum heimi“. Öll eru þau sam­mála um að pönkið sé aftur komið í lista­heim­inn á Íslandi og lifi þar góðu lífi, alla­vega á meðal yngra fólks­ins.

Öll eiga þau verk á sýn­ing­unni Kyn­leikar, þeirri sem talin var vera klám þegar hún var sett upp í mat­sal Ráð­húss­ins. Og öll tengj­ast þau gall­er­í­inu Ekkisens sem var stofnað fyrir rúm­lega ári síðan og er til húsa ofan í kjall­ara á gömlu báru­járns­húsi á Berg­staða­stræti og hefur hýst fjöldan allan af lista­verkum ungra lista­manna. Þessi nýja kyn­slóð lista­manna er bein­skeytt­ari í póli­tískum skírskotum í verkum sínum en sést hefur und­an­farið og það hlýtur að end­ur­spegla ástandið í sam­fé­lag­inu og stjórn­mál­unum. Þetta virð­ist vera ein­kenn­andi meðal hóps­ins en öll hefja þau feril sinn eftir hrun.

Blaða­maður Kjarnans ræddi við fjór­menn­ing­ana í vik­unni. Sú sem rekur gall­er­íið er Freyja Eilíf, tæp­lega þrí­tugt hörku­tól sem und­an­farið hefur líka sett upp hús­töku­sýn­ingar í litlu húsi í eigu Seðla­bank­ans við Berg­staða­strætið. Hún vinnur nú að bók­verk­inu „Blóðrúnk: fimmaura­lýð­veldið“. Sú sem kemur frá Ísafirði er hin 25 ára gamla val­kyrja Heiðrún Gréta Vikt­ors­dóttir. Eins og Freyja er hún útskrifuð frá mynd­list­ar­deild Lista­há­skól­ans. Hún stóð að sýn­ing­unni Kyn­leikar, ásamt Sigríði Þóru Óðins­dóttur, í mötu­neyti Ráð­húss­ins. Þessi sýn­ing hafði áður verið sett upp í Ekkisens á Menn­ing­arnótt en vakti ekki athygli fyrr en hún fór fyrir brjóstið á „sóma­kæru“ fólki í mötu­neyt­inu. Sem stendur er sýn­ingin til húsa í Tjarn­ar­bíó þar sem við­talið var tekið.

Ljóshærður Byssukisi


Sú sem gengur undir nafn­inu Byssukisi er hin ljós­hærða 26 ára gamla Guðrún Heiður Ísaks­dóttir. Hún er einnig útskrifuð úr mynd­list­ar­deild Lista­há­skól­ans. Með list­sköpun sinni vinnur hún sem tækni­maður á Lista­safni Reykja­víkur og sem plötu­snúður. Hún er núna að vinna að list­sýn­ingu sem sett verður upp í næsta mán­uði. Strák­ur­inn í hópnum er hinn mynd­ar­lega skeggj­aði 24 ára gamli Anton Logi Ólafsson. Hann á það sam­eig­in­legt með stúlk­unum að vera útskrif­aður úr mynd­list­ar­deild Lista­há­skól­ans. Framundan hjá honum er þátt­taka í hóp­sýn­ing­unni „Dóbía úr öðrum heimi“ í næsta mán­uði á Siglu­firði. Hann stefnir einnig á að opna sýn­ingu með lands­lags­myndum og er að vinna að útgáfu á mynda­sögu í róleg­heitum.

Auk þeirra situr Jón Proppé list­fræð­ingur með hópnum í barokk­sófa­sett­inu í Tjarn­ar­bíó og leggur til visku sína í umræð­urnar.

Viðbrögðin komu ekki á óvart


Umræð­urnar verða strax fjörugar og snú­ast fyrst um sýn­ing­una Kyn­leikar sem nýlega var flutt yfir í Tjarn­ar­bíó. Heiðrún segir að við­brögðin við sýn­ing­unni hafi ekki komið sér á óvart. „En ég átti alls ekki von á að þetta yrði svona stórt mál,“ segir Heiðrún. „Umræðan varð að mínu mati á engan hátt upp­byggj­andi og ein­kennd­ist mikið af sleggju­dómum.“

Freyja Elíf og hin eru sam­mála þessu mati og benda á að í ein­hverjum mæli hafi fjöl­miðlar notað sýn­ing­una til að búa til svokölluð „clickbait“, það er til þess að auka umferð­ina um vef­síður sínar. Guðrún bendir á að þegar sýn­ingin hafi fyrst verið sett upp í Ekkisens á Menn­ing­arnótt hafi hún ekki vakið neitt umtal utan gras­rót­ar­innar og Anton Logi bætir við að kannski hafi við­brögðin orðið svona hörð þar sem inn­tak sýn­ing­ar­innar sé í raun póli­tískt. Heiðrún tekur undir þetta og segir að þær Sigríður Þóra hafi viljað koma ákveðnum fem­inískum sjón­ar­miðum á fram­færi með sýn­ing­unni.

„Vef­miðlar birtu hverja grein á fætur annarri sem inni­héldu per­sónu­legar aðdrótt­anir um klúð­urs­legt inni­hald sýn­ing­ar­innar eftir höf­unda sem höfðu ekki einu sinni séð sýn­ing­una,“ segir Freyja. „Þessir greina­höf­undar sem áttu hlut að máli voru því engu skárri en virkir og froðu­fellandi í athuga­semdum. Sem betur fer heyrð­ust mál­efna­legri raddir þegar lengra var liðið frá upp­þot­inu og mik­il­vægum spurn­ingum velt upp, eins og hvers vegna fem­inískir við­burðir eru iðu­lega „diss­aðir í drasl“ eins og ein­hver komst að orði.“

[caption id="attachment_41524" align="alignnone" width="373"] Listin tekur á sig ýmsar myndir.[/caption]

Aftur til fortíðar


Ungir lista­menn eins og fjór­menn­ing­arnir eiga ekki auð­veldan aðgang að gall­er­íum í Reykja­vík þessa dag­ana. Jón Proppé gerir þetta að umtals­efni og segir að Ekkisens sé nán­ast eina gall­er­íið í 101 Reykja­vík sem rekið er af lista­mönn­unum sjálfum. „Saga list­sköp­unar á Íslandi hefur meira og minna verið því marki brennd að menn hafi ekki átt greiðan aðgang að sýn­ing­ar­rýmum eða gall­er­íum til þess að kynna verk sín,“ segir Jón. „Og það getur verið mjög kostn­að­ar­samt fyrir lista­menn að leigja sér rými eða aðgang að gall­er­íum.“

Freyja Eilíf tekur undir þetta og segir að Ekkisens sé mjög lítið gall­erí og hið tak­mark­aða pláss setji starf­sem­inni ákveðnar skorður. „Við erum þess vegna ætíð að leita að plássi til að setja upp sýn­ingar,“ segir Freyja. „Yfir­leitt er það hús­næði sem er í boði tíma­bundið. Sem dæmi er þetta litla hús á sömu lóð og Ekkisens þar sem við höfum sett upp hús­töku­sýn­ingar. Þar að auki erum við að íhuga pláss á Tryggva­göt­unni sem stendur til boða og býður upp á mun meira gólf­pláss og þar af leið­andi stærri sýn­ingar. Það liggur fyrir að þessu hús­næði verður lokað innan skamms til að rýma fyrir gisti­húsi eða lunda­búð. Við reynum hins­vegar að grípa gæs­ina meðan hún gefst. Við erum því að velta þessu fyrir okkur þótt um tíma­bundna aðstöðu sé að ræða.“

Pönkið lifir


Þegar kemur að spurn­ingum um list­sköpun þessa hóps og hvert sé mark­mið hennar segir Guðrún Heiður að öðrum þræði sé þetta pönk. Anton Logi tekur undir þau orð og segir að pönkið lifi í lista­heimi þeirra sem eru af yngri kyn­slóð lista­manna hér í borg­inni.

Jón Proppé er þessu sam­mála og segir að það að setja upp lista­sýn­ingar í auðu húsi sem sé í eigu Seðla­bank­ans sé ekk­ert annað en hreint pönk. „Við erum nú að sjá verk fyrstu lista­mann­anna sem hefja feril sinn eftir hrun,“ segir Jón. „Það er ekk­ert nýtt að ungir lista­menn þurfi að búa til sinn eigin vett­vang og þurfi að hafa allar klær úti til koma list sinni á fram­færi. Frá því að íslenskir mynd­lista­menn reistu Lista­manna­skál­ann fyrir eigin reikn­ing árið 1942 hefur hver ný kyn­slóð þurft að fara sömu leið. Vissu­lega hafa söfnin eflst og umhverfið er allt annað en það var fyrir nokkrum ára­tugum en það verður alltaf þörf fyrir vett­vang þar sem gras­rótin fær að dafna og ungir lista­menn geta sjálfir ráðið ferð­inni.“

Jón hefur kennt mikið og unnið með ungum lista­mönnum und­an­farin mörg ár: „Ég held að fram­tíðin sé björt og starf­semi Ekkisens-hóps­ins er sönnun þess.“

[caption id="attachment_41525" align="alignnone" width="771"] Jón Proppé: Það er ekk­ert nýtt að ungir lista­menn þurfi að búa til sinn eigin vett­vang og þurfi að hafa allar klær úti til koma list sinni á fram­færi.[/caption]

Mikilvægt að ráða ferðinni


„Það segir sig sjálft að stór og mik­il­vægur partur af sköp­un­ar­ferl­inu er að ráða ferð­inni. Sköp­un­ar­kraft­ur­inn þrífst einna best þegar lista­menn standa sjálfir við stjórn­völ­inn,“ segir Freyja Eilíf og bætir síðan við: „Í Ekkisens gefst okkur tæki­færi til að elta sköp­un­ar­kraft­inn í einu og öllu. T.d. með því að taka skyndi­á­kvarð­anir og þróa verk allt fram að opnun. Það er svo margt við hinn almenna list­heim sem er heft­andi. Svo er það nátt­úru­lega ekk­ert laun­ung­ar­mál að mynd­list stjórn­ast líka af pen­ingum og fylgir tísku­bylgjum eins og hver önnur neyslu­drottn­ing.“

Guðrún Heiður tekur undir þetta og segir að ef lista­menn fylgi við­ur­kenndum stefnum þá eiga þeir meiri mögu­leika á því að fá að vera memm á meðan þeir sem vinna með póli­tískar skír­skot­anir og „and­list“ í list­sköpun sinni eigi á hættu að vera „stig­mat­iseraðir“ og læstir ofan í kjall­ar­anum ævi­langt. „Við höldum bara partí í kjall­ar­anum,“ segir Anton Logi Ólafsson og brosir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár