Erla Hlynsdóttir vann mál gegn Íslandi í þriðja sinn fyrir Mannréttindadómstólnum

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu dæmdi blaða­mann­inum Erlu Hlyns­dóttur í vil í máli gegn íslenska rík­inu og komst að þeirri nið­ur­stöðu að dómur Hæsta­réttar í meið­yrða­máli gegn henni frá árinu 2010 væri brot á man­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Þetta stað­festir Gunnar Ingi Jóhanns­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður sem starfað hefur fyrir Erlu, í sam­tali við Kjarnann. Þetta er í þriðja sinn sem dóm­stóll­inn dæmir Erlu í vil í máli sem hún hefur höfðað fyrir honum gegn íslenska rík­inu.

Í mál­inu sem var til umfjöll­unar í morgun var fjallað um dóm Hæsta­réttar Íslands frá árinu 2010 í meið­yrða­máli gegn Erlu vegna fréttar sem hún skrif­aði í DV árið 2007 þar sem full­yrt var að Rúnar Þór Róberts­son væri „kóka­ínsmygl­ari“. Fréttin fjall­aði um saka­mál sem höfðað hafði verið gegn Rúnari Þór vegna inn­flutn­ings á um 3,8 kílóum af kóka­íni sem ætlað var til sölu­dreif­ingar. Hann var hins vegar sýkn­aður í hér­aðs­dómi um viku eftir að fréttin birt­ist og sú nið­ur­staða var síðar stað­fest í Hæsta­rétti. Rúnar Þór var í milli­tíð­inni dæmdur í tíu ára fang­elsi fyrir aðild sína að öðru fíkni­efna­smygli, sem oft­ast gengur undir nafn­inu „Papeyj­arsmyglið“.

Í dómi Hæsta­réttar frá árinu 2010 voru ummælin „kóka­ínsmygl­arar“ og full­yrð­ingin „í þeirri trú að kóka­ínið væri á sínum stað“ dæmd dauð og ómerk. Erlu, og Sig­ur­jóni M. Egils­syni, þáver­andi rit­stjóri DV, var gert að greiða Rúnar Þór 150 þús­und krónur í bætur vegna þessa.

Erla vildi ekki una þeirri nið­ur­stöðu og vís­aði henni til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sem felldi dóm sinn í morgun.

Þriðja sinn sem Erla fer með mál þessa leið


Þetta er í þriðja sinn sem Erla fer með mál fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. Í júlí 2012 komst dóm­stóll­inn að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn 10. grein Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu með því að dæma Erlu fyrir meið­yrði í des­em­ber 2009 fyrir ummæli um eig­anda nekt­ar­dans­stað­ar­ins Strawberries sem hún hafði eftir við­mæl­anda. Íslenskir dóm­stólar gerðu Erlu per­sónu­lega ábyrga fyrir ummælum við­mæl­anda síns og dæmdu hana bóta­skylda. Íslenska rík­inu var gert að greiða Erlu skaða­bætur.

Sama dag komst Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn að sömu nið­ur­stöðu í máli ann­arrar blaða­konu, Bjarkar Eiðs­dóttur, sem dæmd hafði verið meið­yrði vegna ummæla sem höfð voru eftir við­mæl­anda. Nið­ur­staðan var sú sama utan þess að Björk fékk hærri bætur.

Í októ­ber 2014 kvað Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn upp dóm í öðru máli Erlu gegn íslenska rík­inu. Því var vísað til dóm­stóls­ins eftir að Hæsti­réttur Íslands dæmdi Erlu fyrir meið­yrði vegna ummæla sem höfð voru eftir við­mæl­anda í frétt um eig­in­konu Guð­mundar Jóns­sonar, kenndum við Byrgið, sem birt var í DV þann 31. ágúst 2007.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn komst að þeirri niðu­stöðu að brotið hefði verið gegn 10. grein mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu um tján­ing­ar­frelsi og dæmdi íslenska ríkið til að greiða Erlu 1,2 millj­ónir króna vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár