Hvað ef Golfstraumurinn hættir að flæða?

Búseta á Íslandi er oft sögð vera haf­inu að þakka. Hafið færir okkur fisk­inn sem Íslend­ingar hafa lifað á og auðg­ast í gegnum ald­irnar og hafið færir okkur mild­ara lofts­lag en við ættum kannski að búa við svo norð­ar­lega á hnett­inum.

Einfalt er að bera saman Ísland við eyj­arnar í Ber­ings­sundi, sem liggja á svip­uðum breidd­argráðum og Ísland. Þar eru eyj­arnar umluktar ís stóran hluta árs­ins sem gerir ferða­lög og fisk­veiðar erf­iðar í fram­kvæmd, eðli­lega. Sá hafís sem núorðið nær til Íslands hefur flotið mjög langan veg frá hörf­andi ísrönd í norðri. Í skýrslu um hafís við Íslands­trendur má sjá hvernig jökum hefur snar­fækkað á síð­ustu ára­tugum.

Þessi hörf­andi ís á norð­ur­hveli hefur skapað mik­il­væg tæki­færi fyrir Íslend­inga. Stjórn­völd hafa beitt sér fyrir auknum umsvifum þjóð­ar­innar á norð­ur­slóðum, gert við­skipta­samn­inga við fjar­læg lönd í öðrum heims­álfum og und­ir­búa sigl­ingar yfir Norð­ur­skautið.

Hlýnun Jarðar hefur því að öllum lík­indum skapað fleiri tæki­færi fyrir okkar litlu þjóð en vanda­mál. Ein­hverjir hafa jafn­vel gert að því skóna að hnatt­ræn hlýnun muni gera lofts­lag hér enn mild­ara en það er nú þegar.

[caption id="attachment_25008" align="alignnone" width="1024"] Golfstraum­ur­inn (rauður) á upp­tök sín í Kar­ab­ía­hafi og rennur frá Flór­ídaskaga með aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna og Nýfundna­landi. Þar tekur hann stefn­una austur og suður af Hvarfi tvístr­ast straum­ur­inn. Kanarí­straum­ur­inn (gulur) rennur að ströndum Spánar og Afríku en Norður Atl­ants­hafs-straum­ur­inn (grænn) rennur norður. Hann dreif­ist svo að Bret­landseyjum, Noregi og Íslandi. Smelltu á mynd­ina til að sjá hana stóra.[/caption]

En það er víst ekki allt tekið út með sæld­inni. Hraðari bráðnun íss á Norðu­skaut­inu og úr Græn­lands­jökli hefur hægt mikið á hlýjum haf­straumum sem renna um Norður Atl­ants­hafið. Fyrir þessu eru færð rök í nýlegri rann­sókn sem birt var í hnatt­hlýn­un­ar­hefti tíma­rits­ins Nature á dög­unum.

Eftir að hafa rann­sakað haf­straumana í Norður Atl­ants­hafi og kort­lagt hegðun þeirra margar aldir aftur í tím­ann komst Stefan Rahms­torf, ásamt fleiri fræði­mönnum hjá rann­sókn­ar­stofnun um hnatt­ræna hlýnun í Podstdam, að því að strauma­kerfið er nú veik­ara en það hefur verið í 1.100 ár, mögu­lega vegna blönd­unar við fersk­vatn úr bráðn­andi Græn­lands­jökli.

Fyrr á ferðinni en gert var ráð fyrir


Í lík­önum sem gerð hafa verið um þær breyt­ingar sem vænta má með auk­inni hlýnun Jarðar hefur verið gert ráð fyrir breyt­ingum á varma- og seltu­hringrás haf­anna. Þessar breyt­ingar mundu hafa mest áhrif í Norður-Atl­ants­hafi, sér­lega á Norð­ur­löndum, Bret­landseyjum og Frakk­landi þar sem lofts­lag mundi kólna. Golfstraum­ur­inn, upp­spretta milda lofts­lags­ins sem við njótum hér á Íslandi, átti í þessum lík­önum að veikj­ast mun hægar en nú virð­ist vera raunin.

Það mun halda áfram að hægj­ast á strauma­kerf­inu hér í Norður Atl­ants­hafi eins og lík­önin gera ráð fyrir með auk­inni hlýnun Jarðar en þau sýna þó engar ham­farir eða skyndi­legar breyt­ingar á þess­ari öld.

https://www.youtube.com/watch?v=3niR_-Kv4SM

Uppi­staðan í haf­strauma­kerfi Norður Atl­ants­hafs er hringrás þar sem hlýr sjór streymir norður, þar sem hann kólnar og verður salt­ari (meðal ann­ars vegna ísmynd­unar) með þeim afleið­ingum að vatnið sekkur og streymir aftur suður á bóg­inn.

Rann­sóknir á styrk Golfstraums­ins ná aftur til miðrar 20. aldar. Síðan mæl­ingar hófust hafa vís­inda­menn merkt nokkuð flökkt á styrk straums­ins. Á átt­unda ára­tugnum minnk­aði styrkur straums­ins mikið, þar til hann óx aftur á tíunda ártugnum. Erfitt er að gera sér grein fyrir því hvort þetta flökkt (það mesta síðan mæl­ingar hófust) sé eðli­legt í sögu­legu til­liti. Rann­sókn­arteymi Rahms­torfs reyndi því að búa þessi gögn með forn­lofts­lags­fræði. Með þau gögn til hlið­sjónar sést að styrkur Golfstraums­ins í sögu­legu lág­marki.

[caption id="attachment_24996" align="alignnone" width="720"] Styrk­leiki haf­strauma í Norður Atl­ants­hafi sam­kvæmt forn­lofts­lags­gögnum rann­sókn­arteym­isns. Dökka línan lengst til hægri í línu­rit­inu sýnir mældar nið­ur­stöður.[/caption]

Ein þeirra skýr­inga á þessu hrapi í styrk straumanna sem rann­sókn­arteymið leggur til er að hlýnun Jarðar eigi sök í máli. Í rann­sókn­inni er bent á að Græn­lands­jök­ull hefur verið að bráðna hratt und­an­farna ára­tugi og að blöndun ferskvatns­ins úr jökl­inum komi í veg fyrir að sjór­inn sem berst hingað norður úr Kar­ab­ía­hafi sökkvi og leiti aftur suður. Því hefur hægst á hringrásinni.

Aðrir vís­inda­menn sem hafa kynnt sér rann­sókn­ina segja þarna vera merki­legar nið­ur­stöður á ferð­inni en setja þó fyr­ir­vara við forn­lofts­lags­gögnin og áreið­an­leika þeirra. Vox.com hefur eftir Tom Delworth, vís­inda­manni hjá Haf- og lofts­lags­rann­sókn­ar­stofnun Banda­ríkj­anna (NOAA) að allar skýr­ingar rann­sóknar Rahms­torfs bygg­ist á þessum gögnum. „Ef þessi gögn eru áreið­an­leg, þá er þetta nokkuð mikið afrek hjá rann­sókn­ar­hópnum. En sem vís­inda­maður vill maður alltaf sjá fleiri efn­is­greinar með skýr­ingum og heim­ildum.“

Ekki aðeins kaldara loftslag nyrst


Afleið­ingar þess að mikið hægist á Golfstraumnum til lengri tíma er mun kald­ara lofts­lag í Norður Atl­ants­haf, sam­kvæmt þeim lík­önum sem hönnuð hafa verið. Þá mætti gera ráð fyrir því að fiski­stofnar sem við hér á Íslandi reiðum okkur á, ásamt fleirum, haldi sunnar í Atl­ants­haf með aug­ljósum afleið­ingum fyrir íslenskan efna­hag. Þá má gera ráð fyrir frek­ari breyt­ingum á líf­ríki sjávar við strendur lands­ins enda bera haf­straumar með sér svif og aðrar líf­verur.

Fyrir íbúa á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna mun hæg­ari Golfstraumur þýða hærra sjáv­ar­borð, til við­bótar við það vatn sem verður til við bráðnun íss. Haf­straumar eru þess eðlis að fyrir þeim miðjum er yfir­borð sjávar hærra en við jaðar þeirra. Til útskýr­ingar mætti ímynda sér þver­skurð haf­straums eins og staðl­aða norm­al­dreif­ingu í heimi töl­fræð­innar. Haraldur Sig­urðs­son, eld­fjalla­fræð­ingur, blogg­aði um þennan mögu­leika fyrir rúm­lega tveimur árum og setti í sam­hengi við styrk straums­ins hverju sinni.

„[...] árið 2000 var sjáv­ar­borð lægra og straum­ur­inn nær landi og sterk­ari, en árið 2011 var sja­var­borð við strönd­ina hærra og straum­ur­inn veik­ari. [...] Þegar straum­ur­inn hægir á sér þá rís sjáv­ar­borð við strönd­ina,“ skrif­aði Haraldur og benti á að flóðin í New York og New Jersey sem fylgdu felli­bylnum Sandy í októ­ber 2012 hafi verið tengd sams­konar hækkun sjáv­ar­borðs.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Felli­byl­ur­inn Sandy olli því að sjór gekk á land víða á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna. (Mynd: EPA)[/caption]

Hlýnun sjávar suður af Íslandi og Græn­landi gæti, með hæg­ari hringrás sjáv­ar­straumanna, orðið hæg­ari en ann­ar­staðar í heim­inum. Það mundi hafa áhrif á veð­ur­munstur bæði í Evrópu og Norður-Ameríku vegna þess að það sem kallað er Norður-Atl­ants­hafs­sveiflan mundi verða fyrir trufl­unum.

Norður-Atl­ants­hafs­sveiflan er í raun það sem ber ábyrgð á ítrek­uðum lægðum við Ísland yfir vetr­ar­mán­uð­ina og einn af aðal­orska­þáttum breyti­legs veð­ur­fars í Evrópu. Sveiflan sýnir loft­þrýs­ings­mun á milli Íslands og Asoreyja, sunnar í Atl­ants­hafi, og segir til um stefnu og styrk vest­an­áttar yfir Norður-Atl­ants­hafi.

En þó svæð­is­bundnar breyt­ingar verði á haf­straumum í Norður Atl­ants­hafi með til­heyr­andi falli á hita­stigi verður að reikna með þeim hnatt­rænu breyt­ingum sem virð­ast hafa, þegar öllu er á botn­inn hvolft, hafið þessar breyt­ingar. Hlýnun Jarðar gæti þannig haldið hita­stigi stöð­ugu yfir Norður-Atl­ants­hafi.

Ófullkomin líkön og óvissa


Rann­sóknin sem birt­ist í hnatt­hlýn­un­ar­hefti Nature kann að vera nýstár­leg og varpa ljósi á veru­leika sem tal­inn var vera í nokkuð fjar­lægri fram­tíð. Nið­ur­stöð­urnar eru þó ekki hafnar yfir allan vafa. Rann­sóknin hefur vakið athygli á hugs­an­legum göllum í lík­ön­unum sem gerð hafa verið af hnatt­rænni hlýnun og afleið­ingum hennar.

Í tíma­rit­inu er bent á að þau líkön sem stuðst hefur verið við gætu verið að fara á mis við mik­il­væg öfl eins og hraða bráðnun ísbreið­unnar á Græn­landi; hrað­ari bráðnun íss en nokkur hafði gert sér grein fyrir. Michael Mann, einn höf­unda grein­ar­innar í Nature, segir í sam­tali við Vox.com að nið­ur­stöð­urnar gefi enn aðra vís­bend­ingu um að hnatt­hlýn­un­ar­lík­önin geri ráð fyrir of litlum og hægum breyt­ingum.

Aðrir vís­inda­menn sem hafa kynnt sér rann­sókn hóps­ins frá Podstdam segj­ast efast um að mik­illa breyt­inga sé að vænta í nán­ustu fram­tíð. Gerald Meehl, hjá Lofts­lags­rann­sókn­ar­mið­stöð Banda­ríkj­anna, seg­ist halda að lík­önin fangi enn aðal­at­riðin. Delworth, hjá NOAA, tekur í sama streng og bendir á að enn séu óvissu­þættir í nýju rann­sókn­inni sem þurfi að skýra.

Það er því kannski ekki tíma­bært að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í nán­ustu fram­tíð. Þeim mun mik­il­væg­ara verður að fylgj­ast með breyt­ingum á haf­straumum enda gætu þeir mótað örlög Íslend­inga, eins og þeir hafa raunar gert hingað til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár