Ánægja með göngugötur í Reykjavík

Meiri­hluti íbúa Reykja­víkur er veru­lega jákvæður gagn­vart göngu­götum í mið­borg­inni. Alls segj­ast 71 pró­sent svar­enda jákvæðir gagn­vart göngu­göt­unum en 11 pró­sent eru nei­kvæðir.

Meiri­hluti íbúa Reykja­víkur er veru­lega jákvæður gagn­vart göngu­götum í mið­borg­inni, sam­kvæmt nið­ur­stöðum nýrrar við­horfskönn­unar Maskínu sem fram­kvæmd var fyrir umhverfis- og skipu­lags­svið Reykja­víkur.

Alls segj­ast 71 pró­sent svar­enda jákvæðir gagn­vart göngu­göt­unum en 11 pró­sent eru nei­kvæðir.

Jákvæðnin eykst eftir því sem fólk fer oftar á göngu­götu­svæðið og eru íbúar í Miðborg og Hlíðum jákvæð­astir allra. Ekki er mik­ill munur á afstöðu kynj­anna til göngugatn­anna þó eru fleiri karlar en konur sem eru mjög jákvæðir með þetta fyr­ir­komu­lag.

Alls telja 77 pró­sent íbúa að göngu­göt­urnar hafi jákvæð áhrif á mann­lífið í mið­borg­inni en 8 pró­sent telja að þær hafa nei­kvæð áhrif.

Eft­ir­far­andi götum hefur verið breytt í göngu­götur und­an­farin ár: Lauga­vegi og Banka­stræti, milli Vatns­stígs og Þing­holts­strætis. Skóla­vörðu­stíg milli Berg­staða­strætis og Lauga­vegar. Aust­ur­stræti, Veltu­sundi og Vall­ar­stræti. Póst­hús­stræti, milli Kirkju­strætis og Hafn­ar­strætis.

Aðspurðir um tíma­bil göngugatna, frá 1. maí til 1. októ­ber, segja tæp­lega 40 pró­sent að tíma­bilið sé hæfi­lega langt, 30 pró­sent vilja lengja tíma­bilið og 30 pró­sent vilja stytta það.

Mun fleiri en áður vilja göngu­götur allt árið eða 25 pró­sent svar­enda en var 12 pró­sent í sam­bæri­legri könnun sem Maskína fram­kvæmdi í fyrra. Tæplega 5 pró­sent segj­ast alfarið á móti göngu­götum, sem er sama hlut­fall og í síð­ustu könnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár