Íþyngjandi húsnæðiskostnaður algengari meðal leigjenda

Byrði hús­næð­is­kostn­aðar skipt­ist ekki jafnt, þar sem einn af hverjum fjórum í lægsta tekju­fimmt­ungnum bjó við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað árið 2018 á meðan hlut­fallið var mun lægra í öðrum tekju­fimmt­ungum.

Helm­ingur Íslend­inga varði allt að 17,7 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum heim­il­is­ins í hús­næð­is­kostnað árið 2018. Sama ár bjuggu 8,9 pró­sent ein­stak­linga á heim­ilum með íþyngj­andi byrði hús­næð­is­kostn­aðar, eða um 31 þús­und ein­stak­lingar á um 17 þús­und heim­ilum. Hús­næð­is­kostn­aður telst íþyngj­andi þegar heild­ar­kostn­aður hús­næðis nemur meira en 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum heim­il­is­ins.

Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum lífs­kjara­rann­sóknar Hagstofu Íslands fyrir árin 2017 og 2018.

Byrði hús­næð­is­kostn­aðar skipt­ist ekki jafnt, þar sem einn af hverjum fjórum í lægsta tekju­fimmt­ungnum bjó við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað árið 2018 á meðan hlut­fallið var mun lægra í öðrum tekju­fimmt­ungum.

Í frétt Hag­stof­unnar segir jafn­framt að íþyngj­andi hús­næð­is­kostn­aður sé algeng­ari meðal leigj­enda en meðal fólks sem býr í eigin hús­næði, og hafi bilið milli þess­ara hópa breikkað ef miðað er við upp­haf mæl­inga árið 2004. Árið 2018 voru 19,6 pró­sent heim­ila á leigu­mark­aði með íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað en 7,9 pró­sent heim­ila í einka­eigu. Í fjöl­býlum með 10 eða fleiri íbúðum er hlut­fall heim­ila með íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað hærra, eða um 14,6 pró­sent, miðað við hlut­fallið í ein­býlum sem var 9,2 pró­sent árið 2018.

Samkvæmt Hag­stof­unni bjúggu árið 2018 4,5 pró­sent lands­manna eða tæp­lega 16 þús­und ein­stak­lingar á heim­ilum sem höfðu verið í van­skilum með hús­næð­is­lán eða húsa­leigu á síð­ustu tólf mán­uðum. Hlut­fallið hefur lækkað ár frá ári síðan 2013, þó að lækk­unin á milli 2017 og 2018 sé innan skekkju­marka, sam­kvæmt Hag­stof­unni.

Hlutfall heim­ila í leigu­hús­næði sem eru í van­skilum hefur aldrei verið lægra, segir í frétt Hag­stof­unnar. Í upp­hafi mæl­inga, árið 2004, voru 12,2 pró­sent heim­ila í leigu­hús­næði í van­skilum en árið 2018 voru þau 5,3 pró­sent. Að jafn­aði er hlut­fallið lægra meðal heim­ila í eigin hús­næði, en árið 2018 var það 3,1 pró­sent.

Tengsl milli menntunar og vanskila

Flestir ein­stak­lingar sem bjuggu á heim­ilum í van­skilum árið 2018 voru í lægsta tekju­fimmt­ungi, eða rúm­lega 10 pró­sent. Hlutfall ein­stak­linga sem býr á heim­ilum í van­skilum minnkar með hækk­andi tekjum. Vanskil eru algeng­ari meðal yngri ald­urs­hópa en eldri sem til dæmis má sjá á því að hlut­falls­lega eru færri 55 ára og eldri sem búa á heim­ilum í van­skilum miðað við þá sem yngri eru.

Tengsl eru á milli mennt­unar og van­skila, sam­kvæmt Hag­stof­unni. Vanskil eru lægst meðal háskóla­mennt­aðra og hafa farið lækk­andi. Árið 2017 var hlut­fallið 4,4 pró­sent en 2,6 pró­sent árið 2018. Til sam­an­burðar bjuggu 5,9 pró­sent grunn­skóla­mennt­aðra á heim­ilum í van­skilum árið 2018, eða 3,3 pró­sentu­stigum hærra. Að jafn­aði er meiri munur á hlut­falli í van­skilum eftir menntun meðal karla en kvenna. Hæst er hlut­fall van­skila meðal karla með grunn­menntun, eða 8,4 pró­sent árið 2018.

Hægt er að skoða frétt Hag­stof­unnar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár