Íbúar landsins 436 þúsund eftir tæp 50 ár

Samkvæmt spá Hag­stof­unnar verða Íslend­ingar ríf­lega 400 þús­und árið 2067. Þjóðin er að eld­ast en er, og mun verða enn um sinn, mun yngri en flestar Evr­ópu­þjóðir.

Ætla má að íbúar lands­ins verði 436 þús­und árið 2067, bæði vegna fólks­flutn­inga og af nátt­úru­legum ástæðum, sam­kvæmt spá Hag­stof­unnar um þróun mann­fjöld­ans. Íslend­ingar voru til sam­an­burðar 348 þús­und í byrjun árs 2018.

Íslenska þjóðin ung

Íslenska þjóðin er að eld­ast líkt og flestar Evr­ópu­þjóðir en þá eru Íslend­ingar nú og verða áfram yngri en flestar Evr­ópu­þjóðir sam­kvæmt skýrslu Hag­stof­unnar. Árið 2060 verður meira en þriðj­ungur Evr­ópu­búa eldri en 65 ára en ein­ungis um fjórð­ungur Íslend­inga. Hinn fyrsta jan­úar 2017 var 27 pró­sent af mann­fjölda Evr­ópu­sam­bands­ins yngri en 25 ára, en elsti ald­urs­hóp­ur­inn (65 ára og eldri) nam 19 pró­sentum. Á Ísland eru hins vegar 33 pró­sent yngri en 25 ára og elsti ald­urs­hóp­ur­inn 4 pró­sent af íbúum.

Flestar Evr­ópu­þjóðir eru að lenda í vand­ræðum vegna þess að sam­setn­ing þjóða þeirra er að breyt­ast og þeir eldri eru að verða fleiri en yngri. En nauð­syn­legt er að hafa ungt fólk í landi til þess að standa undir hinum yngri og hinum eldri. Gert er ráð fyrir að fólk á vinnu­aldri (skil­greint á ald­urs­bil­inu 20 til 65 ára) standi undir fram­færslu ann­ars vegar þeirra sem eru yngri en 20 ára og hins vegar þeirra sem eru eldri en 65 ára. 

Á Íslandi hefur fram­færslu­hlut­fall ungs fólks verið hærra en fram­færslu­hlut­fall þeirra sem eldri eru, að hluta til vegna þess hversu hátt hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara er hér á landi. Samkvæmt spám Hag­stof­unnar snýst þetta við árið 2044 en þá verður í fyrsta sinn fleira eldra fólk en yngra.

Erlendir ríkisborgarar halda Íslendingum ungum

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar verða aðfluttir áfram fleiri en brott­fluttir á hverju ár fyrst og fremst vegna erlendra inn­flytj­enda. Íslenskir rík­is­borg­arar sem flytj­ast frá land­inu verða áfram fleiri en þeir sem flytj­ast til lands­ins.

Erlendum rík­is­borg­ur­unum hefur fjölgað mikið á Ísland en um mitt ár 2018 voru alls 38.657 starf­andi inn­flytj­endur á Íslandi eða rúm 19 pró­sent af heild­ar­vinnu­afli Íslands. Sá fjöldi er rúm­­­lega fjórum sinnum það sem hann var í upp­­­hafi árs 2005 og tvö­­­faldur það sem hann var í byrjun árs 2015, fyrir þremur og hálfu ári. [links]

Gríð­ar­leg upp­bygg­ingin hefur átt sér stað hér á landi síð­ustu 10 ár en hún hefur útheimt mikið vinnu­afl. Þetta vinnu­afl var ekki til staðar á Íslandi og því þurfti að sækja það til ann­arra landa. Stærsti hluti þeirra sem kemur hingað til lands er ungt fólk. Er­lendir rík­is­borg­arar á meðal íslenskra skatt­greið­enda hafa aldrei verið jafn margir og þeir voru í lok síð­asta árs. Um 90 pró­sent allra nýrra skatt­greið­anda á Íslandi í fyrra voru erlendir rík­is­borg­ar­ar. Þeim hefur fjölgað rúm­lega 60 sinnum hraðar og átta sinnum meira en íslenskum skatt­greið­endum á skrá á milli áranna 2016 og 2017. Þeir eru nú 15,1 pró­sent þeirra sem greiða hér til sam­neysl­unn­ar.

Erlent vinnu­afl á Íslandi hefur því ekki aðeins aukið hag­sæld lands­ins heldur hefur það einnig yngt upp þjóð­ina. Líkt og kemur fram hér að ofan þurfa þjóðir fólk á vinnu­aldri til að standi undir fram­færslu yngstu og elstu hóp lands­ins. Þess vegna er mik­il­vægt fyrir Ísland að fá erlenda rík­is­borgra til að vinna hér á landi og borga skatta. Það heldur þjóð­inni ungri.

Fleiri karlar en konur á Íslandi

Und­an­farin ár hafa mun fleiri karlar en konur flust til lands­ins, í árs­byrjun 2018 voru 1.030 karlar á hverjar 1.000 konur. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar verða karlar fleiri en konur á hverju ári næstu 50 árin. Samkvæmt Hag­stof­unni er þróun kynja­hlut­falls hér á landi um margt athygl­is­verð, hún er sam­spil af mörgum þáttum. Fleiri drengir en stúlkur fæð­ast á hverju ári, fjölda fæð­inga, mis­mun­andi dán­ar­tíðni kynj­anna, ólíkum lífslíkum kynj­anna og ólíkri hegðun kynj­anna hvað varðar búferla­flutn­inga. Frá lokum síð­ustu aldar hafa búferla­flutn­ingar haft mest áhrif á kynja­hlut­fallið. Í flestum Evr­ópu­ríkjum eru færri karlar en konur.

Samkvæmt Hag­stof­unni munu fleiri fæð­ast en deyja á hverju ári frá og með árinu 2061. Meðalævi karla og kvenna við fæð­ingu mun halda áfram að lengj­ast. Nýfæddar stúlkur árið 2018 geta vænst þess að verða 83,9 ára gamlar en nýfæddir drengir 79,8 ára. Stúlkur sem fæð­ast árið 2067 geta vænst þess að verða 88,7 ára en drengir 84,4 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íbúafjöldi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár