Prófessor á sviði loftslagsmála segir Íslendinga stunda sjálfsblekkingu

Íslend­ingar stunda sjálfs­blekk­ingu í lofts­lags­málum með því að ein­blína á græna orku­fram­leiðslu og not­ast við gallað kolefn­is­bók­hald að mati Jukka Heinonen, pró­fess­ors við Umhverfis- og bygg­ing­ar­verk­fræði­deild Háskóla Íslands.

Ísland stendur sig ágætlega á sviði loftslagsmála ef eingöngu er horft á á raforkuframleiðsluna þar sem sú framleiðsla er að mestu kolefnislaus. Raforkan sé hins vegar lítill hluti af heildarmyndinni.
Ísland stendur sig ágæt­lega á sviði lofts­lags­mála ef ein­göngu er horft á á raf­orku­fram­leiðsl­una þar sem sú fram­leiðsla er að mestu kolefn­is­laus. Raforkan sé hins vegar lít­ill hluti af heild­ar­mynd­inni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jukka Heinonen, pró­fessor við Umhverfis- og bygg­ing­ar­verk­fræði­deild Háskóla Íslands og einn af 1.000 áhrifa­mestu vís­inda­manna heims á sviði lofts­lags­mála, seg­ist ekki hafa trú á því að næsta lofts­lags­ráð­stefna skili miklum árangri.

COP27, tuttug­asta og sjö­unda lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna, verður haldin í Egypta­landi í nóv­em­ber næst­kom­andi. Síðan fyrsta ráð­stefnan var haldin í Berlin árið 1995 hefur losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda auk­ist um 50 pró­sent á heims­vísu.

Í kjöl­far COVID-19 far­ald­urs­ins dró aðeins úr los­un­inni en hún er nú aftur á upp­leið. Jukka segir þrennt skýra þessa lélegu frammi­stöðu:

Skammtímahugsun, afvegaleiðing og hagvaxtarhyggjan helstu sökudólgar

„Í fyrsta lagi hefur samn­ings­að­ilum reynst mjög erfitt að taka á vanda sem virð­ist fjar­lægður í tíma,“ segir Jukka. Hér er pró­fess­or­inn að vísa til þess sem er stundum kallað Titanic-áhrifin: á meðan ísjak­inn er ekki sýni­legur er lít­ill hvati til að grípa til aðgerða, þrátt fyrir end­ur­teknar við­var­anir, en þegar ísjak­inn sést loks­ins berum augum er orðið of seint til að bregð­ast við.

„Stjórn­mála­menn leit­ast eftir aðgerðum sem skila árangri strax, þar sem kosn­ingar snú­ast fyrst og fremst um að leysa skamm­tíma­vanda­mál með skamm­tíma­lausnum. Það er aðal­lega hugsað um næsta kjör­tíma­bil, en lofts­lags­breyt­ingar eru í eðli sínu lang­tíma­vanda­mál. Þær krefj­ast rót­tækra aðgerða sem eru ekki lík­legar til vin­sælda til skamms tíma og munu ekki hafa áhrif fyrr en eftir langan tíma.“

„Í öðru lagi er ákveðin til­hneig­ing hjá samn­ings­að­ilum til að skella skuld­inni á hvorn annan. Vest­rænar þjóðir benda á sífellt hækk­andi los­un­ar­tölur hjá þró­un­ar­ríkjum eins og Kína, en þró­un­ar­ríkin benda aftur á móti á hærri upp­safn­aða losun vest­rænna iðn­ríkja.“

[adspot]„Í þriðja lagi er draumur manna um enda­lausan hag­vöxt að þvæl­ast fyrir. Stjórn­völd í flestum ríkjum heims leggja fyrst og fremst áherslu á áfram­hald­andi hag­vöxt, sem þýðir aukna fram­leiðslu og aukna neyslu. Þar sem aukin fram­leiðsla kallar á aukna losun er í raun um tvö and­stæð mark­mið að ræða, en mark­miðið um hag­vöxt trompar yfir­leitt mark­miðið um sam­drátt í losun. Sumir von­ast til að geta kallað fram „grænan hag­vöxt“, það er að segja hag­vöxt sem verður til sam­hliða sam­drætti í losun, en slíkan hag­vöxt sjáum við ekki raun­ger­ast.“

Þegar talið berst að grænum hag­vexti leyn­ist hæðnin ekki hjá vís­inda­mann­inum. Hjá fræði­mönnum er grænn hag­vöxtur svo­lítið eins og Lag­ar­fljótsorm­ur­inn: allir tala um hann en eng­inn hefur séð hann.

„En stjórn­mála­menn þora ekki að véfengja draum­inn um enda­lausan hag­vöxt, af ótta við að missa fylgi.“

Græn orkuframleiðsla ekki trygging fyrir lágu kolefnisspori

Á Íslandi er staðan lítt skárri en ann­ars staðar. Losun Íslands er í dag 20 pró­sent hærri en hún var þegar fyrsta lofts­lags­ráð­stefnan var haldin, og fátt bendir til þess að hún sé á nið­ur­leið, ef COVID-tíma­bilið er und­an­skilið. Jukka segir Íslend­inga stunda sjálfs­blekk­ingu með því að ein­blína á græna orku­fram­leiðslu og not­ast við gallað kolefn­is­bók­hald.

„Ef við horfum ein­göngu á raf­orku­fram­leiðsl­una, þá lítur út sem Ísland sé að standa sig ágæt­lega, því sú fram­leiðsla er að mestu leyti kolefn­is­laus. En raf­orkan er aðeins lít­ill hluti af heild­ar­mynd­inni…”

Það eru tvær aðferðir við að reikna út losun: fyrsta aðferðin felst í því að mæla aðeins þá losun sem á sér stað innan landamæra hvers lands fyrir sig. Það er sú mæl­ing sem er notuð sem und­ir­stöðu í alþjóða­samn­ingum. Hin aðferðin felst í því að mæla þá losun sem verður til við að fram­leiða og flytja allar þær vörur og þjón­ustu sem íbuar við­kom­andi lands kaupa sér eða hafa aðgang að, óháð því hvar í heim­inum sú losun á sér stað. Sú mæl­ing kall­ast kolefn­is­sporið, og tekur mið af þeirri losun sem teng­ist inn­fluttum vörum, alþjóða­flugi og alþjóða­flutn­ingum, á meðan mæl­ingar á stað­bund­inni losun gera það ekki. „Ef aðeins stað­bundin losun er skoðuð þá gefur hún í raun mjög bjag­aða mynd af stöð­unni,“ segir Jukka.

[adspot]Hann vísar í breska rann­sókn sem hafi jafn­vel leitt í ljós að stað­bundnar mæl­ingar geti sýnt fram á sam­drátt í losun á sama tíma og kolefn­is­sporið hefur hækkað vegna auk­ins inn­flutn­ings og auk­inna flug­sam­gangna. „Þróunin sem við höfum séð síð­ustu ár og ára­tugi er að rík­ari þjóðir eru að útvista losun til fátæk­ari landa með því að færa fram­leiðsl­una þangað. Þannig lækkar stað­bundin losun þeirra sam­kvæmt bók­hald­inu, á sama tíma og hnatt­ræn losun eykst þrátt fyrir allt.“

Kolefnissporið þarf að mæla og vakta betur

Þessa bók­halds­brellu kallar Jukka „lág­kolefn­is­sjón­hverf­ingu“. Til að koma í veg fyrir slíka skekkju þurfi að mæla kolefn­is­sporið sam­hliða stað­bund­inni losun en á Íslandi hefur kolefn­is­sporið aðeins verið mælt einu sinni. Það er Jukka sjálfur, ásamt sam­starfs­mönnum sínum Jack Clarke og Juudit Ottelin, sem fram­kvæmdu þessa mæl­ingu, en nið­ur­stöð­urnar eru að finna í rann­sókn sem birt­ist árið 2017. Sú rann­sókn leiddi í ljós að kolefn­is­spor Íslend­inga er eitt það hæsta í heimi þegar allar inn­fluttar vörur eru teknar með í reikn­ing­inn, þrátt fyrir hlut­falls­lega lága kolefn­islosun inn­an­lands.

Á meðan ekki er fylgst með kolefn­is­spor­inu (eða „neyslu­drif­inni losun“ eins og vís­inda­menn kalla hana) eru stjórn­völd í raun að renna blint í sjó­inn með aðgerðum sínum, og við­halda þannig sjálfs­blekk­ing­unni. Svíþjóð varð nýlega fyrsta ríki heims til að inn­leiða mark­mið um lækkun kolefn­is­spors sam­hliða sam­drætti í inn­lendri losun, einmitt til að koma í veg fyrir útvistun á losun. „Þetta er mjög jákvætt skref, sem fleiri ættu að taka til fyr­ir­myndar,“ segir Jukka Heinonen.

Samkvæmt rann­sókn Jukka er kolefn­is­spor Íslend­inga tvö­falt hærra en kolefn­is­spor Svía, eða um 22 tonn Co2-ígilda á mann á móti 11 tonnum hjá Svíum, en til að ná að tak­marka hlýnun við 2°c þarf að ná þess­ari losun niður í 2 tonn á mann fyrir 2050, sem sam­svarar ríf­lega 90% sam­drætti í losun á innan við 30 árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár