Íslandsbanki greiðir 27 milljarða í arð til ríkisins

Íslands­banki mun greiða 27 millj­arða í arð­greiðslur til rík­is­ins, en þetta var ákveðið á sér­stökum hlut­hafa­fundi sem hald­inn var í dag. Arðurinn verður greiddur út fyrir árs­lok.

Almennt við­mið Íslands­banka er að greiða fjöru­tíu til fimm­tíu pró­sent af hagn­aði í arð. Í apríl voru greiddir tíu millj­arðar króna í arð til hlut­hafa, sem sam­svarar fimm­tíu pró­sentum af hagn­aði síð­asta árs. Þá fékk stjórn bank­ans heim­ild til að kalla til sér­staks hlut­hafa­fundar síðar á árinu til að leggja mögu­lega fram til­lögu um arð af hagn­aði fyrri rekstr­ar­ára, líkt og gert var í dag.

Því mun bank­inn greiða 37 millj­arða króna í arð til rík­is­ins á þessu ári.

Í til­kynn­ingu frá bank­anum kemur fram að mikil end­ur­skipu­lagn­ing hafi átt sér stað á eigna­hlut efna­hags­reikn­ings bank­ans. End­ur­skipu­lagn­ingu á lána­safni sé lokið, van­skila­hlut­fall fari lækk­andi og hverf­andi hluti end­ur­skipu­lagðra lána fer aftur í van­skil. Staðan sé þannig að bank­inn sé meðal 25% evr­ópskra banka sem hafi hvað lægst van­skila­hlut­föll.

Nú sé búið að stíga stórt skref í átt að eðli­legri fjár­magns­skipan á skulda­hlið efna­hags­reikn­ings bank­ans. Bankinn hafi við­haldið öfl­ugum eig­in­fjár- og lausa­fjár­hlut­föllum til að takast á við mögu­leg áhrif vegna aflétt­ingar hafta og áföllum í rekstr­ar­um­hverfi.

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans verður 24% eftir arð­greiðsl­una. Mark­miðið hjá Íslands­banka er að hafa hlut­fallið yfir 23%, en eig­in­fjár­krafa Fjár­mála­eft­ir­lits­ins er 19%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár