Frásagnir þolenda af kynferðisofbeldi: „Samfélag sem er gegnsýrt af gerendameðvirkni“

Síð­ast­lið­inn sól­ar­hring hefur fjöld­inn allur af þolendum kyn­ferð­is­of­beldis stigið fram með reynslu sína og þar með farið af stað með nýja bylgju Metoo.

Fjölda­margir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis hafa stigið fram með reynslu sína af ofbeldi síð­ast­lið­inn sól­ar­hring, sumir þeirra í fyrsta skipti. Ásamt því að opna sig um ofbeldi sem það hefur orðið fyrir hafa þolendur opnað á umræðu um afleið­ingar ofbeldis og hvernig sam­fé­lagið bregst við þolendum og jafn­framt ger­endum. 

Umræðan spratt fram í kjöl­far þess að fjöl­miðla­mað­ur­inn Sölvi Tryggva­son kom fram í sínum eigin hlað­varps­þætti með lög­mann­inum sínum til að bera af sér sakir um ofbeldi og sagði slúð­ur­sögur þess efnis hafa haft gríð­ar­lega nei­kvæð áhrif á hann. Margir sýndu Sölva stuðn­ing, meðal ann­ars Sigmar Vil­hjálms­son sem birti mynd­band af sér horfa grát­andi á hlað­varps­þátt­inn. Daginn eftir kærðu tvær konur Sölva til lög­reglu. Sögðust þær ekki hafa viljað gera þessi mál opin­ber en þær vildu fá tæki­færi til að segja sína hlið eftir að hann tjáði sig um málið. Í yfir­lýs­ingu frá kon­unum sem send var á fjöl­miðla sögðu þær sam­fé­lags­lega skyldu sína að leiða sann­leik­ann í ljós. 

Enn er mikil umræða um málið á sam­fé­lags­miðlum og í gær dró þekktur áhrifa­valdur orð sín til baka eftir að hafa lýst stuðn­ingi við Sölva og sagt „mellum og vænd­is­konum“ að fokka sér.  

Umræðan und­an­farna daga hefur verið þolendum þung og gagn­rýna þeir meðal ann­ars hversu margir voru til­búnir til að trúa frekar á að konur ljúgi til um ofbeldi en að þær hafi orðið fyrir því.  

Sólborg Guð­brands­dóttir sem hélt úti Instagram-síð­unni Fávitar er ein fjöl­margra sem hafa tjáð sig um málið, en hún seg­ist hafa fengið til sín þús­undir sagna af kyn­ferð­is­of­beldi á þeim fimm árum sem hún vann að því að varpa ljósi á stöðu kyn­ferð­is­brota­mála á Íslandi.

„Á þeim tíma fékk ég eflaust sendar til mín þús­undir sagna af kyn­ferð­is­of­beldi, þar sem „meintir“ ger­endur voru íslenskir karlar og strákar. Og svo virð­ist það sem svo að fólki sé fyr­ir­munað að skilja það að ein­hver sem brosir fal­lega og er góður við ömmu sína geti líka verið ger­andi. Nánast hver ein­asta kona sem ég þekki hefur orðið fyrir ein­hvers konar kyn­ferð­is­of­beldi og það gjör­sam­lega fýkur í mig að heyra fólkið mitt ásaka þær um athygl­is­sýki, kalla þær geð­veikar og ætla þeim ein­hverjar ann­ar­legar hvatir, þegar þær segja frá ofbeld­inu. Af þessum þús­undum sagna eru eflaust svipað margir ger­endur. Þeir eru vinir ykkar. Þeir eru frægir. Mennt­aðir. Fallegir. Góðir við ömmur sínar. En þeir eru líka ofbeld­is­menn,“ skrif­aði hún.

Ein þess­ara sagna væri hennar. Sagði hún erfitt að fylgj­ast með því hvernig áherslan væri gjarna á að passa þyrfti upp á til­finn­ingar og orð­spor meints ger­anda. „Hvaða sam­fé­lag er það sem bregst við frá­sögnum kvenna af ofbeldi með þeim hætti að nauð­syn­legt sé að vernda strák­ana okkar gegn ásök­unum? Það er sam­fé­lag sem er gegn­sýrt af ger­enda­með­virkni og kven­fyr­ir­litn­ingu.“

Fleiri hafa tjáð sig um málið og hér á eftir eru frá­sagnir nokk­urra ein­stak­linga birtar: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár