Eitrað fyrir skólastúlkum í Íran: Hefnd fyrir feminíska byltingu?

Yfir þús­und íranskir náms­menn, nær ein­göngu stúlkur, hafa veikst síð­ustu þrjá mán­uði. Grunur leikur á að eitr­uðu gasi hafi verið dælt inn í að minnsta kosti 127 skóla í 25 af 31 hér­aði lands­ins. Nær allir skól­arnir eru stúlkna­skólar. Írönsk stjórn­völd hafa verið harð­lega gagn­rýnd fyrir að bregð­ast hægt við. Stjórn­völd segja óvin­veitt ríki bera ábyrgð á eitr­un­unum.

Eitruðu gasi dælt inn í stúlkna­skólaFyrsta til­fellið, svo vitað sé, var til­kynnt í borg­inni Qom 30. nóv­em­ber þegar 18 stúlkur veikt­ust skyndi­lega og voru lagðar inn á spít­ala. Síðan þá hafa sam­bæri­leg til­felli komið upp í að minnsta kosti 127 skólum. Írönsk stjórn­völd segja óvin­veitt ríki bera ábyrgð á eitr­un­unum. Enginn hefur látið lífið, enn þá, en frá því í nóv­em­ber hafa yfir þús­und stúlkur verið fluttar á spít­ala vegna eitrana. Ein­kennin eru önd­un­ar­erf­ið­leikar, ógleði, svimi og þreyta.
Kona, líf, frelsiMótmæli hafa brot­ist út þar sem almenn­ingur gagn­rýnir við­bragðs­leysi stjórn­valda. Mót­mæl­endur ótt­ast að til­gangur eitran­anna sé að bæla niður menntun kvenna eða hefnd þar sem mót­mælin sem hófust í Íran í haust voru leidd af konum, mót­mæli sem stjórn­mála­skýrendur skil­greina sem fem­iníska bylt­ingu, bylt­ingu þar sem krafan snýst um frelsi til að velja.
Feminísk bylt­ingNikoo Azad, íranskur sál­fræði­nem­andi, tekur þátt í þöglum mót­mælum í Bangalore á Indlandi. Í bak­grunni má sjá mynd af Masha Amini, 22 ára konu frá Kúr­distan, sem lést í haldi sið­gæð­is­lög­regl­unnar í Íran um miðjan sept­em­ber í fyrra. Í kjöl­farið brut­ust út umfangs­mikil mót­mæli. Amini var á ferða­lagi í Teher­an, höf­uð­­borg Íran, þegar íranska sið­­gæð­is­lög­reglan hand­tók hana fyrir meint brot á reglum um að bera slæðu. Mat sið­­gæð­is­lög­reglan það svo að slæðan huldi ekki næg­i­­lega mikið af höfði hennar þar sem hár hennar var sýn­i­­legt. Þá hafi klæðn­­aður hennar einnig verið „óvið­eig­and­i“. Skikka átti Amini á nám­­skeið um klæða­­burð en skömmu eftir hand­­töku hennar féll hún í dá. Hún lést á sjúkra­­húsi þremur dögum síð­­­ar. Fjöl­­skylda hennar og vitni segja að hún hafi verið barin til dauða. Yfir­­völd full­yrða hins vegar að hún hafi fengið hjarta­á­­fall.
„Ófyr­ir­gef­an­legir glæpir“Írönsk yfir­völd til­kynntu í síð­ustu viku að rann­sókn væri hafin á mál­inu og á mið­viku­dag fóru fyrstu hand­tökur fram í tengslum við rann­sókn á eitr­un­unum. Aya­tollah Ali Khameini, æðsti leið­togi Íran, segir eitr­an­irnar „ófyr­ir­gef­an­lega glæpi“. „Ger­end­urnir verða að sæta þyngstu mögu­legu refs­ingu,“ sagði Khameini í vik­unni þegar hann ræddi eitr­an­irnar opin­ber­lega í fyrsta sinn í vik­unni. Hér er hann hins vegar að sinna opin­berum erinda­gjörðum í vik­unni þar sem hann gróð­ur­setti tré í til­efni af „nátt­úru­auð­linda­viku“ sem nú stendur yfir í Íran þar sem vorið er á næsta leiti.
Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Khameini og vinir hans eru æxli á þjóð sinni.
    Hugsið ykkur hver staðan er. Khameini er að styðja við stríðsrekstur Rússa í Úkrainu og gerir um leið allt miklu erfiðara heima fyrir, eins og staða þjóðarinnar sé ekki nógu snúin fyrir. Khameini sveiflar sverði sínu jafnt gegn landsmönnum sínum sem og íbúum fjölbýlishúsa í Úkrainu. Vonandi nær kranastjórinn honum fyrr en seinna.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár