Mosfellsbær heldur áfram að stækka

Íbúum Mos­fells­bæjar hefur fjölgað gríð­ar­lega á síð­asta ára­tug sem og nýjum íbúðum. Bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæjar býst við áfram­hald­andi fjölgun íbúa á næsta ári.

Mos­fells­bær er sjö­unda fjöl­menn­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins með tæp­lega 12.000 íbúa. Á síð­asta ára­tug hefur þar orðið mesta íbúa­fjölgun allra sveit­ar­fé­laga lands­ins að und­an­skildu Álfta­nesi. Samhliða mik­illi fjölgun Mos­fell­inga hefur íbúðum í sveit­ar­fé­lag­inu fjölgað mest af öllum sveit­ar­fé­lögum lands­ins á síð­ustu tíu árum.

Reikna með að íbúum fjölgi um 5,9 prósent á næsta ári

Mos­fell­ingum hefur fjölgað um 3.600 manns frá árinu 2009 eða alls um 39 pró­sent. Þá hefur sveit­ar­fé­lagið vaxið sér­stak­lega hratt á síð­ustu tveimur árum og frá 1. des­em­ber í fyrra hefur íbúum Mos­fells­bæjar fjölgað um 5 pró­sent, sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár. Til sam­an­burðar fjölg­aði íbúum Reykja­víkur um 1,7 pró­sent.

Í for­sendum fjár­hags­á­ætl­unar sveit­ar­fé­lags­ins fyrir næsta ár kemur fram að bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæjar miðar við að íbúum sveit­ar­fé­lags­ins fjölgi um 5,9 pró­sent á næsta ári.

„Það er okkur Mos­fell­ingum sem fyrr fagn­að­ar­efni að rekstur og starf­semi Mos­fells­bæjar er í miklum blóma og kraftur ein­kennir sam­fé­lagið okkar sem er í örum vexti. Íbúar eru nú um 12.000 og heldur áfram að fjölga á næsta ári. Við þurfum í sam­ein­ingu að treysta og við­halda þeim ein­kennum sem við vitum að eru einn af lyklum vel­gengni okkar sem sveit í borg þannig að vöxtur sveit­ar­fé­lags­ins hafi jákvæð áhrif á bæj­ar­brag­inn, þjón­ustu og þjón­ustu­stig,“ segir Haraldur Sverr­is­son, bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæjar.

Íbúðauppbygging mest í Mosfellsbæ

Sveit­ar­fé­lagið er land­mikið og spannar um 220 fer­kíló­metra. Bæj­ar­fé­lagið sam­anstendur af þétt­býl­iskjarna við Leirvog auk víð­áttu­mik­illar sveitar, svo sem í Mos­fells­dal. 

Samhliða gríð­ar­legri fjölgun íbúa hefur íbúða­upp­bygg­ing í sveit­ar­fé­lag­inu einnig verið hröð. Raunar hefur íbúða­upp­bygg­ing verið mest í Mos­fellsbæ af öllum sveit­ar­fé­lögum lands­ins síð­asta ára­tug, en skráðum íbúðum hefur fjölgað þar um 36 pró­sent frá árinu 2009.

Alls hafa 1.191 íbúðir risið í Mos­fellsbæ á síð­ustu tíu árum, sam­kvæmt skýrslu Íbúða­lána­sjóðs. Þá eru alls 459 íbúðir í bygg­ingu í sveit­ar­fé­lag­inu, sam­kvæmt nýj­ustu taln­ingu Samtaka iðn­að­ar­ins í sept­em­ber síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár