Mynd: TASOS KATOPODIS / GETTY IMAGES / AFP

Sáir Trump fræjum stórstyrjaldar?

Ný utan­ríkisstefna Bandaríkja­forseta skilgreinir Suður-Ameríku sem áhrifa­svæði Banda­ríkjanna. Óttast er að stefnan réttlæti yfirgang stórvelda gegn smærri ríkjum, sem áður hefur leitt til heims­styrjaldar.

Eftir stór­fellda hernaðar­uppbyggingu á Karíbahafi og loft­árásir á meinta fíkniefna­báta kynnti Donald John Trump Bandaríkja­forseti nýja þjóðar­öryggis­stefnu, sem endur­vakti svokallaða Monroe-kenningu um yfirráð Banda­ríkjanna yfir Suður-Ameríku. Sagn­fræðingur varar við því að kenningin hafi áður verið nýtt til að réttlæta innrásir stórvelda í smærri nágranna­ríki, meðal annars af nasista­leiðtoganum Adolf Hitler í aðdrag­anda seinni heims­styrjaldar. 

Réttur stórvelda innsiglaður

Víða í Evrópu var nýju þjóðar­öryggis­stefnu Banda­ríkjanna tekið illa á þeim forsendum að þar var berum orðum boðað að Banda­ríkin myndu „ýta undir andstöðu innan Evrópu­þjóða við núverandi stefnu álfunnar“, sem af samhengi stefnunnar snýr að því að styðja hægri flokka.

Samtímis hafa bandarísk stjórn­völd þrýst á Úkraínu að eftirláta Rússlandi meira landsvæði en Rússar hafa hertekið í ólöglegu innrásar­stríði síðustu fjögur árin og viðurkenna þannig rétt sterkari aðilans til land­vinninga af fullvalda ríki.

Á Íslandi og annars staðar í Evrópu var hins vegar minna rætt um yfir­lýsinguna í …

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár