Viðræður hafnar um fjármögnun samgöngumála

For­sæt­is­ráð­herra og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hafa sett af stað stýri­hóp til að hefja við­ræður og móta til­lögur um næstu skref í 102 millj­arða fjár­mögnun sam­göngu­upp­bygg­ingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hafa sett af stað stýri­hóp til að hefja form­legar við­ræður um næstu skref í upp­bygg­ingu sam­ganga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til árs­ins 2033. Markmið við­ræð­anna er að móta sam­eig­in­lega sýn um fjár­mögn 102 millj­arða fjár­fest­ing­ar­á­ætl­unar í sam­göngu­málum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráð­inu.

Framkvæmdir upp á rúma 100 milljarða

Í vilja­yf­ir­lýs­ingu frá 21. sept­em­ber 2018 lýsti sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu yfir vilja til að hefja við­ræður um upp­bygg­ingu sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Settur var á fót verk­efn­is­hópur til að leiða þessar við­ræður og skil­aði hóp­ur­inn af sér skýrslu með til­lögum að fram­kvæmdum á stofn­vegum, innviðum Borg­ar­línu og hjól­reiða til næstu 15 ár.

Sigurður Ingi sagði í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í byrjun apríl að vinna starfs­hóp­ur­inn sner­ist ann­ars vegar um að full­kanna allar fjár­mögn­un­ar­leiðir og ná sam­stöðu milli ríkis og sveit­ar­fé­laga um þær leiðir sem eigi að fara. „Við erum að tala um fram­kvæmd­ar­pakka eða fram­kvæmdir sem eru 102-105 millj­arðar á að lág­marki 15 árum. Myndu hefj­ast 2021. Þannig að þetta eru kannski rúmir sjö millj­arðar á ári,“ sagði Sigurður Ingi.

Sigurður Ingi sagði jafn­framt í við­tal­inu að ein þeirra sviðs­mynda sem skoðuð er af verk­efna­hópnum sé að setja upp gjald­töku til að stýra umferð inn á ákveðin svæði í höf­uð­borg­inni, til dæmis inn í mið­borg henn­ar. „Það er ein sviðs­myndin sem við erum að vinna eftir og munum gera í sam­starfi við sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í þeim til­gangi að ná fram þessum mark­miðum um örugg­ari og skil­virk­ari umferð en líka þessum loft­lags­mark­miðum okkar um betri loft­gæði. Við vitum að hér í Reykja­vík er illu heilli oft á tíðum bara ekki nógu gott ástand hvað varðar loft­gæði og við þurfum að gera eitt­hvað í því og umferðin er oft á tíðum stærsti þátt­ur­inn þar.“

Stýrihópurinn á skila tillögum fyrir lok maí

Stýri­hópur er skip­aður af for­sæt­is­ráð­herra, sam­göngur- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­manni og vara­for­manni stjórnar SSH og borg­ar­stjóra Reykja­víkur. Stýri­hópu­inn á meðal ann­ars að vinna til­lögur út frá skýrslu verk­efn­is­hóps­ins og fyr­ir­liggj­andi hug­myndum um fram­kvæmdir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hópurinn á að skila til­lögum fyrir lok maí 2019, þar á meðal beinum til­lögur um bæði fjár­mögnun ein­stakra fram­kvæmda og verk­efna ásamt verka­skipt­ingu milli ríkis og sveit­ar­fé­laga.

[adspot]Með stýri­hópnum mun starfa sér­fræð­inga­hópur sem hefur það hlut­verk að fjalla um mis­mun­andi leiðir, val­kosti og lausnir í við­ræð­unum, vinna drög að samn­ingi og nauð­syn­legri umgjörð um verk­efnið til fram­tíðar sem lagðar verði fyrir aðila verk­efn­is­ins til sam­þykktar.

Sér­fræð­inga­hóp­inn skipa Sig­ur­bergur Björns­son, skrif­stofu­stjóri í sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu, Sigrún Ólafs­dóttir, sér­fræð­ingur í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, Sigurður Helgason, skrif­stofu­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, Birgir Björn Sig­ur­jóns­son til­nefndur af SSH, Guðrún Edda Finn­boga­dóttir til­nefnd af SSH og Páll Björgvin Guð­munds­son til­nefnd af SSH.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár